Alþýðublaðið - 17.07.1964, Page 10
jUtreiknaður
útsvarsstigi
Reykóavík, 16. júlí — GG.
SAMBAND íslenzkra sveitarfé-
lagra Iiefur gefið út offsetfjölrit-
aðan útsvarsstiga þann, er nú gild-
ir, eftir breytingar þær, sem gerð-
íir hafa verið á lögum um tekju-
stofna sveitarfélaga. Stigi þessi
teýnir útsvör á eignir milli 40.000,-
00 og 250.000,00 króna og tekjur
inilli lcr. 25.100,00 og kr. 248,-
000,00, svo og útsvör félaga af
tekjum frá kr. 1000,00 til 150.000.
f Útsvarsstigi þessi er notaður
við niðurjöfnun útsvara í öllum
sveitarfélögum á landinu. í hon-
um er gert ráð fyrir, að útsvar
imdangengins árs hafi verið greitt
fyrir áramót og komi því til frá-
(iráttar við niðurjöfnun. Þegar
^kattskrá hefur því verið gerð, er
■fannt að fletta upp í skalanum
utsvarinu og sparar það vafalaust
mjög mikla vinnu hjá svéitár-
félögunum.
J Fái sveitarfélög með því að
'b-----------:-----------------------
Bær milli vita
(Framhald úr Opnu).
ir að fara hjá starfsfólki annarra
stþðva.
jÉg get ekki betur séð en aff eini
f-jeyðfirðingurinn sem rekur sölt-
unarstöð á Seyðisfirði sé Viihjálm-
ur Jónsson, hitt eru allt spekúlant
ar að „sunnah”.
Draugabæirnir Vestdalseyri og
Hánefsstaðaeyrar eru svo kapituli
út af fyrir sig. Eyrarnar svököll-
uðu eru langt út með firðinum
sunnanverðum. Þar standa hús á
ormjórri fjöruræmu, en uppaf er
snarbrött hlíðin. Enn eru þar báts-
liræ á kambi, enda var par mikil
útgerð í eina tíð. Húsin standa
aúð og glápa tómum tóttum út á
fjörðinn. Eini bærinn í byggð
sunnan fjarðarins eru Hánefsstað-
|r, sem eru svotil beint fyrir ofan
ÍEyrarnar. Þórarinsstaðir eru heii-
legir að sjá, en þar býr erginn í
ðag.
P
t . Vestdalseyrin er draugabær í
jorðsins fyllstu mcrkingu. Þar
þjuggu fyrir 50 árum 150 manns,
|iú býr þar engin lifandi sála.
Éiyrin er norðanmegin fjarðarins
jbg næsta byggða ból er Dverga-
feteinn, sem einu sinni var prest-
teetur og stórjörð. Þar fyrir utan
fer ein jörð eða tvær í byggð. Síð-
listu íbúar Vestdalseyrarinnar
liafa flutt þaðan fyrir einu til
Iveim árum. Þarna eru mörg heil-
|eg hús, að vísu hafa þau ekki far-
Íð varhluta af rúðubrotsæði ís-
éndinga en fjölda þeirra mætti
ið líkindum gera íbúðarhæfan fyr-
|ir tiltölulega lítinn pening.
i Seyðisfjörður er bær anastæðn-
anna, þar sem mælikvarðinn er
^ljóttekinn gróffi á einum staðn-
Eog auðn á öðrum og jafnvel
ri stað. Gróðmn rennur að
ulegu leyti út úr bænum og
í„suður” en Sevðisfirðingar sjálfir
fciga ekki neim tvo stóra báta,
Gullver og Giiilb 'örgu og nokkrar
trilíur að auki, en snögg umskipti
ganga sjaldnast sársaukalaust.
reikna útsvör eftir stiganum
hærri útsvör, en jafnað skyldi nið
ur samkvæmt fjárhagsáætlun, skai
lækka öll útsvörin að réttri til-
tölu, unz hinni áætluðu upphæð
er náð. Hins vegar má hækkun
útsvara ekki fara fram úr 20
af hundraði. <
Stiginn er að sjálfsögðu ekki
síður nytsamlegur fyrir þá ein-
staklinga, sem ganga vilja úr
skugga um það í einrúmi, að rétt
hafi verið á lagt. Útsvarsstiginn
er útreiknaður af Skýrsluvélum
ríkisins og Reykjavíkurborgar og
offsetfjölritaður í Letri h.f. Hann
kosíar kr. 150,00 og fæst á skrif-
stofu Sambands íslenzkra sveitar-
félaga.
Byggt yfir sund
laugina á Sandi
Hellissandi, 16. júlí, GK-GO.
HÉR á Hellissandi var að ljúka
tvöföldu sundnámskeiði, sem hef-
ur staðið alls í 7 vikur. Fyrra nám
skeiðið var fyrir börn og ungl-
inga héðan úr þorpinu og sóttu
það 100 manns, en hið síðara var
fyrir börn úr Ólafsvík og Grafar-
nesi og sóttu það um 80 nemend-
ur. Sundlaugin hér á Hellissandi
er sú eina á nesinu fyrir utan
laugina í Stykkishólmi. Nú er ver
ið að byggja yfir hana, en hingað,
til hefur hún verið opin.
Allmargar trillur sækja hand-
færaveiðar suður fyrir nesið, eða
hérna rétt út fyrir og afla sæmi-
lega.
