Alþýðublaðið - 07.01.1964, Blaðsíða 6
r^iiiiiiiiMiii»ii»iiiiiiiiiiiiiiui»tin»iiM«MiMi»Miiiiiiiiminiiiimiiiiiiiii»i»ii»iii»iMinii«t»«*M«««>n*«i»i
Stjörnurnar kvikna hver á
fætur annarri á himni kvik-
myndanna, sumar vara lengi,
en aðrar hverfa og gleymast
eftir skamman tíma. Suzanne
Pleshette heitir sú af ungu
leikkonunum í Hollywood, sem
einna mesta athygli vekur um
þessar mundir. Ef til vill staf-
ar það af því, að leikarinn
Troy Donahue hefur litið hann
hýru auga, eii einnig geðjast
áhorfendum vel að útliti henn
ar og gáfulegum leik.
Suzanne lék til dæmis í
Hitchock-kvilunyndinni ,Fugl-
arnir.’ Troy kynnist hún, þeg-
ar verið var að taka myndina
„Ævintýri í Róm” og síðan
hafa þau verið mjög góðir
vinir, að ekki sé meira sagt.
Suzanne hefur þegar sagt álit
sitt á karlmönnum yfirleitt:
— Heimilislegir menn eru
Atriði úr nýjustu mynd Suzanna, „Hljóðmúrinn“. Þar leik-
nr hún með Ty Hardin.
þægilegastir, segir hún, — og
fallegir menn eru ekki eins
spennandi, þegar til lengdar
lætur. Mín reynsla er sú, að
þeir séu oft leiðinlegir og eyði
alltof miklum tíma í að dást
að sjálfum sér fyrir framan
spegil. Nei, má ég þá heldur
biðja um ósköp venjulegan
mann, sem hegðar sér eðli-
lega. Þar að auki eru þeir oft-
ast miklu athyglisverðari en
hinir laglegu menn, sem vilja
helzt tala um sjálfa sig. Lítum
bara á einn laglegan, sem
gengur inn í næturklúbb! —
Hárið á honum glansar af
briliiantíni og hann lagar á
sér slipsið og lítur snöggt í
kringum sig, til þess að gæta
að, hvort kvenfólkið hafi ekki
tekið eftir honum!
Suzanne Pleshette er fædd
í Brooklyn 31. janúar fyrir um
það bil 25 árum. Rétt fæðing-
arár hennar fæst hún ekki
með nokkru móti til að gefa
upp. Faðir hennav • ar for-
stjóri kvikmyndahú ■ >g Suz-
anne hitti marg stórar
stjörnur, þegar hún • r að al-
ast upp, sérstakh i þegar
frumsýningar voru ' aldnar í
kvikmyndahúsi föður hennar.
Þessi kunningsskapur hennar
við þekktar kvikmyndastjörn-
ur, samfara sterkum vilja til
þess að gerast leikkona, varð
til þess, að henni var veitt
tækifæri á Broadway. Hún stóð
sig vel, gerði samning við
siónvarp og hafði komið þar
fram 200 sinnum, þegar lienni
var boðið að leilca í myndinni
„Geisha Boý” með Jerry Lew-
is. Sú mynd heppnaðist svo
vel, að Suzanne fékk strax
hlutverk í nýrri mynd. Hún
er þegar orðin þekkt kvik-
myndastjarna, þótt hún hafi
aðeins leikið i þrem myndum.
Næsta mynd liennar verður
„Hljóðmúrinn” og þar leikur
hún með Ty Hardin.
dargt er skrýtið í kýrhausnum og öðru-
vísi en búizt er við. Og oftast kemst það ekki
upp fyrr enn á elleftu stundu, eins og sjá má
til dæmis í eftirfarandi smáklausu, sem við
rákust nýlega á:
Fyrir nokkrum árum reyndi Rúmeni að
svipta sig lífi með því áð skjóta af skamm
byssu nokkrum skötum vinstra megin í
brjóst sitt. Komið var að honum og var
honum samstundis ekið snarlega á sjúkrahús. Þar komuzt læknarnir
að raun um sér til mikillar undrunar, að hjartað í honum var hægra
megin!
í Hoboken fékk maður nokkur tafarlaust
skilnað við konu sína, sem hann hafði ný-
kvænzt. Maðurinn var 57 ára gamall, grand
var í hvívetna og mátti ekki vamm sltt vita.
Skilnaðarorsökin var svohljóðandi:
Konan hans kvaðst eiga stðlpaðan son, sem
hún vildi hafa hjá sér, en af tilviljun komst
maðurinn að því, að hér var um fyrrverandi eiginmann konunnar að
ræða!
