Alþýðublaðið - 16.07.1964, Blaðsíða 16
KNUD KAABER
SKÁLHOLTSHÁTfÐ ÁR-
LEGA HÉÐAN í FRÁ
Reykjavík, 15. júlí. — HP.
UM NÆSTU helgi, 18. og 19. júlí,
verður haldin Skálholtshátíð á
hinu fornfræga hiskupssetri, og
hefur nú verið ákveðið, að Skál-
holtshátíð verði haldin á hverju
ári héðan í frá sem næst 20. júlí,
en þá er Þorláksmessa á sumri,
sem var almennur hátiðisdegur um
allt Suðurland í fornum ,sið. Há-
tíðin um næstu helgi stendur frá
laugardagsmorgni til sunnudags-
kvölds, og verður helgihaldið aðal-
uppstaða hennar.
Biskupinn yfir íslandi, lierra Sig
urbjörn Einarsson, skýrði frá þessu
á blaðamannafundi i dag. Hann
gat þess, að slíkar hátíðir hefðu
verið haldnar um nokkurt skeið,
en að vísu legið niðri undanfarin
ár. Þegar Skálholtsfélagið hófst
handa um endurreisn staðarins,
var einn þátturinn í starfi þess að
efna árlega til Skálholtshátíðar, og
var sú fyrsta haldin 1949. Síðan
var haldin Skálholtshátíð ár hvert
til 1955, en síðasta stórhátíðin
var haldin á staðnum 1956 á 900
ára afmæli hiskupsstóls í Skál-
holti. Á þessum hátíðum kom í
ljós, að fólki var Ijúft að koma
þangað og rifja upp þær minning-
ar, sem við staðinn eru tengdar,
jafnvel þótt aðstöðu væri þá áfátt
til hátiðahalds í Skálholi. Siðan
1956 hafa byggingaframkvæmdir á
staðnum torveldað hátíðahald, en
21. júlí í fyrra var dómkirkjan,
sem verið hafði í smíðum í 7 ár,
vígð. Jafnframt var staðurinn þá
afhentur þjóðkirkjunni til umsjár
og umráða, og eins og áður er
sagt, hefur nú verið ákveðið að
halda þar hátíð árlega héðan í
frá.
Skálholtshátíðin 1964 hefst kl.
9 árdegis á laugardaginn með
klukknahringingu og morgunbæn í
kirkjunni, og kl. 12 á hádegi verð
ur aftur klukknahringing. Kl. 3
Framh. á bls. 13
^IÍPMÐID
Fimmtudagur 16. júlí 1964
Alþýðublaðið kos*t>
ar aðeins kr. 80.00 á
mánuði. Gerizt á-
skrifendur.
Rannsóknarferð
að Brúarjökli
mm
Reykjavík, 15. júlí.
Póst- og símamála-
stjórnin gaf í dag
út fjögur ný frí-
merki að verðgildi
50 aurar, 1 króna,
1,50 kr. og 2 krón-
ur. Þetta eru gull-
falleg merki, prent
uð hjá Couvoisier
S/A í La Chaux de
Fonds í Sviss.
Seldu plastílát
Reykjavík, 15. júlí, — HKG.
ÍFRIRTÆKIÐ Sigurplast h.f.
seldi plastílát fyrir fjórar milljón-
fir króna á síðastliðnu ári. Þar af
Yíoru 659.700 flöskur, 673,900 dós-
ir og 40,950 brúsar. Frá starfsemi
Þessa fyrirtækis segir í nýútkomnu
*Hí Félags íslenzkra iðnrekenda.
Sigurplast flytur inn þrjár teg-
<itndir af plasti, sem er ýmist hart
'eða lint og á misjöfnu verði. Dýr-
asta plastið er notað við fram-
leiðslu á glösum undir töflur.
Sigurplast h.f. framleiðir 40 teg.
af plastílátum, 12 tegundir af dós-
um, 14 tegundir af glösum og
flöskum auk fleiri tegunda af í-
látum.
12 manns er starfandi hjá Sig-
Framh. á bls. 13
Reykjavík, 15. júlí. — HKG.
