Alþýðublaðið - 22.10.1964, Page 8

Alþýðublaðið - 22.10.1964, Page 8
VIÐ snerum heim aftur til Kali- forníu og ég jafnaði mig til fulls eftir ófarir Monsieur Verdoux; og enn tók ég að velta fyrir mér kvik myndaefnum. Ég var bjartsýnn og trúði þvi enn ekki að ég hefði með öllu glatað hylli almennings í Am- eríku, að fólk væri svo pólitískt sinnað eða svo gamanlaust að það sneri baki við nokkrum manni sem gæti skemmt því. Ég hafði fengið hugmynd, og í krafti hennar lét ég mér á sama standa hvernig færi; ég varð að gera myndina. Hvaða yfirskin sem heiminum þóknast að taka sér, eru menn æv- inlega sólgnir í ástarsögur. Haz- litt segir réttilega að tilfinningar séu áhrifameiri en vitsmunir og mikilsverðari í listaverki. Og ég hafði fengið hugmynd að ástar- sögu; hún átti heldur ekkert skylt við hina kaidlunduðu bölsýni í Monsieur Verdoux (sem ég held reyndar að sé snjallasta, sniðug- asta mynd sem ég hef enn gert). Og mestu skipti að hugmyndin örvaði mig. Undirbúningur að Limelight tók 18 mánuði. Það þurfti að semja ballettmúsik, tólf mínútna langa, sem næstum reyndist mér ofur- efli af því að ég varð að hugsa mér dansinn jafnharðan. Hingað til hafði ég ekki samið músik við myndir mínar fyrr en myndin sjálf var fullgerð og ég gat haft hana fyrir augunum. Engu að síður tókst mér að semja músíkina. En eftir á var mér ekki ljóst hvort hún hæfði ballettnum, þar sem dansararnir yrðu að semja dansinn að mestu leyti sjálfir. Mér kom í hug að leita til An- dré Eglevskijs, sem ég dáði mjög. Hann var í New York, og ég hringdi til hans og spurði hvort hann fengist til að dansa „Blá- fuglsdansinn” við aðra músik og hvort hann gæti stungið upp á baUerínu að dansa móti sér. Hann kvaðst fvrst verða að heyra mús- íkina. Bláfuglsdansinn er við mús- ík Tsjaikovskijs og stendur 45 sek- Tindur; ég hafði því samið eitthvað upp í þá tímalengd. Við höfðum unnið mánuðum saman að þessum tólf mínútum af balletmúsik og tekið hana niður með fimmtíu manna hljómsveit. Mér var mikil forvitni á því hvern- ig þau tækju henni; og loks kom þar að Melissa Hayden, ballett- mærin, og André Eglevskij flugu til Kaliforníu að hlýða á hana. Mér var ekki rótt meðan á því stóð; en, Guði sé lof, þau féllust á hana og sögðu hún færi vel við ballett. Það var ein af stærstu stundum mínurn að sjá þau dansa. Túlkun þeirra var mjög vinsam- leg og veitti músíkinni klassískan blæ. Til stúikuhlutverksins í mynd- inni þurfti það sem virtist óhugs- andi í senn: fegurð, gáfur og vítt tilfinningasvið. Eftir margra mán- aða langa misheppnaða leit var ég loks svo lánsamur að ráða Claire Bloom sem vinur minn Arthur Laurens mælti með. Eitthvað í fari okkar stuðlar að því að hatur og ólán gleymist. Rétt arhöldin og öll sú beiskja sem þeim fylgdi hlánuðu úr huga mér. Og meðan allt þetta stóð yfir hafði Oona, kona mín, eignazt fjögur börn, Geraldine, Michael, Jósie og Vieky. Lífið í Beverly Hills var okkur gott; við áttum þar ham- ingjusamt heimili og margir vin- ir sóttu okkur heim. — Ég gerði mér færri grillur út af Limelight, þegar myndinni var