Alþýðublaðið - 16.07.1964, Page 7
«*WW>WMWWMWWMW»WWWWWWWiWmiW,VHWi<>
s t
M
Bindindisfélög ökumanna eru
starfandi víða um heim. Eru þau
oll í einu heimssambandi, Internat
jonal abstaning motorists associat
ión, IAMA. Norðurlandafélögin
cru í sambandi fyrir sig, Nordisk
union for alcoholfri trafik.
Mjög eru félög þessi misjafn-
lega fjölmenn. Langstærst er
sænska félagið, MotorfÖrarnas Hel
nykterhetsförbund, MHF, sem tel
ur nú um 200 þúsund félaga alls.
Norska félagið er einnig stórt,
nálgast nú 30 þúsund félaga. Hin
mun minni, einkum danska. ís-
lenzka félagið telur nú um
770 meðlimi í 13 deildum og f jór-
um allstórum hépum áhugamanna
auk dreifðra hópa um landið. í
Norðurlandssambandinu, NUAT,
munu nú vera alls um 250 þúsund
félagar. Auk þess eru og í sam-
bandinu tryggingarfélögin Ansvar
í Svíþjóð og Varde, sem hvort
tveggja eru bindindistryggingafé-
lög.
Mörg nefndra félaga hafa starf
að alllengi. MHF í Sviþjóð var
stofnað árið 1926, MA í Noregi
1928, DUAT í Ðanmörku 1930.
NUAT var stofnað 1934 og er því
30 ára á þessu ári. BFÖ var stofn-
að árið 1953, og er næst yngsta
félagið innan sambandsins. Yhgst
er sænsk-mælandi félagið í Finn-
landi. Tflgangur þessara félaga
má segja að sé þríþættur: 1. Vinna
að ÚLbreiðslu og og eflingu bind
indis almennt, m.a. í blöðum sín
um og samstarfi og vinsamlegu
sambandi við önnur bindindisfé-
lög. 2. Vinna að auknu umferðar-
öryggi og endurbótum á umferð
á öllum sviðum. Hver sá sem ger-
ist meðlimur í einhverju þessara
Framh. á bls. 10.
HRAÐAKSTUR
f ÚTLANDINU
MtWMWWUUHW
Það þykir nú ekki lengur tiðind
um saela, að fólk hér á landi taki
bíla sína með sér, þegar farið er
í skemmtiferðir til útlanda.
Þar eru víða hraðakstursbrau'ir
þar sem sjaldan er ekið undir 100
kílómetra hraða og gott betur þó
stundum. íslendingar, sem óvanir
eru svo góðum vegum hafa þá
flestir gaman af að láta gamminn
geysa og sjá hvað bíliinn getur
við góðar aðstæður.
Ei .t skyídu ferðamenu iaka mtBV
i reikninginn. Þau dekk, sem vffit -
ökum á að staðaldri, þott .góð séw,
eru að jafnaðl ekki gerð fyrir slík
an hraðakstur. Sérfræðingar tekjs*
venjuleg dekk þola 150 km. á ktst.
en aðeins þó skamman spöi. 'Ttf
lengdar má ökumaðurinn ekihi
aka hraðar en 120 km, á kiðt,
Dekki'aframíeiffendur um. ailaiik
heima hafa orffiff ásáttir um þess-
Framhald á 10. síffut
A ATTA TIMUM
Á tæpum átta klukkustundum,
cftir hádegi á föstudag urðu alls
scxtán árekstrar hér í borginni. Sé
reiknað með, að tveir bílar hafi
verið í hverjum árekstri, sem vafa
laust er ekki ofreiknað, hafa því
32 bílar skemmzt meira og minna
á þessum átta tímum.
Fróðlegt væri að vita hve tjón-
ið á þessum bílum hefur numið
miklu þsgar allt kemur til -alls,
en um það er ekki tölur að hafa,
því miður.
Það er lítil skemmd á bíl sem
kostar að minnsta kosti þrjú þús-
und krónur að fá lagfræða. Hafi
tjónið á hverjum bíl verið þrjú
þúsund krónur (sumir hafa ef til
vill skemmzt minna, en aðrir sjálf-
Framhald á 10. síffu
Hörmulegt slys varff fyrir skönimu á Norður-Sjálandi. Þar óku saman
tveir bílar af sömu gerff, Morris Mascot. Ökumenninir létu báðir
lífiff, þeir voru einir í bílunum, báðir 18 ára gamlir. Engin vitni urðu
að árekstrinum og ekki vitað hvernig tildrög voru.
ÞESSI mynd er tekin í brekkunni ofan ivið Elliðaárnar. Upp þessa brekku
fara allir bílar, hvort sem þeir æt^a norður til Alíureyrar, vestur á Isa-
fjörð, austur á Seyðisfjörð eða austur á Selfoss.
Þarna.fara fjölmargir hlaðnir flutningabílar, sem varla fara nema fetið
og halda fyrir aftan sig löngum röðum annarra bíla.
Aldrei'hefur umferðarsérfræðihgum borgarinnar dottið í hug, að láta
breikka veginn þarna í brekkunni, þannig að flutningabílar og vegagerðar-
tæki gætu ekið í sérstakri akrein, en önnur umferð gæti komizt greitt uþp
brekkuna, án þess að iverða fyrir töfum, eða hætta á framúrakstur í þe&s-
ari brekku, sem að sjálfsögðu er stórhættulegur.
Það þarf ekki spakan mann til að sjá að þarna þarf tvær akreinar upp,
en eina niður.
HEFUR UMFERÐARNEFND REYKJAVÍKUR MÆLT MEÐ ÚRBÖT-
UM Á ÞESSUM HÆTTULEGA STAÐ ? EF EKKI, HVERS VEGNA EKKI?
Það mundi ekki kosta nein ósköp að breikka veginn þarna um eiha bíl-
breidd til norðurs, en það mundi skana st-óraukið öryggi.
ALÞÝÐUBLAÐiÐ — 16. júli 1964 f