Alþýðublaðið - 07.01.1964, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 07.01.1964, Blaðsíða 3
Páll páfi kominn heim úr pílagrímsför sinni AMMAN og ROM G.l (NTB- Reuter). Páll páfi kom i dag heim úr hinni sögulegu ferð sinni til Gyðingalands, ferð, sem ásamt mörgu öðru leiddi til hins merka fundar páfans og yfirmanns grísk kaþólsku kirkjunnar, Athenagor- as patríarka. Flugvél páfa lenti á Rómarflugvelli eftir að dimmt var orðið og tekið að kólna en páfl stóð í bifreið sinni og heilsaði þeim tugþúsundum áhorfenda er komið höfðu til að hylla hann og sjá. MENNTAMÁLARÁÐHERRA HEIMSOKN TIL NOREGS Gylfi Þ. Gíslason viðskipta- og menntamálaráðherra fer til NÓr- egs hinn 15. janúar að því er segir í fréttatilkynningu frá „Norsk- Islandsk Samband“ í Osló. Mun liann dvelja þar í tíu daga og strax fyrsta daginn hef jast umræð- ur um menningarsamskipti ís- lands og Noregs. Næsta dag mun ráðherrann lialda fyrirlestur við liina nýju Stráðu sandi á verstu kaflana Akureyri 6. jan. — GS ÁG Áætlunarbifreið frá Reykjavík kom ekki hingað fyrr en kl. 3 í nótt, og var þá orðin langt á eftir áætlun. Hafði hún lent í miklum erfiðleikum á Öxnadalslieiði þar sem vegurinn er nú allur einn svellbunki. Varð vörubifreið hlað- in sandi að fara á undan áætlunar- bílnum til að strá sandinum yfir verstu kaflana. þjóðfræðideild háskólans í Osló, og verður hann fyrsti gesturinn, sem heldur fyrirlestur í þessari nýju deild. Fjallar fyrirlesturinn um nútíma verðbólguvandamál með tilliti til ástandsins á íslandi í dag. Síðan mun ráðherrann kynna sér áætlanirnar um framtíðarþró- un háskólans og ræða við for- stöðumenn hans- Einnig mun hann ræða við fulltrúa frá kirkju málaráðuneytinu. Á föstudaginn heldur hann opinberan fyrirlest- ur í gamla hátíðarsal háskólans um framtíðarvandamál íslands. Ráðherrann mun einnig opna íslenzku bókasýninguna, sem hefst á laugardag. Þegar hann hefur lokið viðræðum við norska ráð- herra, liggur leiðin til Bergen, en þar mun hann flytja fyrirlestur við Verzlunarháskóla Noregs og ræða hárkóla- og fræðslumál við forráðamenn liáskólans. — Ráðherrann hefur sagt að hann ætli að nota heimsóknina til þess að kynna sér ýtarlega menntamál í Noregi og við höfum tekið hann á orðinu og gert fyrir hann mjög stranga áætlun, sagði formaður Norsk-íslenzka félagsins Tonnes Andenæs. Brottför páfa frá Amman var mjög viðhafnarmikil og skiptust þeir á gjöfum Páll páfi og Huss- ein konungur Jórdaníu en feiki- mikiil mannssöfnuður var þar sam ankominn. Skömmu áður en vélin hóf sig á loft var olívugrein flutt um borð í hana. Flugvélin hóf sig ekki til flugs fyrr en 50 mín. of seint, flaug þá í stórum kveðju- hring yfir höfuðborginni og hélt síðan heim á leið í fylgd 12 jórd- anskra orrustuþota er snéru við við landamæri Jórdaníu- Fyrr í gær flutti páfi messu í Fæðingarkirkjunni í Betlehem og í ræðu sinni hvatti hann mjög til vinnu fyrir einingu kristinna manna. Hann hvatti kaþólsku kirkj una til að standa þétt saman, og allar aðrar kirkjur til að snúa bök um saman og heiminn hvatti hann til að snúa sér að kristindómin- um og skilja verkefni hans. Mú- hammeðsmenn og Gyðinga hvatti | hann til að móttaka með gleði boð skap kirkjunnar um frið og rétt- læti. Er páfi kom til Rómar var hon um fagnað af Segni forseta Ítalíu og ríkisstjórninni. Fagnaði forset inn honum með ræðu og kvað pílagrímsferðina sögulega hina þýðingarmestu og lofa kirkjunni hinum mesta framgangi. í svar- ræðu sinni sagði páfinn að hann kæmi heim með ógleymanlegar minningar og fullur geðshræring- ar. Hann hefði fariö í pílagríms- ferð til þess að mæta Kristi og verkum lians. Og nú er hann setti fætur sínar að nýju á