Alþýðublaðið - 26.01.1964, Side 14
Ja, mikið þótti mér gaman
að sjá mynd af mér í Morg-
unblaðinu. En ég verð nú
ekki níræður fyrr en í næsta
mánuði.
Kvæðamannafélagið Iðunn
Aðalfundur verður í Edduhúsinu
í kvöld kl. 8.
SKIPAFERÐIR
Hafskip h.f.
Laxá er í Hamborg. Rangá er í
Reykjavík. Selá fór frá Hull 23.
til Reykjavíkur. Spurven er í R-
vík. Lise Jörg er í Reykjavík,
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.
Katla lestar á Austfjörðum. Askja
er á leið til Reykjavíkur.
LÆKNAR
Kvöld- og næturværður E.B. f ðaz
Kvoidvakt kl. 18.00-00.30. Á kvöld
vakt: Víkingur Arnórsson. Kætur-
vakt: Lárus Helgason.
FLUGFERÐIR
Flugfélag íslands h.f.
Skýfaxi fer á morgun til Glasgow
og Kaupmannahafnar kl. 08.15.
Vélin er væntanleg þaðan aftur á
þriðjudaginn kl. 16.00.
Innanlandsflug: í dag er áætlað
að fljúga til Akureyrar og Vest-
mannaeyja. Á morgun til Vest-
mannaeyja, Akureyrar, ísafjarðar
og Hornafjarðar.
MESSUR
Neskirkja
Messa kl. 2 e. h. Séra Frank M.
Halldórsson.
Fríkirkjan
Messa kl. 5. Séra Þorsteinn Björns
son.
Hallgrímskirkja
Barnaguðsþjónusta kl. 10 f. h.
Messa kl. 11. Séra Sigurjón Þ.
Árnason. Messa kl. 2 e. h. Séra
Kristinn Stefánsson.
Kálfatjörn
Messa kl 2. Séra Garðar Þorsteins
son.
Háteigsprestakall.
Messa í Hátíðarsal sjómannaskól-
ans kl. 2. Barnaguðsþjónu.sta kl.
Ásprestakall
Messa í Laugarneskirkju kl. 5
Séra Grímur Grímsson.
Kirkja óháða safnaðarins
Messa kl. 2 e. h. á sunnudag. Séra
Emil Björnsson.
Kópavogskirkja
Messa kl. 2. Gunnar Árnason.
KLIPPT
SIMABLAÐIÐ
1963
2, Guð; un 0<vuur<áúUu\ er Boíj. sagði • \
: hetmi v-ig KjaHans.
mMmSttlÍliM
Nú fylkja allir flokkar liði sínu
til fundahalda, suður í Reykjavík.
Á Alþingi slær en í hvassa brýnu,
þótt enginn skilji þessa pólitík.
Þar allt er verst, sem andstæðingar gera,
en enginn galli á störfum samherjans.
Hér gildir það „að vera, eða ekki vera“.
Hvað varðar þá um mannorð náungans?
KANKVÍS.
Aðven'kirkjan.
Guðsþjónusta kl. 5 síðd. Sveinn D.
Jóhansen talar um efnið: Undra-
lækningar.
Laugarneskirkja
Messa kl. 2 e. h. Barnaguðsþjón-
usta kl. 10.15 .f h. Garðar Svavars
son.
Grensásprestakall
Breiðagerðisskóli. — Sunnudaga-
skóli kl. 10.30. Messa kl. 2 á sama
stað, Felix Ólafsson.
Langholtsprestakall
Barnaguðsþjónusta kl. 10.30.
Messa kl. 2. Settur dómprófastur
séra Óskar J. Þorláksson setur
séra Sigurð Hauk Guðjónsson inn
í embættið. Safnaðarnefndin.
Frá Slysavarnarfélagi ísiands. Ný
lega barst Slysavarnarfélagi ís-
lands gjöf frá Hákoni Kristjáns-
syni Eskihlíð 13 til minningar um
Elísabeti Jónsdóttur konu hans
sem lézt í bílslysi 28.1 1963 og er
gjöfin að upphæð kr. 50.000.00
Minningarspjöld fyrir Innri-Njarð
víkurkirkju fást á eftirtöldum
stöðum hjá Vilhelmínu Baldvins
dóttur Njarðvíkurbraut 32 Innri-
Njarðvík og Jóhanni Guðmunds
syni, Klapparstíg 16, Ytri-Njarð-
vík, og Guðmundi Finnbogasynl
Hvoli (Tjarnargötu 6).
a
Sunnudagur 26. janúar.
8,30 Morgunútvarp.
11.00 Messa í Hallgrímskirkju. Prestur: Séra Sig
jón Þ. Árnason. — Organleikari: Páll Hall-
12.15 Hádegisútvarp.
13.15 Hverasvæði og eldfjöU; III. erindi: Eldfjöll
á Kili (Guðmundur Kjartansson jarðfræðing
ur).
14.00 Miðdegistónleikar.
15.30 Kaffitíminn.
16.20 Endurtekið efni: a) Níels Dungdal prófessor
svarar spurningum á blaðamannafundi, sem
dr. Gunnar G. Schram stjórnar. Aðrir spyrj-
endur: Indriði G. Þorsteinsson og Magnús
Þórðarson. (Áður útv. á mánudaginn var).
b) Irma Wile Jónsson flytur erindi með tón-
17.30 Barnatími (Helga og Hulda Valtýsdætur).
18.20 Veðurfregnir.
18.30 „Ég vildi að sjórinn yrði að mjólk“: Gömlu
lögin sungin og leikin.
