Alþýðublaðið - 19.03.1964, Blaðsíða 9
Það er ínannsöfnuður við setningn nýja bátsins.
,/ítlafi Copcc
Loftþjöppur og verkfæri
reynast bezt
ur kom aftur undan var hann
tekinn og settur fram fyrir og
þannig koll af kolli. Þetta eru
eins og allir vita vísindaleg alda-
mótavinnubrögð, og þar sem eng-
in dráttarbraut er, verða menn
að nota sér reynslu kynslóðanna
í sjósetningu nýsmíðaðra bóta.
Loks.er báturinn kominn á flot
að framan og svo er hann á floti
aftur undir miðju og bráðlátur
skipsmaður stekkur um borð og
upp á hvalbakinn á skipinu. Það
sígur strax niður og stendur í
botni. Nú sýnir skipstjórinn hvað
í honum býr og eys sér yfir há-
• seta sinn með ósviknu formanns-
orðbragði, sem slíkur myndug-
leiki fylgdi að hinn lét af til-
raunum til að sökkva skipinu áð-
ur en það var eiginlega komið á
flot. Og svo fór það ó flot, mann-
skapurinn um borð og nýr bátur
rennir úr höfn með fullri áhöfn
og stoltu skriði.
Kannski hefur það verið vegna
þess, að tveir 13 ára menn settust
stjórnborðsmegin, en tveir 11 ára
bakborðsmegin, að báturinn hall-
aðist ískyggilega í stjór, annars
voru fimm á, því að venjan er
að bjóða „reddaranum” með í
reynsluferðina. Ágúst Karl Guð-
mundsson kraup frammi á. hval-
bak og gætti stefnunnar.
Árar eru í keipum og það er
róið að nýja grandanum, þar sem
uppfyllingin á að koma. Reynslu-
ferðinni er lokið og báturinn
reynist þéttur að mestu, gang-
hraði er óviss, enda móti vindi
og falli að sækja og barningur
er eins og allir vita, ómark, þeg-
ar dæma á um sjóhæfni og gang-
hraða báta við eðlilegar aðstæður.
Eg reyni að ná tali af skipstjór-
anum, en hann er upptekinn við
ýmislegt smávegis, svo sem eins
og lagfæringar á veiðarfærum,
huga að fangalínu og öllu þessu
sem fylgir nýstofnaðri útgerð.
Hann er ekki í skapi til að tala
við blaðamenn og sendir fulltrúa
sinn, Guðmund Karl Tómasson,
til viðtalsins.
Guðmundur er sem fyrr segir,
tólf ára gamall og sonur Tómasar
Guðmundssonar rafvirkja og frú
Ingeborgar Guðmundsson, þeirrar
Framh. á 10 síðu.
Hafið samband við oss, ef yður vantar
loftþjöppur eða loftverkfæri!.
'Borstál — Lofts'löngur — Slöngutengi
og fleira oftast fyrirliggjandi.
EINKAUMBOÐ FYRIR
JítíasCopco
VERKFÆRI
O G
ÞJÖPPUR
/7 s A N D V 1 K .
Laromcutb
BORSTAL OG BORKRONUR
Landssmiðjan
SIMI 20680.
ALþÝÐUBLAÐiÐ — 19. marz 1964 $