lokið, en nokkurri annarri mynd minni. Við höfðum einkasýningu á henni fyrir vini okkar; allir voru hrifnir. Síðan ráðgerðum við að fara til Evrópu; Oonu langaði að börnin gengju á skóla þar, laus undan áhrifavaldi Hollywood. ★ YFIRHEYRSLAN Ég hafði sótt um endurkomu- leyfi til Bandarikjanna fyrir þrem- ur mánuðum, en ekki fengið neitt svar. Samt hélt ég áfram að ganga frá viðskiptamálum mínum fyrir brottförina. Skattamál mín áttu að vera klöppuð og klár. En þegar Gjaldheimtan frétti að ég væri á förum til Evrópu kom upp úr kaf- inu að ég skuldaði henni enn. Þeir suðu saman kröfu upp á sex-stafa upphæð og kröfðust þess að ég setti tvær milljónir dollara til tryggingar, tífalt hærri upphæð en krafan nam. Hugboð mitt sagði mér að setja enga tryggingu, en krefjast réttargerðar í málinu. Þetta leiddi til skjótra sátta; ég þurfti ekki að greiða nema lítil- fjörlega upphæð. Þegar engar kröfur voru lengur á hendur mér sótti ég enn um endurkomuleyfi og beið svars vikum saman. Þá skrifaði ég til Washington og gat þess að ég færi hvort sem ég fengi leyfið eða ekki. Viku síðar var hringt til mín frá Útlendingaeftirlitinu; þeir vildu spyrja mig nokkurra spurn- inga. Máttu þeir senda sína menn til mín? „Endilega”, svaraði ég. Þrír menn og kona komu; konan var með ritvél; hinir höfðu bersýni lega segulbandstæki í litlum fer- hyrndum skjalatöskum sinum. — Fyrir þeim^var hávaxinn grann- vaxinn maður um fertugt, myndar- legur og orðfimur. Mér var ljóst að þau voru fjögur á móti einum og ég hefði átt að hafa lögfræðing með mér; en ég þurfti engu að Ieyna. Fyrirliðinn dró upp skjala- möppu, heilt fet á þykkt, og lagði á borðið. Ég sat gegnt honum. Síð- an tók hann að fletta möppunni blað fyrir blað. „Er Charles Chaplin rétt nafn yðar?” nJá”. „Sagt er að þér heitið raunveru- lega — hér kom fullkomlega fram andi nafn — og séuð fæddur í Galizíu”. „Nei. Ég heiti Charles Chaplin, sama nafni og faðir minn, og er fæddur í London”. „Þér segizt aldrei hafa verið kommúnisti?” „Aldrei. Ég hef ekki gengið í nein pólitísk samtök á ævinni”. „Þér notuðuð eitt sinn í ræðu ávarpið „félagar”. Hvað áttuð þér við með því?” „Það sem ég sagði. Þér getið flett upp í orðabók. Kommúnistar hafa engan einkarétt á þessu orði”. Hann hélt áfram í þessum dúr; spurði síðan upp úr þurru: „Hafið þér nokkurn tima drýgt hér?‘‘ „Heyrið mig nú”, sagði ég, „seg- ið mér bara til ef þér eruð að leita að átyllu til að losna við mig úr landinu; þá skal ég haga mér sam- kvæmt því. Ég kæri mig ekki um að vera persona non grata neins staðar”. „Nei, alls ekki“ svaraði hann, „það er ævinlega spurt að þessu“. „Hvernig er ,hór‘ skilgreint?" spurði ég. Við gáðum báðir í orðabók. „Segjum ,saurlífi með konu iann- ars manns‘,“ sagði hann. Ég hugsaði mig um 'andartak. „Ekki svo ég viti til”, sagði ég. „Munduð þér berjast fyrir Bandaríkin, ef innrás væri gerð í landið?" „Auðvitað. Ég elska þetta land, — hér á ég heima. Ég hef búið hér í fjörutíu ár”. „En þér hafið ekki orðið ríkis- borgari". „Það eru engin lög til sem heimta það. En ég borga skatta og