Alþýðublaðið - 19.03.1964, Blaðsíða 3
„Tyrkir nær alls
staðar umsetnir
* \\
Nikosia, 18. marz
(NTB-Reuter)
FORINGI tyrkneskra Kýpurbúa,
Fadil Kutchuk varaforseti, segir
í skeyti til U Thant, aðalfram-
kvæmdastjóra SÞ, að tyrkneskir
Kýpurbúar séu umsetnir nær
hvarvetna á eynni.
í skeytinu eru ásakanir í garð
vopnaðra, grískra hryðjuverka-
manna. Þeir eru sagðir hafa kom-
ið upp vegatálmunum og ræna, of-
sækja og auðmýkja tyrkneska
Kýpurbúa. Á mánudag hafi þeir
heft för tyrkneska sendiherrans
við vegatálma.
Sinfóníutónleikar
í kvöld:
Reykjavík, 18. marz - KG
BANDARÍSKI hljómsveitarstjór-
inn Igor Buketoff hefur nú tekið
við stjórn Sinfóníuhljómsveitar-
innar og mun hann stjórna þeim
f jórum tónleikum, sem eftir eru á
vetrinum. Fyrstu tónleikarnir,
sem hann stjórnar eru í Háskóla-
bíói á morgun fimmtudag.
Einleikari með hljómsveitinni
verður austurríski píanóleikarinn
Alfred Brendel og leikur hann
píanókonsert nr. 4 eftir Beet-
hoven.
Brezkur formælandi sagði í dag,
að í nótt hefði verið skipzt á
mörgum skotum í bænum Ktima
á Norður-Kýpur. Hann taldi hins
vegar, að misskilningur hefði
valdið skothriðinni.
í New York eru bornar til baka
fréttir um, að Kanadamaðurinn
E. Burns hershöfðingi, fyrrver-
andi yfirmaður gæzluliðs SÞ í
Gaza, verði sennilega sáttasemj-
ari SÞ á Kýpur. Einnig er því
neitað, að til mála komi að Harry
S. Truman fyrrum forseta verði
falið þetta starf.
Vestur-þýzka stjórnin hefur
heitið 2 millj. marka framlagi til
gæzluliðs og á danslca þinginu
hefur verið stungið upp á 500 þús.
króna framlagi. Sveit Svía í gæzlu
liðinu, sem í verða 700 menn,
verður sennilega tilbúin 10. apríl
Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum í Nikosíu, að Kypri-
anou, utanríkisráðherra Kýpur,
haldi til New York í vikunni að
ræða við U Tliant um samstarf
Kýpur-stjórnar og gæzluliðsins.
AFP hermir, að enn sé mjög ó-
Ijóst hvaða hlutverki SÞ eigi að
gegna á Kýpur. Blöð tyrkneskra
Kýpurbúa segja, að starf SÞ muni
mistakast ef yfirmaður SÞ-gæzlu-
liðsins, Gyani liershöfðingi, telji
Kýpur-stjórn og öryggissveitir
hennar löglegar. Grísk blöð á
Kýpur saka Breta um að vera
hlynnta því, að SÞ-Iiðið fái heim-
ild til að svipta stjórn Makaríosar
öllum völdum sínum.
★ KROFU HAFNAÐ
HEIDELBERG, 18. marz (NTB-
Rcuter) — Rússar liöfnuðu í
dag nýrri kröfu Bandaríkja-
manna um, að særður banda-
rískur flugmaður, sem skotinn
var niður ásamt tveim öðrum
Bandaríkjamönnum í flugvél
yfir Austur-Þýzkalandi 10.
marz, yrði framseldur.
★ STÚDENTAR REKNIR
MADRID, 18. marz. (NTB-AFP)
Rúmlega hundrað spánskir
laganemar, sem náðu fyrirlestra
sal í lögfræðideild Madrid- há-
skóla á sitt vald á laugardag-
inn, hafa verið reknir úr há-
skólanum, að því er tilkynnt
varl í dag.
