Alþýðublaðið - 23.09.1964, Page 16
1»
Miðvikudagur 23. september 1964
MMMUtmHHMMUVHHHMI
Flugmálasfjóra-
fundinum fresfað
í tvær vikur
Alþýðublaðinu barst í gær
eftirfarandi fréttatilkynning
um fund flugmálastjóra Norð
urlandanna: Fundur fulltrúa
íslenzku fiugmálastjórnar-
innar og flugmálastjórna
Scandinavíu var haldinn í
Reykjavík 21. og 22. septem-
ber 1964. — Fundinum hefur
verið frestað í um það' bil 2
vikur meðan nýjar tillögur
frá skandinavisku nefndinni
verða kannaðar af þeim að-
ilum, sem málið snertir.
RÆTT UM ATVINNU
MÁL SIGLFIRÐINGA
Siglufirði, 22. sept. JM-AG.
NÚ um helgina, Iaugardag og
sunnudag boðuðu verkalýðsfélög-
in á Siglufirði til ráðstefnu um
atvinnumál Siglfirðinga. Til ráð-
stefnunnar var boðið þingmönn-
um úr Norðurlandskjördæmi
vestra, fulltrúum þingflokkanna,
fulltrúa ríkisstjórnar, formanni
milliþingancfndar um atvinnumál,
fulltrúum bæjarstjórnar Siglu-
fjarðar, bæjarstjóra, fulltrúa
frá Vinnuveitendafélagi Siglu-
Framh. á bls. 4
í Trésmiðafélagi Reykjavíkur
komu einnig fram tveir listar, ann
ar borinn fram af lýðræðissinn-
um, en hinn af stjóm og trúnaðar
manriaráði. Kósning mun fara
fram á næstunni.
Listi stjórnar og trúna.ðarmanna
ráðs var sjálfkjörinn í eftirtöld-
um félögum: Félagi járniðnaðar-
manna, Einingú á Akureyri, Iðju
á Akureyri og Verkalýðsfélagi
Húsavíkur.
Fulltrúar á ASÍ þingið voru
kjörnir á fundum í Starfsst.úlkna-
félaginu Sókn og Verkalýðsfélagi
Patreksfjarðar.
Fulltrúar Verkalýðsfélagsins
Bjarma á Stokkseyri voru sjálf-
kjörnir, en kosning hefur enn ekki
farið fram í Bárunni á Eyrarbakka,
Þár verður kosið á fundi.
Kosningu er lokið í Félaéi ís-
lenzkra hljóðfæraleikara, Félag
bifvélávirkja' kýs á fundi á mið-
vikudagskvöld, og Félag húsgagna
Dómor upp kveðn-
ir síðdegis í dag
Keykiiavík, 22. sept. — HP
RÉTTARHÖLDUNUM í máli
skipstjóranna á brezku togurunum
James Barrie og Wyre Vanguard
var frestað kl. 22.S0 í gærkvöldi,
og hófust þau aftur í morgun kl.
11 og stóðu í aUan dag. Mál'skip-
ritjórans á Wyre Vanguard var
tekið I dóm kl. 6, en mál Richard
Taylor, skipstjóra á James Barrie,
var tekið til flutnings kl. 20.30 í
kvöld. Alþýðublaðið hafði í kvöld
Kviknar í
síldarbát
. Akureyri, 21. sept. GS-ÞB.
VM hálfáttaleytið í gærmorgun
fttm upp eldur í síldveiðiskipinu
jSkraborg, sem þá lá inni á höfn-
Ciani á Akureyri. Eldur varð all-
tnikill í lúkarnum, en slökkvilið
kom skjótt á vettvang og réði
fljótt niðurlögum hans. Sennilega
ftiefur kviknað í út frá olíu. —
Bkemmdir urðu sáralitlar og Akra
ttorgin er komin á veiðar.
tal af bæjarfógetanum á ísafirði,
Jóhanni Gunnari Ólafssyni, og
sagð'i hann, að stefnt væri að því
að ljúka réttarhöldunum á morg-
un og kveða upp dómana þá síð-
degis.
Skipstjóri á James Barne er
eins og áður hefur verið skýrt frá
Richard Taylor, en skipstjórinn á
Wyre Vanguard er William Spear
point frá Fleetwood, 38 ára gam-
all og hefur aldrei áður verið tek-
inn hér fyrir landhelgisbrot.
Óðinn gerði fyrstu staðarákvörð
un sína kl. 23.34 á sunnudagskvöld
og samkvæmt henni var James
Barrie þá 1.8 sjómílur innan fisk-
veiðitakmarkanna, en um svipað
leyti reyndist Wyre Vanguard vera
1.8 sjómílur innan fiskveiðitak-
markanna á sömu slóðum sam-
kvæmt staðarákvörðun varðskips-
ins. Þegar togararnir voru stöðv-
aðir, reyndist James Barrie hins
vegar vera 1,7 sjóm. fyrir utan
fiskveiðiakmörkin, en Wyre Van-
guard 1.3 sjóm. fyrir utan þau.