Hestamaðvr nokkur stóð upp við klárinn
sinn og gaf honum heytuggu úr litlum poka.
Skammt frá stóð annar maður og horfði á
og tuldraði í barm sér um leið og hann hristi
höfuðið í sífellu:
— Þetta getur aldrei gengið.
Þetta tautaði maðurinn aftur og aftur og
loks missti hestamaðurinn þolinmæðina með
öllu. Hann sneri sér snöggt við og spurði ævareiður:
— Hver. fjandinn er það, sem getur aldrei gengið?
Maðurinn svaraði með hægð: '
— Þér komið aldrei svona stórum hesti ofan í þetta litla poka
ræksni.
Margar sögur eru sagðar af orsökum hjóna
skilnaði. Hér kemur önnuh til viðbótar, einnig
frá Amer/ku.
Ung kona krafðist skilyrðislaust skilnaðar
við mann sinn og var orsökin sú, að hann
vildi éndiiega herða hana undir næsta sum-
arléyfi, sem þau höfðu ákveðið að eyða í
tjaldi. Hann bjó hana undir væntanlegt sum
arleyfi á svofelldan há,tt: Á hverri nóttu,
meðan hún svaf, læddist hann að rúmi hennar með fulla fötu af
ísköldu vatni, og hellti úr henni yfir höfuðið á herniil
$ 7. jan. 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ
! HÉR 06 ÞAr{
Nú eru liðin 38 ár síðan
franski tónsmiðurinn. Satie lézt.
Samt sem áður er hann jafnan
talinn í hópi frumlegustu nútíma-
höfunda.
Fyrir skömmu var píanóverk
hansK „Vexations” frumflutt í New
York. Flutningurinn tók 18 tíma
og 10 píanóleikarar fluttu verkið.
hver á fætur öðrum. Áhorfendur
höfðu vitaskuld engan til að leysa
sig af, enda reyndist það svo, að
ékki voru nema þrír eftir í salmun
þegar tónleikunum lauk-
☆
í Stavropolhéraði í Rússlandi
hefur bónda einum tekizt að rækta
það, sem liann kallar tveggja
hæða ávaxtatré. Efri hluti trés-
! ins ber sítrónur en hinn neðri
i appelsínur.
Á þessum slóðum eru mönnym
veitt bæði appelsínuverðlaun og
sítrónuverðlaun, en hér reis upp
vandamál um það, hvor þeirra
bóndinn ætti að fá. Til þess að
losna við að veita lionum tvenn
verðlaun fyrir aðeins eitt tré, —
fundu þeir upp það snjallræði,
, að veita lionum sérstök „Krús-
tjovs-verðlaun.”
☆ ^
í mörg herrans ár hefur hár-
sléttun verið lrelzti starfi hár-
greiðslumanna á liárgreiðslustof-
; um í hinum svonefndu „svörtu”
hverfum bandarískra borga. Nú
er kominn mikill afturkippur "f
þá starfsemi, núna láta svörtu
konurnar hins vegar stuttklippa
sig og kauna sér síðan sléttlrærð-
ar hárkollur.
Þessar hárkollur eru miög ó-
dvrar, framleiddar úr nlasti með
vólum. Hinar betur stæðu negra-
konur fá sér hins vegar hand-
i gerðar hárkollur úr raunverulegu
■ mannshári, sem aðallega kemur
frá Þýzkalandi, Frakklandi og
: Rússlandi. Ein sÞ'k hárkolla kost-
; ar um það bil 20 þús. ísl. kr., sVo
að það er nokkuð dvrt garnan, ef
maður vill eiga eitthvað til skipt-
anna.
'~r ☆ ^
Dýrasti siónvarnsbáttur, sem
um getur, er í bann veginn að
leggja upp launana lanet um aldiu*
fram, vegna bess. að ætlunin var
að hann genei í fimm ár. en hann
hafði aftur á móti nvhafið göngu
sína, þegar hætt var við hann.
Stjórnandinn var bó ekki áf
verri endanum, s.iálfur Jerry
Lewis. Auglýsendumir, sem stóðu
að þættinum komust- að þeirri nið
urstöðu, að það mundi borga sig
betur að borga Jerry umsamda
upphæð út í hönd heldur en láta
þáttinn ganga áfram.
Bandaríkjamenn hafa reiknað
það út, að venjulegur maður eyði
139 dögum ævi sinnar í það að
raka sig og fjarlægl á þessum
tíma 11 metra af skeggi.