★ SOVÉZK fjármálaspilling
MOSKVÚ, 18. marz (NTB-Reu-
ter) — Áreiðanlegar heiinild’r
hermdu í dag, að dómstóll í
Moskvu hefði dæmt einn mann
til dauða og 12 aðra í Ianga
fangelsisrefsingu fyrir fjár-
liagsafbrot,
Höfuðpaurinn, Arkadij Gru-
senberg, sem var dæmdur til
dauða, var Gýðingur, segja
heimildir. „Glæpaflokkurinn”
mun hafa stolið ull í Síberíu
og flutt hana til Lvov I Vestur-
Úkraínu, þar sem framleidd var
ýmis konar ullarvara, sem
seinna var seld í Úkraínu,
Hvíta-Rússlandi og rússneska
sovétlýðveldinu. Glæpaflokk-
urinn mun hafa grætt 300 millj.
(ísl.) króna.
★ NÝTT GEIMFAR
MOSKVU, 18. marz (NTB-
Reuter) — Rússar skutu í dag
nýjum ómönnuðum gervi-
hnetti út í geiminn. Þetta er
einn af Kosmos-gervihnöttun-
um og kallast Kosmos 26.
★ BEHAN DAUÐVONA
DUBLIN, 18. marz (NTB-Reu-
ter) — Læknar höfðu gefið upp
alla von í kvöld um að geta
bjargað lifi hins þekkta írska
leikritahöfundar Brendan Be-
han, sem legið hefur rænulaus
að mestu í viku.
Leikritaskáldið, sem er 41
árs og þekktast fyrir óhóflegt
líferni, þjáist af sykursýki,
sem hann hefur haft litlar á-
hyggjur af. Auk þcss þjáist
Bchan af gulusótt.
★ ALBANI REKINN
VÍN, 18. marz (NTB-Reuter) —
Ungverska stjórnin vísaði úr
landi í dag albönskum dipló-
mat, sem var ákærður fyrir
ólögleg afskipti af innanríkis-
málum Ungverjalands, að sögn
fréttastofunnar Itiin. Nánari
upplýsingar voru ekki veittar.
FRÉTTIR í STUTTU MÁLI
Á mánudag kom hingað til
Reykjavíkm- norsk kona, He-
lene Andersen, deildarstjóri
í menntamáladeild norska ut
anríkisráðuneytisins Var hún
á leið til Bandaríkjanna og
hélt vestur um haf í gær-
kvöldi, en hafði þá dvalizt
liér tvo daga í boði mennta-
málaráðuneytisins, sem hef-
ur átt við Iiana margvísleg
viðskipti á undanförnum ár-
um, einkum í sambandi við
norræna samvinnu. í gær
heimsótti hún Alþingi,
hlýddi á umræður og kynnti
sér þingstörf. Myndin var
tekin í Alþingishúslnu við
það tækifæri, og sjákt frá
vinstri: Friðjón Sigurðsson,
skrifstofustjóri Alþingis,
llelene Andersen og Birgir
Thorlacius, ráðuneytisstjóri.
(Mynd: J. V.)
EX MILUÓNIR FRAKKA
0
MÓTMÆLAVERKFALLI
París, 18. marz (NTB-Reuter)
NÆR sex milljónir manna hófu
verkfall í dag í mótmælaskyni
við stefnu stjórnarinnar í launa-
málum. Orlyflugvelli var lokað
vegna verkfallsins, víða hafa járn-
brautasamgöngur lagzt niður,
birgðir vatns, gass og rafmagns
hafa minnkað, skólar voru auðir
og póstur barst ekki.
WWWWtWWWMMMWMW»
Rætt við Gromyko
um horfnu Svíana
nvmwwwwwmmMvwmuMHtwwwtwvmmvmwttiM
Stokkhólmi, 18. marz (NTB).