Skipstjóramir neita báðir að hafa
verið að veiðum í landhelgi. Segja
þeir báðir, að um vélarbilun hafi
Framh. á bis. 10
kosið fulltrúa á þing ASÍ
lUMMUHtUUUUUUMUUUHHUtUMUHiV UMUUUUMUUWtMUUUUUUUWUUU>V
Reykjavík, 22. sept. — GO.
MIKILL fjöldi síldarbáta er
nú hættur veiðum og kominn
heim, eða á heimleið. Sam-
kvæmt upplýsingum síldarleit-
arinnar á Dalatanga mun nú
tæpur helmingur skipanna vera
að veiðum, einkum er þar um
að ræða stærri skipin. Menn
eru orðnir leiðir á ótíðinni og
þar að auki hafa sovézk rek-
netaskip lagt veiðisvæðið und-
ir sig. Gizkað er á, að þau
séu 3-400 á miðunum nú.
Þau eru með allt upp í 100
net í trossu og taka þvi mjög
stórt svæði undir sig, eða miklu
meira en hringnótaskip gera.
Floti þessi var að veiðum í
sumar á svæðinu suðvestur af
Jan Mayen, en sovézkir fiski-
fræðingar halda því fram, að
síldin gangi þa'ðan á haustin
til austurstrandar íslands.
Lfklegt er, að einhver skip
haldi út tU mánaðamóta og
jafnvel eitthvað lengur.
í gær fengu 27 skip alli
15500 mál og tunnur, bæði á
miðunum suðaustur af Dala-
tanga og eins um 100 mUur
austur af Langanesi. Þessi skip
fengu 500 mál og tunnur og
þar yfir: Ólafur Magnússon
600, Amar 750, Rifsnes 800,
Vonin 500, Þórður Jónasson
1100, Ásþór 850, Ásbjörn 500,
Vattarnes '500, Faxi 1000, Sig-
urður Bjaraason 500, Bjarmi
II. 1200, Náttfari 500, Garðar
650, Gjafar 1000, Guðrún Jóns
Framhald á sfðu 4
Fjórir menn
innilokaðir
neðanjarðar
Mercury, Nevada, 22. sept.
(NTB-Reuter).
Björgunarmenn héldu á-
fram í dag tilraunum sínum
til björgunar fjórum mönn-
um, sem inriilokaðir eru í
klefa 550 metra í jörðu niðri
á kjarnorkurannsóknarsvæð-
inu nálægt Mercury. Hafa
þeir verið þar niðri síðan
laugardaginn.
Talsmaður bandarísku
kjarnorkumálanefndarinnar
segír, að' það sé löng vinna
að’ ná þcssum fjórum mönn-
um upp. Hann vildi ckki
segja hvenær þeir næðust
upp, en þeir myndu nást.
uuuuuuuuuu
Fjölmörg f élög hafa þegar
Reykjavík, 22. sept. — EG.
ÞEGAR hafa fjölmörg verkalýðs-
félög víða um land kjörið fulltrúa
á þing Alþýðusambands íslands,
sem haldið yerður í haust. Kosn-
ingar þingfulltrúa hófust 19. sept-
ember, og á þeim að vera lokið
fyrir 11. október næstkomandi.
í Iðju, félagi verksmiðjufólks í
Reykjavík, hafa komið fram tveir
listar, annar studdur af stjórn og
trúnaðarmannaráði félagsins, en
hinn borinn fram af kommúnist-
um og framsóknarmönnum. Enn
hefur ekki verið ákveðið hvenær
kosið verður í Iðju.
Reykjavík, 22. sept. — GO.
NORSKI síldveiðiflotinn á Is-
landsmiðum er nú að mcstu liætt-
ur veiðum. Heildaraflinn á sumr-
inu er kominn upp í 915,000
hektólítra, en í fyrra stóð vertíð-
in til 10. október og licildarafl-
inn þá varð 938,000 hektólítrar.
Engir norskir hringnótabátar
hafa tilkynnt um veiði sl. viku, en
hins vegar hafa reknetabátar feng-
ið upp í 50 tunnur í lögn, mest
smásíld, sem ekki er hægt að
saita. Útlit er því fyrir að einnig
þeir hætti veiðunum.
Frá atvinnumálaráðstefn-
unni á Siglufirði. Þessi
mynd er tekin í kaffihlél
síð'ari hluta sunnudagsins,
og eru hér nokkrir fund-
armenn að liressa sig S
kaffi og glæsilegum tert-
um. Fundirnir voru mjög
langir báða dagana og veit
ingarnar því vel þegnar.
(Mynd: Ól. Ragnarsson).
bólstrara kaus á fundi s.l. mánu-
dagskvöld.
Fulltrúar r^afvirkja í Reykjavík
voru sjálfkjörnir.
Sem fyrr segir lýkur kosningu
fulltrúa á þing ASÍ 11. mæsta
mánaðar.
Helmingur
flotans er hættur
Norðmenn hætt-
ir veiðum á
íslandsmiðum