Alþýðublaðið - 22.09.1964, Side 2

Alþýðublaðið - 22.09.1964, Side 2
Bitstjórar: Gylfl Gröndal (áb.) og Benedikt GröndaL — Fréttastjórl: Arni Gunnarsson. — Ritstjórnarfulltrúi: Eiður Guðnason. — Símar: 14900-14903. — Auglýsingasíml: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. — Áskriftargjald kr. 80.00 — I lausasölu kr. 5.00 eintaklð. — ÍJtgefandi: Alþýðuflokkurinn. Stuðningur við landbúnaðinn SEX manna' nefndin hefur nú náð samkomu lagi um verð landbúnaðarafurða næsta árið. Með altalshækkun á afurðaverði verður rúmlega 11 af hundraði. Verð dilkakjöts mun þó verða óbreytt í verzlunum, þar ieð ríkisstjórnin mætir verðhækk ira þess með auknum niðurgreiðslum. Þessi hækkun á afurðaverðinu er minni en fiestir höfðu gert ráð fyrir, því alllangt er .síðan fyrirsjáanlegt var, að verð landbúnaðarafurða mundi hækka nokkuð, þótt ekki yrði gengið að öllum kröfum bænda. Verðhækkunin er ekki meiri en raun ber vitni, yegna þess, að ríkisstjórnin hefur nú sam- þykkt að gera ýmsar veigamiklar ráðstafanir til stuðnings landbúnaðinum. Styrkur til uppsetningar súgþurrkunar verður hækkaður mjög verulega og mun hér eftir nema Vz kostnaðar. Þá munu endurskoðuð jarðræktar- ©g búfjárræktarlög verða lögð fyrir Alþingi í vet- ur, sem fela í sér að jarðræktarframlög hækka . um allt að 30% miðað við sömu framkvæmdir ©g 1963. Næstu fimm árin verður varið fimm mííljónum króna til aðstoðar þeim bændum, sem verst eru settir fjárhagslega. í þriðja lagi verða nú afurðalán og viðbótar lán hækkuð verulega, þannig að þau verða jafn há þeim lánum, sem fást út á sjávarafurðir. Öll hafa þessi mál verið í athugun hjá ríkis- stjórninni undanfarið og eru þau í nánum tengsl- um við samningana, sem gerðir voru við launþega í vor og þær ráðstafanir ,sem þá var skýrt frá. Tvímælalaust er, að þessar ráðstafanir eiga eftir að reynast bændum verulegar hagsbætur. Núverandi ríkisstjóm hefur sýnt málefnum land búnaðarins meiri skilning, en flestar ríkisstjóm- ir, sem áður hafa setið. Allt hjal og áróður Framsóknarmanna um ó- vild ríkisstjómarinnar í garð bænda, hefur löngu sannast að vera staðlausir stafir, til þess eins ætl- aðir að blekkja kjósendur og upphefja eigin flokk. Sænskur sigur ÚRSLIT kosninganna í Svíþjóð hafa víða vak ið athygli. Jafnaðarmenn gengu þar með sigur af hólmi og fá sennilega hreinan meirihluta á þingi. Kosið var til neðri deildár síðastliðinn sunnu- dag. Þar höfðu jafnaðarmenn 114 þingsæti af 233. í þessum kosningum guldu hægri flokkarnir ©fhroð. Kosningabaráttan einkenndist af deilum um almenna lífeyrissjóðinn, og gerðu hægri menn harða hríð að honum og vildu breytingar. Stefna jafnaðarmanna bar sigur úr býtum, og athyglisvert er, að þeir sem harðast deildu á dug mikla stjórn jafnaðarmanna töpuðu flestum þing sætum. Einkaumboð á íslandi fyrir Simms Motor Units (International) Ltd., London önnumst allar viðgerðir og stillingar ó SIMMS olíuverkum og eldsneytislokum fyrir dieselvéiar. Höfum fyrirliggjandi varahluti í olíuverk og eldsneytisloka. SÍÐUMÚLA 9 Leggjum áherzlu á