skyldur hér“. „En hvers vegna fylgið þér þá Flokkslínunni?” „Segið mér hver Flokkslínan sé; þá skal ég svara hvort ég fylgi henni”. Það varð þögn, og ég greip fram í yfirheyrsluna: „Vitíð þér hvern- ig ég lenti í þessu klandri?" Hann- hristi höfuðið. „Fyrir það að hlýðnast ríkis- stjórhihni". Harin ieit undrandi á mig. „Sendiherra ykkar í Rússlandi, Mr. Joseph Davies, átti að tala á fundi í San Francisco vegna stríðs hjálparinnar við Rússa, en hann veiktist á síðustu stundu. Háttsett- ur embættismaður fékk mig til að tala í hans stað; og síðan hef ég verið lagður í einelti." ★ BROTTFÖR Yfirheyrslan stóð þrjár stundir. Viku síðar var enn hringt og spurt hvort ég gæti komið til viðtals. Lögfræðingur minn krafðist þess að koma með mér, „ef þeir skyldu vilja spyrja um fleira", sagði bahn. En viðtökurnar voru einkar hjart- anlegar. Forstöðumaður Útlend- ingaeftirlitsins talaði næstum í huggunartón: „Ég bið afsökunar á þessari töf, Mr. Chaplin“, sagði hann. „En nú hefur Útlendinga- eftirlitið fengið aðsetur hér í Los- Angeles, og nú gengur allt fljótar Tyrir sig fyrst umsóknir þurfa ekki lengur að ganga til Washington. Aðeins ein spurning, Mr. Chap- lin: hve lengi verðið þér í burtu?“ „Ekki lengur en sex mánuði“, svaraði ég. „Við erum bara að fara í leyfi”. „Ef þér skylduð stanza lengur þurfið þér að fá framlengingu". Hann lagði skjal á borðið, fór síð- án út. Lögfræðingur minn leit snarlega á skjalið. „Þetta er það!“ sagði hann. „Þetta er leyfið”. Þessi kafli, hinn síffasti sem Alþýðublaffiff birtir úr minningum Chaplins, segir af brottför hans frá Banda- ríkjunum sem á sínum tíma vakti mikla athygli. Áður en hér var komiff, hafði Chap- lin sætt ákæru og langvinnri málsókn fyrir meint kvenna- mál sín og siffspillingu, en var sýknaður aff lokum. — Mynd hans, Monsieur Ver- doux, hlaut hinar verstu móttökur og var bannlýst af ýmsum samtökum í Banda- ríkjunum, enda mætti Chap- lin nú vaxandi tortryggni fyrir kommúnisma. — Síðan Chaplin fluttist frá Banda- rikjunum býr hann í Sviss meff fjölskyldu sinni. Maðurinn kom aftur með penna. „Gerið svo vel að skrifa hér und- ir Mr. Chaplin“. Þegar ég hafði skrifað nafn mitt klappaði hann mér hlýlega á bakið. „Hér er leyf- ið. Góða og skemmtilega ferð, Charlie, . komdu fljótt heim aft- ur!“ Þetta var á laugardegi; morg- uninn eftir áttum við >að fara til New York. Ég vildi að Oona hefði aðgang að bankahólfi mínu, ef eitthvað skyldi koma fyrir mig; mestallar eigur mínar voru þar. En hún frestaði því sí og æ að ganga frá þessu við bankann. Nú var kominn síðasti dagur okkar L Los Angeles; bankanum yrði lök- að eftir tíu mínútur. „Má þetta ekki bíða þangað til við komum heim aftur?“ spurði Oona. En ég lét ekki undan. Og þar var heppn- in með okkur; ellegar hefðum við kannski þurft að eyða afgangnum af ævinni í málsóknir til að ná þess um fjármunum úr landi. Harry Crocker, sem nú var aug- lýsingastjóri minn,; efndi til há-, degisverðar með ritstjórn tímá-' ritanna Time og Life áður en; ég g 22. október 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.