Alþýðublaðið - 16.08.1964, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 16.08.1964, Blaðsíða 6
Soka Gakkai hefnr tekið nútíniatækni í þjónustu sína, auglýs- in;;ar frá þeim í blikandi neonljósum blasa hvarvetna við air?um. „Lífið er skipulögð hamingju sókn.“ V. UNÐIR þessu slagorði er Soka Gal;kai-hreyfingin að setja stei kt svipmóo á Japan og jafn framt er hún á góðri leið með að verð.a þriðja aflið í japönsk um stjórnmálum, milli frjáls- lyndra demókrata, sem eru við völd, og hinnar sósíalísku stjórnarandstöðu. Soka Gakkai lofár áhangend um sínum vernd gegn lömunar veiki og krabbameini, betri stöð ,um, velgegngi í viðskiptum og ástum og nú undir það síðasta, stjórnmálalegum áhrifum. Það er því ekki að undra, að hreyfingin telur nú þegar milli 10 og 15 milljónir meðlima ,þar af er ótrúlega mikill hluti bandarísku hermannanna í Japan. Að sögn bætast henni 100.000 nýir miðlimir í mán- uði hverjum. eina bótin við andlegum og lík amlegum meinum. Soka Gakkai er búddisk hreyfing, sem sögð er eiga upp runa síns að leita til munksins Nichiren> sem hafði stofnað hana á 13. öld. Tönn úr honum er varðveitt og tilbeðin mjög í hinu geysistóra steinsteypu- hofi, sem hreyfingin hefur reist við ræiur Fúsíama. Það er þó aðeins eitt af 150 hofum, sem Soka Gakkai hefur reist víðs vegar um Japan. □ GEYSILEGAR TEKJUR □ HEILÖG TÖNN Eftir Hirosíma spruttu upp nýjar sértrúarhreyfingar í Japan hundruðum saman, sem gáfu óhangendum sínum í ráð vilLu og skelfdu Japan nýja von. Sem dæmi má nefna, að einn þessara sértrúaflokka tilbað rafmagnið og tignaði Thomas Alva Edison sem eins konar há fguð. Annar flokkur hélt þv fram, að kynferðislíf væri Soka Gakkai-hreyfingin hefur árlegar tekjur frá með- limum sínum sem svara til um það bil 38 milljóna íslensk ra króna. Hreyfingin gefur út blað, sem kemur út þrisvar í viku í 2,6 milljónum eintaka. Þessu blaði er stjómað frá nýtízku- legum skýjakljúf í Tókíó. Sérscaða Soka Gakkai er með al annars fólgin í hinni hern- aðarlegu upphyggingu hreyf- ingarinnar. Hún er byggð á sellukerfinu. Fimmtán Soka Gakkai-fjöl- skyldur mynda eina sellu sex sellu mynda eina sveit, tíu sveitir eitt svæðisfélag og þrjá tíu svæðisfélög mynda eitt hér aðssamband. Á toppi þessarar byggingar situr svo foringinn, hinn 35 ára gamli blaðaútgef andi Daisaki Ikeda, sem ber titilinn „sensei“ eða kennari. og eyðileggi þar shintoölturu og Búddalíkneski. Hreyfingin er mjög andsnú- in krisúndómnum ' og kallar hann trú handa „snobbum, tvídklæddum mönnum, frönsk um kvikmyndum og amerísku viskýi." Soka Gakkai hefur upp á síð kastið notið mikillar stjórn- málalegrar velgengni og það sá frami, sem veldur japönsku stjórninni og gömlu flokkun- um mestum áhyggjum. □ koSNingasigrar Soka Gakkai lét fyrst til sín taka í stjórnmálum á árinu 1960, en þá buðu sig fram á hennar vegum 363 menn í sveit arstjórnakosningum. Af þeim voru 337 kjörnir. Við þingkosningamar 1962 voru 15 Soka Gakkai-frambjóð endur kosnir til neðri deildar japanska þingsins, við sveitar stjórnakosningarnar vorið 1963 buðu sig fram 1008 Soka Gakk ai-frambjóðendur, 1004 kom- ust, að. Og nú hefur Soka Gakkai til kynnt, að frambjóðendur hreyf ingarinnar í kosningum til efri deildar þingsins, sem standa fyrir dyrum verði 30. Naumast verður efazt um, að þeir verði svo til allir kjörnir. □ HVAÐ VILL SOKA GAKKAI? Ekki er auðvelt að lienda reiður á hver hinn stjórnmála legi málstaður Soka Gakkai er. Framámenn hreyfingarinnar boða frið, þeir eru á móti kjarn orkuhervæðingu, óska „frjálsr ar utanríkisstefnu", sem merk ir í raun einskonar hlutleysi, sem þó feli í sér vináttu við Bandaríkin og Kína Maós. Þeir krefjast jafnhliða þing ræðis og „sterkrar stjórn- ar“. Þeir krefjast ókeypis náms bóka, lægri skatta, heiðarlegr- ar stjórnmálastarfsemi, meiri umhyggju hins opinbera: „ham ingju handa eins mörgum og kostur er“. Þessi stefna er, eins og sjá má, vel til þess fallin að sópa að sér fylgjendum. Þeir láta heldur ekki á sér standa og koma fyrst og fremst úr mið- stéttunum, sem virðast hafa orðið útundan við skiptingu ávaxta hinnar japönsku iðn- byltingar. Meðal þeirra eru á- hyggjufullir eigendur smáfyrir tækja, hinir fjölmennu bændur sem hafa flutt á mölina og verkamenn án sérkunnáttu, í s.uttu máli hinir „litlu karlar" Japans. „Lífið táknaf skipulagða ham ingjusókn ...“ segir Soka Gakk ai. Þessi trúarhreyfing virðist þó upp á síðkastið fremur hafa einbeitt sér að skipulagðri sókn eftir veraldlegum völdum. Múgmót Soka Gakkai á Ólympíuleikvanginum í Tókíó. Leik vangurinn tekur yfir 70 þúsund manns og, eins og sjá má, er þéttskipað. Soka Gakkai hefur innan sinna vébanda æskulýðshreyf- ingu, sem telur yfir milljón drengja og um það bil 750.000 Siúlkur. Þessir unglingar setja mikinn svip á fjöldamót hreyf ingarinnar þar sem þeir koma fram í hljómsveitum klæddir lit skrúðugum einkennisbúining- um. Fjöldamótin eru oft hald- in á íþróttaleikvöngum, enda leggur hreyfingin meðal annars mikið upp úr íþróttaiðkunum. Mikill og oft harður áróður er rekinn fyrir málstað hreyf- ingarinnar. Það gerist ekki sjaldan, að stormsveitir henn- ar ryðjist inn á heimili manna \ 6 16. ágúst 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.