Alþýðublaðið - 09.10.1964, Side 5
Athöfn vegna dags
Leifs heppna
KLUKKAN ellefu árdegis í dag
verffur þess minnzt nieff stuttri at
RAUSNAR-
LEG GJÖF
Þann 27. ágúst sl. barst Frí-
kirkjusöfnuðinum í Reykjavík aff
gjöf kr. 30.000,oo til minningar
um 100 ára afmæli hinna mætu
hjóna: Dagfinns Björns Jónssonar,
sjómanns, og eiginkonu hans Háll-
dóru Elíasdóttur, en þau voru meff
al stofnenda Fríkirkjusafnaffarins.
Stjórn Fríkirkjusafnaffarins vill
ekki láta hjá líða að þakka gefend
unum, sem eru börn þeirra hjóna:
Elías, Einar, Ólafur, Guðmundur,
Sigríður og Sesselja, þessa rausn
arlegu gjöf og það hlýja hugar-
far til Fríkirkjunnar, sem að baki
liggur.
Gjöfinni verður varið til fegr-
unar á kirkjunni og verður hún, þá
um leið, fagur minnisvarði um
þau hjónin í ókomin ár.
Stjórn Frikirkjusafnaðarins
í Reykjavík.
höfn viff Leifsstýttuna á Skóla-
vörffuholti, aff sá dagur hefir veriff
ákveffinn dagur Leifs heppna í
Bandai'íkjunum.
I>að er Íslenzk-ameríska félagið,
sem gengst fyrir athöfninni, en
þar verður þess minnzt, er Leifur
heppni Eiríksson fann Vínland hið
góða árið 1000, en Lyndon B.
Johnson, Bandaríkjaforsetl hefir
fyrir nokkru gefið út tilskipan um,
að 9. október skuli framvegis
verða fánadagur til heiðurs við
minningu Leifs heppna.
Fulltrúi sendiráðs Bandaríkj-
anna við athöfnina verður Valdi-
mar N. L. Johnson, charge d‘aff-
aires, sem mun lesa tilskipun
Johnsons. Auk stjórnar íslenzk-
ameríska félagsins munu íslenzk-
ir embættismenn verða viðstaddir
athöfnina og munu ræðumenn
verða úr hópi þeirra.íslenzkar og
ameriskar telpur munu leggja;
blómsveig að fótstalli líkneskisins,
sem er gjöf Bandaríkjaþings og
þjóðar í tilefni af 1000 ára afmæli
Alþingis árið 1930.
Við líkneskið mun verða heið-
ursvörður, þrír íslenzkir skátar,
sem bera munu íslenzka fánann,
og þrir amerískir, sem bera munu
fána Bandarikjanna.
Almetmingi er að sjálfsögðu
heimill aðgangur að athöfninni,
en verði veður óhagstætt mun hún
fara fram í Hallgrímskirkju.
Ilugur allra íþróttaunnenda beinist nú til Japan. XVIII.
Olympíuleikar vorra tíma liefjast í Tokyo, stærstu borg verald-
ar, 10. október næstkomandi og lýkur 24. sama mánaffar.
Alþýffublaffiff mun birta ítarlegar fréttir frá Olympíuleik-
unum daglega. Ingi Þorsteinsson og Guffmundur Gíslason senda
blaðinu sérstaklega fréttir af íslenzku keppendunum. Til þess
aff fylgjast vel meff Olympíuleikunum verffa allir íþróttaxmn-
endur aff kaupa Alþýffublaðiff,
Fellur vel viö Norðmenn
Reykjavík 5. okt. GO.
FYRIR helgina var blaða-
mönnum boðið að hlýða á Sig
rúnu Jónsdóttur, sem nú er
snúin heim frá Noregi og far
in að syngja í Þjóðleikhúskjall
aranum. Sigrún var um árabil
vinsælasta dægurlagasöngkona
okkar, byrjaði feril sinn með
Öskubuskum og söng með þeim
inn á nokkrar hljómplötur,
sem enn njóta nokkurra vin-
sælda. Sigrún var lengi eina
frambærilega djass, eða ,blues‘
söngkona okkar en auk þess
mjög fjölhæf á söngsviðinu.