Sænska stjórnin hefur gert
frétJr um Svía, sem horfnir eru
í Sovétríkjunum, að aðalatriði í
pólifllskum viðræðum við utan-
ríkisráðherra Sovétríkjanna, Andr
ei Gromyko, sem er í opinberri
heimsókn í Svíþjóð.
Torsten Nilsson utanríkisráð-
herra bar mátið fyrst upp í 3ja
klukkustunda viðræðum við Gro-
myko í gær. Erlander forsætis-.
ráðherra tók þetta mál aftur fyrir
í viðræðum við Gromyko í dag.
Fullvissaði sovézki utanríkisráð-
herrann þá lun, að sovézka stjórn-
in mundi gera allt sem í hennar
valdi s æði til þess að varpa ljósi
á máliö.
Erlander sagði að viðræðunum
loknum, að liann hefði gert grein
fyrir viðhorfum sænsku stjórnar-
innar til fi'éttanna um, að sjó-
menn á sænskum skipum, sem
sovézkir kafbátar sökktu á Eysíra-
salti í stríðinu, liefðu verið tekn-
ir til fanga.. Um þetta er m.a.
rætt I sovézkum stríðsheimildum,
og fyrir hálfum öðrum mánuði
beindi sænska stjómin þeim til-
mælum til Sovétríkjanna, að nán-
ari upplýsingar yrðu veittar um
þetta mál.
Erlander tók einnig fyir mál
sænska diplómatsins Raul Wallen
bergs, sem hvarf í Rúdapest í lok
stríðsins. Ástæða er til að ætla,
að sovézk heryfirvöld í Ungverj.i-
landi hafi tekið hann til fanga.
Rússar hafa sagt, að hann hafi
lá'.izt 1947. Hins vegar mun hann
hafa sézt á lífi í sovézkum fanga-
búðum eftir þann tíma.
Gromyko hét nákvæmri rann-
sókn á þessum málum, en lagði
áherzlu á að hún gæti tekið lang-
an tíma. Þess vegna er talið í
Stokkhólmi, að varla muni fást
nánari upplýsingar um örlög sjó-
mannanna áður en Krjústjov for-
I sætisráðherra kemur í heimsókn
til Svíþjóðár 22. júní Bollalagt er
hvort Krústjov muni ef til vill
varpa Ijósi á málið og sjá ef til
vill um, að þeir sjómannanna, sem
Frh. á 4. síðu.
Tugir þúsunda verkamanna í út-
borgum Parísar gátu ekki mætt
til vinnu en öðrum var ekið á
vinnustað í herflutningabifreið-
um. Nokkrir höfðu snjóinn að
engu og fóru fótgangandi í vinn-
una. Bílaumferð var ekki mikið
meiri en venjulega.
Verkalýðsfélögin segja, að
sennilega hafi þrjár milljónir
starfsmanna opinberra fyrirtækja
og um það bil álíka stór fjöldi
starfsmanna einkafyrirtækja lagt
niður vinnu. Örfáar lestir í útborg
um Parísar gengu, og sama máli
gegndi með neðanjarðarjárnbraut-
ir. Engin kvikmyndahús voru op-
in í París og ljóslaust var á kaffi-
liúsum. Flugfélögin skipuðu flug-
vélum sínum að lenda í Le Bour-
get. . $
Dóttir Conrads
✓
sendi F.l.
þakkarskeyti
Reykjavík, 18. marz - ÁG
FLUGFÉLAGI íslands barst
í dag eftirfarandi skeyti frá
Christine Conrad, dóttur
Max Conrad, sein nauðlenti
á Grænlandi í gærdag: —
„Thanks very much for keep
ing an eye on dad til they
picked him up. We are all
so grateful.
„Christine Conrad“.
Þetta hljóðar svo í laus-
legri þýðingu: Þakka ykkur
innilega fyrir að fylgjast með
pabba þar til þeir sóttu hann.
Við erum öll þakklát.
WMMWWWWMWMWMW
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 19. marz 1964
3