Alþýðublaðið - 23.09.1964, Síða 9

Alþýðublaðið - 23.09.1964, Síða 9
Gunnvör Braga og Kristbjörg Kjeld. beitt af mesta kappi til að „út- skýra” hvaðeina, - ekki sízt þegar kemur að þætti kennslukonunnar. Meir um það seinna. En hitt má Gibson eiga að hann er leikinn höfundur fyrir svið og formar leik sinn vel og skipulega og með þónokkurri tilfyndni, lætur sjald- an leiðast út í neinar beinar öfgar. Og hann gefur leikkonum í aðal- hlutverkunum einstætt færi á stjörnuleik. Það er kannski varla von að Val Gíslasyni og Helgu Valtýsdóttur og Arnari Jónssyni, sem leika fjölskyldu Helenar, yrði mikið úr þessum efnivið. Þau fara snyrti- lega og ýkjulaust með hlutverk sin, mynda hófsamlega umgerð um eiginlegt inntak leiksins: sögu Helenar litlu. Það er að vísu ekki öldungis ljqst hversu alvaríega ber að taka Keller Vals Gíslason- ar. Hlutverkið virðist gefa tilefni til skops sem ekki voru nýtt nema dræmt og hikandi, - en kynni að hafa bréytt yfirbragði leiksins til muna. Líklega er það samt þakk- arverðast að hér var hófsemi, still- ing og gætni látin ráða, og það mun líka sanngjörnust meðferð á texta Gibsons. Kristbjörg Kjeld sýnist ekki heldur mjög heimakomin í hlut- verki Annie Sullivan í upphafi þar sem átti að lýsa yfirborðs- óbilgirni hennar og stærilátu þrá- lyndi yfir öryggisleysi, kvíða, hug- arangri undir niðri. Tápið virt- íst stundum tómur gjallandi. En leikur Kristbjargar óx og magnað- ist með viðfangsefninu, allri við- ureign Gunnvarar, reis kannski hæst í sjálfum átökum þeirra, en var líka mæta-sannur þar sem iýst var vanmætti og kvíða kennslukonunnar, þegar engin leið virðist opin að huga Helenar. Og síðan hægvaxandi vinarþel þeirra tveggja fram að „krafta- verkinu” í lokin. Þá kviknar loks ljós skilnings í huga hinnar blindu og daufdumbu stúlku: þá er krafta verkið fullnað. Það kann að vera rétt að Gunnvör unga verði manni hugstæðust eftir sýning- una, en hins ber að minnast að frammistaða hennar væri hvorki hálf né heil án Kristbjargar, hlut verkin eru samtvinnuð og standast hvorugt án hins. Hér vinnur þessi geðþekka leikkona nýjan, góðan sigur: þær Gunnvö,r báðar saman eru réttlæting þess að taka þenn- an leik á svið hér. Og Kristbjörg stenzt líka furðu- vel hina ömurlegu fortíð kennslu- konunnar sem dengt er á hana úr hátölurum annað veifið, og þar sem „sálarfræði” Gibsons nær mestu veldi. Það skoplegasta við þennan draugagang er að hann er öidungis óþarfur. Allt, sem þar kemur fram staðhæfir leikkonan á sviðinu í orði og athöfn . út- skýringalaust. jj ||jg}g ★ LITLI SVARTf SAMBÓ Klemenz Jónsson leikstjóri hefði kannski gert bezt í því að felia þennan þátt leiksins niður; það hefðí líklega verið meiri hollusta við „anda“ leiksins en halda hon- um til haga. En það er illt að áfell- ast leikstjórann fyrir að halda sig að þrautreyndum texta höfundar ins. Og Klemenz hefur unnið verk sitt með undansláttarlausri vand- virkni, liófsemi og sniekkvísi: í meðförum hans nýtist allt hið bezta úr leiknum, en missmíði spilla fáu beinlínis. Hefur leið- sögn hans áreiðanlega verið hin hollasta hinni ungu leikkonu í að- alhlutverkinu, og sviðsvanari fé- lögum hennar líkléga engu síður. Þýðing Jónasar Kristjánssonar var mjög áheyrileg og eðlileg, sviðsmynd og búningar Gunnars Bjarnasonar og Lárusar Ingólfs sonar hvort tveggja smekklegt og haganlegt. Emilía Jónasdóttir og félagar hennar tveir, þjónustu- fólk á heimilinu, voru útbúin í stíl litla svarta Sambós. Það var sýningunni góður litarauki, og þarfleg áminhing þess að hér var ekki neins konar „raunsæi” á ferð á fjölunum, en dæmisaga, helgi- sögn - í alþýðlegum amerískum stíl og anda í þetta skiptið. Ó. J. Ný prent- smiðja á Akranesi NÝ prentsmiðja hefur nú tekið til starfa á Akranesi. Nefnist hún Akraprent h.f. og er til húsa að Vesturgötu 72. Prentsmiðja þessi, sem er eign samnefnds hlutafé- lags, er vel búin að vélum og tækjum og mun leysa af hendi alls konar smáprent. Prentsmiðjustjóri er Einar Einarsson, er um langt árabil hef- ur unnið við prentverk á Akra- nesi. Orgelhljóm- leikar í Dómkirkjunni Haukur Guðlaugsson organleik- ari á Akranesi heldur orgelhljóm- leika í Dómkirkjunni í Reykja- vík næst komandi miðvikudag 23. sept. og hefjast þeir klukkan 21. Á efnisskránni eru verk eftir Dietrich Buxtehnde, Bach, Pál ísólfsson og fleiri. ■ orðið UNGLINGA til sendistarfa vantar nú þegar. Upplýsingar hjá skrifstofustjóra. ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS Sænskur tæknifræðingur óskar eftir 2ja til 3ja herbergja íbúð sem fyrst. Upplýsingar fást í síma 11000, innanhússími 221. Póst- og símamálastjórnin. i Starfsstúlkur öskast Starfsstúlkur vantar nú þegrar í eldhús Kleppsspítalans. • ■ - < . , . ,.................. . Upplýsingar gefur matráðskonan í síma 38164. ] Skrifstofa ríkisspítalanna. Nokkrir trésmiðir óskast nú þegar. Upplýsingar gefur Óskar Eyjólfsson, Ármúla 3. Samband ísl. samvinnufélaga. TIL SÖLU Byggingarfélag verkamanna, Kópavogi 5 herb. íbúð (Raðhús) í 1. byggingarflokki. Félagsmenn, sem neyta vilja forkaupréttar, sendi umsókn sína á skrifstofu vora fyrir 1. okt. n.k., sem veitir nánari upp- Jýsingar. Fasteignasala Kópavogs, Skjólbraut 1. — Sími 41230. Benzín-afgreiðslumaður OLÍ UFÉLAG óskar eftir manni til starfa á benzínstöð. ★ Tilboð, er tilgreini aldur og fyrri störf, sendist afgreiðslu blaðsins fyrir fimmtu- dagskvöld merkt „01íufélag‘£. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 23. sept. 1964 $ •tíSai

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.