Sigrún hefur nú dvalist i Nor
egi í 4 ár. Hún er gift þar-
lendum manni, en hefur ferð-
ast víða um landið og sungið
auk þess sem hiin hefur komið
fram í útvarpi og sjónvarpi
hvað eftir annað. Hún kom
hingað heim fyrir 2 árum og
söng þá um tíma í Glaumbæ.
Hljómsveitin, sem hún syng
ur með í Þjóðleikhúskjallaran
um kallast „Nova-tríoið“. Sig
urður Þ. Guðmundsson píanó-
leikari er hljómsveitarstjóri,
en auk hans spila þeir Björn
Haukdal á gítar og Friðrik
Theodórsson á bassa. Friðrik
tekur líka lagið ef svo ber und
ir.
Músikkin í Þjóðleikhúskjall-
aranum er einkum sniðin fyrir
rólegra fólkið. Hljómsveitin er
á samningi við húsið fram ?
júní, en ekki er enn ákveðið
hvað Sigrún verður lengi með
henni. Hún býst þó við að vera
í vetur a,m.k.
í stuttu viðtali við frétta-
menn, sagðist Sigrún ein- j
göngu hafa skemmt í Noregi. >
Sér félli mjög vel við Norð-
menn og Iiefði verið á eilífum
ferðalögum um landið og aldrei
lengi á sama stað. Minnisstæð
astur af þeim stöðum, sem hún
hefur komið fram í, sagði hún
vera Stabburet í Frederekstad.
Þetta er 1150: staður og mjög
skemmtiiega innréttaður í
gömlum norskum bjálkakofa- J '
stíl. Sigrún segist velja músikk ] \
ina nokkuð eftir stöðunum, sem
hún syngur á, en sér virtist
smekkurinn á dægurlagatónlist
nokkuð annar í Noregi en hér.
Elly Vilhjálms, sem suhgið ;j
hefur í Þjóðlelkhúskjallaranum 1
að undanförnu fer nú líklega ] ;
til Savars Gests á Hótel Sögu
og syngur með honum í vetur í
ásamt Ragnari Bjarnasyni.
Leiklistarskóli Þjóðleikhússins settur
SL. laugardag setti þjóðleik-
hússtjóri, Guðlaugur Rósinkranz,
Leiklistarskóla Þjóðleikhússins,
en hann er forstöðumaður skól-
ans. Níu árgangar hafa útskrifast
frá skólanum á undanförnum ár-
um og hafa alls 55 nemendur
brautskráðst þaðan. Af þeim hafa
um það bil 50 stundað leiklistar-
störf að minna eða meira leyti.
Flestir hinna yngri leikara, sem
komið hafa fram á leiksviðum höf-
uðstaðarins hin síðari ár, eru
! nemendur úr - Leiklistarskóla
Þjóðleikhússins.
Nokkrir stunda nú framhalds-
nám erlendis og eru væntanlegir
heim á næstunni.
Sjö Iéiklistarnemar voru teknir
inn í skólann að þessu sinni, en
samkvæmt reglugerð skólans
mega flest vera 12 nemendur í
skólanum, hverju sinni. Þjóðleik-
hússtjóri gat þess í setningarræðu
sinni, að talsverðar breytingar
væru fyrirhugaðar á stax'fsemi
skólansr og yrðu þær framkvæmd-
ar á næstunni. Breytingar þessar
eru sniðnar eftir hinu nýja fyrir-
komulagi leiklistarskólans í Sví-
þjóð, en sú nýbreytni í reglugerð
og starfsemi leiklistarskóla verð-
ur væntanlega tekin upp á öllum
Norðurlöndunum á næstunni.
Leiklistarskóli Þjóðleikhússins
vei-ður nú væntanlega þriggja ára
skóli í stað tveggja áður. Þá er
fyrii-hugað að nemendur fái tæki-
færi að leika fyrir áhorfendur á
leiksviðinu í Lindarbæ á síðasta
ári skóiatímans. Fá hinir ungu
leikarar þá nokkra reynslu • áð
koma frarn fyrir áhorfendur.
Kaupi
hreinar fuskur
Bólsturiðjan
Freyjugötu 14.
Vélritun — Fjölriturf
Prentun
PRESTÓ
Klapparstíg 16. — Gunnars-
braut 28.
c/o Þorgrímsprent ,
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 9. október 1964 j|