að veita eigendum SÍMÁR 36030.36930 SIMMS olíuverka fljóta og góða þjónustu. BIHtHMINI Hf. VILLTIST I GONGUM Framh. af bls. 1. skáta í Reykjavík og HafnarfirSi. Þar var ennfremur staddur Skúli Þórðarsson lögregluvarðstjóri. Þegar okkur bar að, var frú Sæunn Halldórsdóttir að tala í símann, og fékk þær upplýsing- ar drengurinn hefði komið að Heiðarbæ, klukkan 6 í dag og hefði lagt af stað heim til isín þá þegar. Ekki var vitað hvorn veginn hann hefði valið, þann gamla eða þann nýja, en Tryggvi Ein arsson bóndi ,í Miðdal, taldi sennilegt að hann hefði valið gamla veginn og mundi halda sig á honum. Tryggvi sagði að þetta væri dugnaðai’- og skýr- leikspiltur og mundi skila sér. Nú var nokkuð léttara yfir fólkinu, þegar vitað var að ekk- ert slys hefði hent drenginn. Ti-yggvi isagði að drengurinn myndi hafa blrtu að Borgarhól- TRYGGVI í MIÐDAL. um, sem eru á miðri heiði, en þaðan sæi hann vel til fjalla og mundi eflaust rata heim. Tryggvi sagði að nú þegar væru nokkr- ir bílar farnir eftir gamla vegin- um inná heiði, en þeir færu vart lengra en upp að Borgarhólum. Tilgangslaust væri að senda menn af stað gangandi út á heiðina, sagði Tryggvi, en ráð væri að senda bíl á eftir þeim sem fóru gamla veginn og segja þeim að fara alla leið austur, ef þeir kæmust. Það var gert og ennfremur var bíll sendur eftir nýja veginum, ef ske kynni, að drengurinn hefði farið hann. Þegar klukkan var rúmlega 9, bárust þær fréttir að drengurinn væri fundinn, leitarmenn hefðu mætt honum við Borgarhóla. Þar var hann settur inn í jeppa og ekið heim, en hestinum sleppt. Við fórum í humátt á eftir jeppanum sem flutti drenginn heim í hlað í Þormóðsdal. Þeg- ar við ætluðum að fá að tala við móður drengsins, urðum vði fyrir skrýtinni reynslu, sem sýn ir skilningsleysi fólks á hlut- verki dagblaða, en hún var þannig: Þeir, sem fylgdu drengnum heim voru Kristján Þorgeirs- son dráttarvélarstjóri og Guð- mundur Magnússon bílstjóri og Egill nokkur leigubílstjóri á Hreyfli, en ekki er mér kunn- ugt um föðurnafn lians. Þeir vörnuðu okkur inngöngu í hús- ið og þess að fá að tala við húsfreyju og sögðu, að engar myndir yrðu teknar né heldur ástæða til að ræða við „blaða- snápa“. — Sá er þetta ritar, spurði Kristján livort það værl meiningin, að meina okkur að ræða við húsfreyju og kvað hann svo vera, og tóku hinir undir. Þar sem húsbóndinn var 6- kominn, en væntanlegur úr leit inni, tókum við það ráð, að bíða eftir honum og fá hjá hon- um leyfi til að ræða lítillega við drenginn og taka mynd af þeirn feðgum. Þegar við hittum Guðmund, var það mál auðsótt og bauð hann okkur til stofu. Þar hitt- um við Þorstein sem var Iiinn hressasti, en sagði, að sér hefðl verið orðið nokkuð kalt, en værl nú farið að hlýna. Þannig hafðf þetta mái góðan og gleðilegan endi. ORÐSENÐSNG til félagsmanná F.Í.B. Félagsmerkin úr CROME eru komin. Skrifstofa F.Í.B. SHVBSTðBII Sætúni 4 - Sími 16-2*27 fcilllnn tíf amaSnr GJólt ag nl SelJna sUar teemidtr «» ——% - jg 22. sept. 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.