19.00 Tilkynningar. — 19.30 Fréttir.
20.00 Músikþættir eftir Hellmesberger og Strauss
(Hljómsveit Hermans Hagestedt leikur).
20.15 „Tónninn", smásaga eftir Kolbein frá Strönd
(Haraldur Björnsson leikari).
20.35 „Konungur flakkaranna", óperettulög eftir
Rudolf Friml (Mario Lanza og Judith Raskin
syngja).
21.00 „Hver talar?“, nýr þáttur undir stjórn
Sveins Ásgeirssonar hagfræðings.
22.10 Syngjum og dönsum: Egill Bjamason rifjar
upp íslenzk dægurlög og önnur vinsæl lög.
dæmum: Svipmyndir frá París, höfuðborg tón 22.30 Danslög (valin af Heiðari Ástvaldssyni).
listarinnar (Áður flutt í júlí 1961). 23.30 Dagskrárlok.
Uppreisn
Framh. af bls. 16.
settir á land í Mombasa í Kenya.
Þeir voru um borð í herskipun-
um „Centaur” og „Owen”, sem
hafa legið í marga daga fyrir ut-
an innsiglinguna til Mombasa.
Skipunum var sagt að lialda til
austurstrandar Afríku eftir bylt-
inguna í Zanzibar fyrir hálfum
mánuði.
í nótt var byrjað að flytja 800
liermenn frá flugstöðvum í Bret-
landi til Kenya og fóm 47 her-
menn með fyrstu vélinni. 14 flug-
vélar af Brittannica-gerð, munu
flytja hermennina.
Samkvæmt óstaðfestum fréttum
mun einnig hafa komið til óeirða
í búðum annars herflokks úr fót-
gönguliðinu í útjaðri Nairobi.
Formælendur brezka hersins
sögðu í nótt, að einn innfæddur
hermaður hefði beðið bana og
annar særzt í óeirðunum í Lanet
herbúðunum.
Þetta er önnur uppreisnin í
Tanganyika í þessari viku. Fyrri
uppresnin var gerð 20. janúar.
Þá kom til óeirða í Dar-Es-Sal-
aam, en þegar brezkar hersveitir
liöfðu verið sendar á vettvang að
beiðni Nyermere forseta, tókst
að koma aftur á lögum og reglu
strax daginn eftir.
Samkvæmt síðustu fréttum í
morgun er nú allt með kyrram
kjörum á Dar-Es-Salaam. Aðeins
var skipzt á skotum stutta stund
við afrísku hermennina. Þrír af-
rískir liermenn féllu, en ekkert
mannfall varð í liði Breta.
★ UGANDA-HERMENN f
SETUVERKFALLI.
Frá Nairobi berast þær fréttir
í morgun, að ástandið sé með
eðlilegum hætti.
Aftur á móti er talið í Uganda,
að fleiri brezkir hermenn hafi
verið sendir til Jinja þar sem
afrískir hermenn geðu uppreisn
á fimmtudag til þess að fá launa
hækkun. Seinna hafa þessir her-
menn gert setuverkfall og yfir-
völdin í landinu óttast að verk-
fallið breiðizt út.
Kl., 6 í morgun (ísl. tími) til-
kynnti brezka samveldismálaráðu-
neytið að landganga hermann-
anna hefði gengið að óskum. —
Hernaðaraðgerðin gekk mjög
greiðlega og ekki kom til teljandi
vopnaviðskipta.
SIGRAÐI
Framhald af 16. síðn.
keppt er um titilinn skákmeist-
ari skólans.
— Hver varð skákmeistari
skólans í ár?
— Hann heitir Bragi Kristj-
ánsson og er í 5. bekk mála-
deildar.
— Átti Caissa hlut að fjöl-
teflinu við Wade í gær?
— Já, ég held ég megi segja
það. En annars mun Wade
hafa boðizt til að tefla fjöl-
tefli við nemendur, eins og
hann gerði einu sinni fyrir
allmörgum árum, þegar hann
var hér.
— Og þú sigraðir Wade?
— Jó, ég gerði það nú. Svo
töluðum við svolítið við hann
á eftir og vorum að þakka hon-
um fyrir þetta, og hann sagð-
ist halda, að þetta væri betri
árangur en í fyrra skiptið, sem
hann tefldi í skólanum, f
bæði skiptin unnu nemendur
6 skákir, en hann sagði líka,
að sér hefði farið fram síðan.
— Og þú vannst Tal í Hafn-
arbúðum?
— Já, en það var meiri
lieppni í það skipti. Aftur á
móti fannst mér ég eiga fylli-
lega skilið að vinna Wade. Eg
fórnaði drottningunni, og
hann gafst upp.
— Og hvað finnst þér svo,
ef þú berð þá saman?
— Mér finnst Tal ekki tefla
eins vel og Wade. Hann lék
amk. þrisvar sinnum af sér að
mínum dómi, en ég sá ekki,
að Wade léki af sér í neinum:
einstökum leik.
— Hefurðu áður teflt við svo
fræga skákmenn?
— Eg tefldi stundum við
Friðrik Ólafsson, en það er
orðið nokkuð siðan ég gerði
það síðast.
— Og þá heldurðu auðvitað
áfram að tefla?
— Já, áreiðanlega geri ég
það.
VEÐRIÐ í GÆR OG SPÁIN í DAG:
Veðurhorfur: Sunnangola eða kaldi, rigning eða
súld. Hiti 6 — 7. í gær var suðaustangola, hiti
um frostmark.
Samvizban, sagði
kennarablókin
mín. Djöfull geta
menn verið gamal-
dags.
14 26. jan. 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