JÖKLARANNSÖKNAFÉLAG ís-
lands gerir út leiðangur 'að Brúar-
jökli næstu daga. Með í ferðinni
verða dr. Sigurður Þórarinsson,
Jón Eyþórsson, veðurfræðingur,
Magnús Hallgrímsson, mælinga-
verkfræðingur og Magnús Jólianns
son, leiðangursstjóri.
í þessum leiðangri verða um 25
manns, og verður farið á tveim
bílum. Annars vegar er bíll undir
farangur leiðangursfólksins, hins
vegar langferðabíll frá Guðmundi
Jónassyni. í slagtogi með leiðangr-
inum verður og annar ferðahópur
frá Jöklarannsóknafélaginu, —
I átta manns, — sem ætlar sér að
vísu lengra en að Brúarjökli,
Þessi leiðangur er gerður út til
þess að kaníia það fyrirbrigði, sem
átt hefur sér stað þarna með jök-
ulinn, sem skriðið hefur langt
fram nú á stuttum tíma. Talið er
að þetta hafi byrjað í október í
haust eða jafnvel fyrr. Jöklarann-
sóknafélagið fékk menn af Héraðl
til þess að athuga þetta fyrst í
vetur og taka myndir, en síðan
fóru menn frá Jöklarannsóknafé-
laginu í nokkrar flugferðir yfir jök
Framhald á síðu 13.
Stal 60-70 þiís.
af hiísbóndanum
Reykjavík, 15. júlí. — HKG.
RANNSÓKNARLÖGREGLAN
í Reykjavík hefur handtekið 19
ára gamlan pilt, sem játað hefur
á sig þjófnað verðmæta upp á 60
til 70 þúsund krónur.
Maður týnist
af Herðubreið
'Wi'iWnMWWWVVVVVVHWAWAVWVVWVWVVWWVYWVWWWV
Reykjavík, 15. júlí. — HKG.
SÁ ATBURÐUR gerðist í gær-
morgun, að matreiðslumaðurinn á
Herðubreiö týndist af skipinu á
leiðinni frá Mjóafirði til Seyðis-
fjarðar. Er talið fullvíst, að hann
hafi fallið fyrir borð.
Herðubreið fór frá Mjóafirði kl.
7,20 í gærmorgun álciðis til Seyð-
isfjarðar í góðu veðri. Kom skipið
kl. 9,40 þangað, en um klukku-
stund síðar varð þess vart, að mat-
reiðslumaðurinn var liorfinn.
Þegar að var gætt, sást að sorp
fatan úr eldhúsinu var ekki á sín-
um stað og er talið, að matreiðslu-
maðurinn hafi ef til vill fengið
aðsvif og fallið útbyrðis, er jiann
var að liella úr henni. , I
Matreiðslumaðurinn hét Jón
Jónsson, Efstasundi 100, Reykja-
vík. Hann lætur eftir sig -upp-
komin börn.
* Verzlunareigandi í Reykjavík
sem rekur veiðarfæra- og vopna-
sölu, kom til lögreglunnar fyrir
skömmu óg kærði yfir því, að mað-
ur, sem hann hefði ráðið til a8
leysa af í sumarfríum hefði gerzti
fingralangur til bæði fjár og
gripa þar í verzluninni.
Við liúsleit hjá piltinum kom I
ljós, að grunur verzlunareigand-
ans var á sterkum rökum reist-
ur. Pilturinn hafði á hálfum öðr-
um mánuði krækt sér í 34,400 kr.
og yörur að verðmæti um 30 þús.
kr. Ýmist liafði pilturinn notfært
sér vörurnar sjálfur eða selt þær
svo sem byssur og veiðarfæri ým-
is konar. J
Pilturinn mun ekki liafa brot-
ið alvarlega af sér áður, — eu
málið er í frekari rannsókn.
KR VAMM E'BK
í GÆRKVÖLDI fór fram leikur i
I. deild. á Laugardalsvellinum milli
KR og íþróttabandalags Keflavík-
ur. Leiknum lauk með sigri KR,
3- mörkum gegn 2.