Mikið er unnið í landshöfninni
á Rifi, langt komið með að reka
niður stálþilið, sem verður 250
metra langt. Þá er verið að
lengja syðri garðinn, sem á áð
verða 500 metrar og seinna stend-
ur til að lengja norðurgarðinn uíh;
90-100 metra. Þá verður höfnin'
alveg lokuð. ;
MANNRÉTTINDALÖG-
IN UNDIRRITUÐ
MYNÐIN hér að ofan mun vissulega hafa sögulegt gildi, þegar
fram líða stundir. Hún er tekin í Hvíta húsinu fyrr í þessum
mánuði, er Johnson forseti undirritaði mannréttindalögin nýju,
sem nú er allt útlit fyrir að komi talsvert við sögu í forseta-
kosningunum í haust. Jolinson flutti ræðu áður cn liann undir-
ritaði lögin, eins og hefur verið sagt frá í fréttum. Viðstaddir ^
voru öldungadeildarþingmenn og aðrir Ieiðtogar Bandaríkjanna
VWWWWVVWWMWWVWHMWWMWWMWWWWMW
Kvennameistara-
mótið dagana
25. og 26. júlí
KVENNAMEISTARAMÓT íslands
fer fram á íþróttavellinum
að Félagslundi í Gaulverjahreppi
dagana 25. og 26. júlí næstkom-
andi. Fyrri daginn hefst keppnin
kl. 4, en á spnnudaginn kl. 2.
Keppt er í eftirtöldum greinum:
100 og 200 m. hlaupi, 4x100 m. boð
hlaupi, kúluvarpi, kringlukasti,
spjótkasti, hástökki og langstökki.
Keppni í 80 m. grindahlaupi og
fimmtarþraut fer þó fram í Reykja
vík í sambandi við Meistaramót
íslands 15. og 16. ágúst.
Þátttökutilkynningar þurfa að
berast til Þóris Þorgeirssonar,
Laugarvatni eða Hafsteins Þor-
valdssonar, Selfossi, í síðasta lagi
21. júlí.
Allt sement nýtt
í ár
Reykjavík, 16. júlí — EG.
ÚTLIT er fyrir að í ár verði
öll framleiðslugeta Sementsverk-
smiðju ríkisins á Akranesi * nýtt
innanlands, eða samtals rúmléga
100 þús. tonn. í fyrra var innan-
landsnotkunin 101,745 tonn og þá
voru flutt út 11,706 tonn en ehjk-
ert verður flutt út í ár, svo hægt
verði að anna innanlandsmarkað-
inum.
Salan á sementi innanlahds
frá áramótum í ár og til. júníloka
er orðin 45 929.tonn, en var á
sama tíma í fyrra 35 786 tonn, eða
rúmum 10 þús. tonnum minni. —-
Þessi aukning hefur orðið á sem-
Sigurgeir Sigurjónsson
hæstaréttarlögraaður ;
Málflutníngsskriístofa
Óðinsgötu 4. Sími 11043
entsnotkuninni þrátt fyrir að ekk-
ert verður unnið í Keflavíkurveg-
inuui“f sumar, en í hann fóru í
fyrrasumar rúm 7000 tonn af sem-
enti.
Verksmiðjan er gefin upp fyrir
75 þús. tonna afköst, en getur
sem fyrr segir framleitt rúm 100
þús. tonn á ári.
Til samanburðar má geta þess,
að árið 1962 var innanlandsnotk-
unin 75,616 tonn og þá voru flutt
út 18-19000 tonn af sementi.
101 hringhenda
Rósbergs Snædal
BLAÐINU hefur borizt ný
ljóðabók eftir Rósberg G. Snæ-
dal, er nefnist 101 hringhenda. —
Er þetta níunda bók höfundar.
Getur höfundur þess í formála að
bókinni, að hann sendi frá sér
„til þeirra og fyrir þá eina, sem
yndi hafa af stökunni, en eklii
vegna hins, að ég haldi mig kveða
öðrum mönnum betur.”
Bókin er í litlu, snotru bandi,
um 90 síður og prentuð í Prent-
smiðju Björns Jónssonar h.f. á
Akureyri.
Pússningarsandur
Heimkeyrður pússningarsandur
og vikursandux, sigtaður eðs
Ssigtaður við húsdyrnar eðs
- kominn upp á hvaða bæð sen
er, eftir óskum kaupenda.
SAND8ALAN við Eliiðavor aJ.
Síml 41920.
TVISKOTTUNARSAMNINGUR
VIÐ BRETA UNDIRBÚINN
.'.1 Réykjavík, 14. júlí. — EG.
JUM ÞESSAR mundir eru stadd-
ir hér á iandi þrír Bretar til við-
ræðna við íslenzk skattayfirvöld
lun tvísköttunar samning milli
Stóra Bretlands og íslands.
Sigurbjörn Þorbjörnsson, ríkis-
skattstjóri skýrði blaðinu svo frá,
að Bretarnir þrír, sem eru frá
,Board of Inland Revenue, hafi
komið hingað til Iands síðastliðinn
sunnudag, og muni, halda aftur
heim um helgina, en þá er ráð-
gert að viðræðum og undirbún-
ingi tvísköttunarsamnings verði
lokið.
Bretarnir heita E.R. Brookes, J.
A. Johnstone og B. T. Houghton.
Af hálfu íslenzkra yfjrvalda taka
þátt í þessum viðræðum ríkis-
skattstjóri, skattstjórinn í Reykja-
vík og Ólafur Stefánsson, fulltrúi
í fjármálaráðuneytinu.
Fyrr í sumar voru hér á ferð
menn frá norska fjármálaráðuneyt-
inu í sambandi við gerð tvískött-
unarsamnings milli íslands og
Noregs.
10 17. júlí 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