ítalska jörð gæti hann sagt að ferðin hefði heppnast vel. Hann sagði frá þeim stöðum er hann hafði heimsótt og sagði: Aðeins Jesús er frelsi, orð hans er sannleiki og ást, í hans orðum eru svörin við öllu því ó- vænta og óvissa er í mannkind- inni opinberast- í hans vilja, sem móttekinn er mótþróalaust, ligg- ur leiðin til friðar í heiminum, sagði páfi að lokum. Óspektir í Hafnarfirði Reykjavík, 6. jan. - KG í KVÖLD voru mikil skríls- læti í unglingum í Hafnar- firði. Söfnuðust unglingarn- ir saman I miðbænum, fóru um með hrópum og köllum, báru tunnur og drasl út á göturnar, klifruðu upp um Sþ-eftirlitsnefnd fer til Kýpur Myndirnar eru teknar af óspektimum á Strandgötu. Þegar ungling- arnir urðu varir við ijósmyndara blaðsins, hugðust þeir gera aðsúg að bílnum, sem hann var í (Myndir: J. V.) NICOSIA 6.1 (NTB-Reuter). Lögreglan í hinum tyrkneska bæj arliluta hér handtók í dag þr^< póstmenn úr hinum griska bæjar- hluta, er þeir komu á aðalpóst- húsið til að sækia frímerki. Starfs mennirnir komu til pósthússins: undir sterkri brezkri lögreglu- vernd og voru handteknir er þeir ætluðu inn í pósthúsið. Þeir voru látnir lausir þrem tímum síðar. Ekki hefur verið tilkynnt uin aðra atburði af alvarlegra tagiau á Kýpur í dag. Málsvari Makariosar erkibisk- ups og forseta skýrði frá því í dag að hann hefði þegið boð um að Sþ sendu eftirlitsmann til Kýpur. Verður U Thant tilkynnt um á- kvörðun þessa í London segja á- byrgir aðilar að vonast sé til þess að eftir viku til tíu daga verði komin í gang ráðstefna um Kýpur málið- Bezka stjórnin hefur sam- band við grísku og tyrknesku ríkisstjórnirnar um framvindu málsins og ennfremur við full- trúa þjóðarbrotanna tveggja á Kýpur. Áætlað er að ráðstefnan fari fram í London. í Ankara er sagt að búizt sé við að hún hefjist þann 13. janúar. Ismet Inönu for- sætisráðherra Tyrklands sendi i dag skeyti til foþsætisráðheijra allra Þjóða þar sem segir að morð- in á Tyrkjum á Kýpur hafi sett í gang keðju atburða og tilgang- urinn sé að eyða með öllu tyrkn- eska minnihlutanum. Hann óskar þess að á laggirnar verði sett hlutlaus nefnd er fannsaki at- þurðina á Kýpur. Það er ríkis- stjórn Makariosar sem völd er að hinu hryggilega ástandi á eynni, segir ráðherrann. Tyrkn- eski utanríkisráðherrann Moyin sagði í þinginu í dag að Tyrkir myndu ekki taka þátt í Lundúna ráðstefnunni til þess að bregða þerripappír á áætlanir Makarios ar erkibiskups. húsveggi, réðust á bíla og gerðu ýmsan óskunda. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Hafnarfirði hófust læti þessi á níunda tímanum. Ekki var neitt sér- stakt tilefni til óláta þessara að því að séð var. Taldi lög- reglan, að unglingar þessir væru á aldrinum 9-16 ára og jafnvel einhverjir eldri. Ekki var liér um drykkju- læti að ræða en þó munu ein hverjir hafa verið undir á- hrifum áfengis. Mál þessara órósömu ung- linga er ákaflega vandmeð- farið fyrir lögregluna, því að ekki má setja þá inn, þar sem flestir eru undir lögaldri. Ekki er heldur hægt að keyra þá heim, vegna þess hve lög- reglan er fámenn og hætta á að stórspjöll væru unnin á meðan lögreglan er eklú nálæg. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar tók unglinga- múgurinn allskonar drasl, tunnur og yfirleitt allt laus- legt og bar það út á götu, ýttu mannlausum bílum um göturnar, klifruðu upp uni húsveggi og sáu yfirlcitt ekk- ert það í friði, sem þeir réð'u við Ekki er vitað um neinar stórskemmdir, en ekki eru ennþá öll kurl komin til graf ar. Nokkrir unglinganna voru keyrðir heim og foreldrarnir látnir sækja nokkra. IHMMUtMUMMUMtMMMHtt ALÞÝÐUBLAÐIO 7. jan. 1964 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.