Alþýðublaðið - 13.11.1964, Qupperneq 9

Alþýðublaðið - 13.11.1964, Qupperneq 9
ð aftrar samvinnu 'aflokkar Svíþjóðar ar, yrði að tryggja hæfileg elli- laun, en ekki var minnzt einu orði á það, hvernig afla ætti elli- launasjóðunum tekna. Þetta verður að telja vísvitandi tilraun til að koma til móts við hugsan- iega þátttakendur á borgaralegu samstarfi. .Baráttan gegn ATP var hug- mynd Hecksehers og hann varð að standa fyrir máli sínu á flokks fundinum. Þótt þlaðafregnir af fundinum gefi í skyn, að allt hafi farið fram með friði og spekt, er vitað, að Heckscher sætti harðri gagnrýni fyrir ráðríki sitt í þessu máli. Hann ákvað stefnu flokksins í ATP-málinu án þess að ráðfær- ast við aðra en nánustu samstarfs menn sína. Hægri flokkurinn byggir kröfu sína á algeru borgaralegu sam- Starfi með þeirri röksemd, að sam vinna tveggja flokka eins og Mið- flokksins og Þjóðarflokksins í Medborgerlig Samling nægi ekki til þess, að borgaralegur meiri- hluti fáist á þingi. Til að leggja hart að hinum borgaraflokkunum, bendir Hægri flokkurinn á fylgis- aukningu kommúnista í kosning- unum, er tákni frekari „vinstri sveiflu” í stjórnmálum — eins og það er orðað í tilkynningu frá flokksráði Hægri flokksins. OHLIN: — óttast hægri menn. ★ ÓRAUNHÆFT. Þótt Hægri flokkurinn reyni að koma til móts við hina borga'ra- flokkana, er ágreiningurinn enn svo mikill á mörgum sviðum, að alger samvinna borgaraflokkanna hlýtur að virðast með öllu óraun- hæf. Þetta á t. d. við um stefnuna í málefnum dreifbýlisins, en Jafn aðarmannaflokkurinn hefur reynt að örva atvinnuvegina í héruðum í Norður- og Vestur-Svíþjóð, sem standa höllum fæti, með því að flytja þangað fjármagn. Miðflokkurinn hefur lýst yfir stuðningi sínum við þessa stefnu en Hægri flokkurinn kallar þetta lið í heimskulegri „sósíaliseririgu” stjórnarinnar. Þjóðarflokkurinn veit ekki með vissu hvaða skoðun hann hefur í þessu máli, en reynir að þræða meðalveginn. Mikilvægari er ugglaust sú van trú, sem ríkir í Miðflokknum og Þjóðarflokknum á samstarfi við Hægri flokkinn. Það er útbreidd skoðun í báðum flokkum, að líta verði á kosningaósigur Hægri flokksins sem merki þess, að stefna Hægri flokksins sé einfald- lega í þann veginn að bíða ósigur og möguleikar á fylgisaukningu séu miklu meiri, ef samvinna Mið flokksins og Þjóðarflokksins í Medborgerlig Samling helzt. í Þjóðarflokknum er í því eink- um haldið fram, að verði Hægri flokkurinn tekinn með í samstarf- Framhald á 10. síðu Brýnna úrbóia þörf í húsnæöism. stúdenta SKRIÐUR AÐ KOMAST Á FÉLAGSHEIMILISMÁLIÐ Reykjavík, 10. nóv. Á FUNDI Stúdentaráðs Háskóla íslands með’ fréttamönnum í gær skýrði stjóm þess svo frá, að eitt fyrsta verkefnið, sem hún tók fyr- ir, hefði verið húsnæðismál stúd- enta. Kaus ráðið fjóra menn í nefnd til að kanna húsnæðismál stúdenta við Háskóla íslands og afla upplýsinga um þær leiðir, er famar hafa verið til Iausnar sömu vandamálum á Norðurlöndum. — Fyrir tilmæli Stúdentaráðs kaus Garðstjórn síðan fiminta mann- inn í nefndina, sem starfað hefur síðan í vor. Einnig skýrði Stúd- entaráð svo frá á fundinum, að nokkur skriður væri nú að komast á félagsheimilismálið. Stúdentaráði þótti sýnt, að að- gerða væri þötf til úrbóta í hús- næðismálum og þá sérstaklega fyrir stúdenta í hjúskap, þar sem þeim er nú engin fyrirgreiðsla í té látin hér. Skyldi nefndin því sérstaklega kynna sér aðstæður þeirra og hefur af þeim sökum ver ið kölluð „hjónagarðsnefnd”. ■— Hefur nefndin nú lokið athugun- um sínum og lagt allýtarlega skýrslu um ofangreind atriði fyrir Stúdentaráð. Könnunin við Háskóla íslands nær til ails 600 stúdenta eða allra stúdenta nema í heimspeki- deild. Þó nær hún til stúdenta í ís- lenzkum fræðum. Beindust rann- sóknirnar einkum að . fjölda kvæntra stúdenta og trúlofaðra, barnafjölda þeirra og húsnæði. Gerði nefndin greinarmun á eigin húsnæði. og leiguhúsnæði á hem ilum foreldra eða tengdaforeldra. Helztu niðurstöður þessara at- hugana eru þær, að rúmlega 33% allra stúdenta við nám eru í hjú- skap og rúmlega 6% trúlofaðir eða samtals 'um 40%. Um 65% þeirra eiga börn, — eitt, tvö eða þrjú, og meira en helmingur þeirra býr í leiguhúsnæði. Ef mið- að er við Norðurlöndin, er hlut- fallstala kvæntra stúdenta lang- hæst á íslandi eða um 33% á móti 20-25% á hinum Norðurlönd- unum. Einnig er hlutfallstala stúd enta, sem eiga börn, hæst hérlend- is. í skýrslu sinni gerir nefndin svo grein fyrir helztu leiðum, sem farnar hafa verið á Norðurlöndun- um til að sjá kvæntum stúdentum fyrir húsnæði, svo og fjáröflunar- leiðum, sem færar hafa þótt í því skyni. Samanburður sýnir, að ís- lenzkir stúdentar, einkum kvænt- ir, eru afar illa settir í húsnæð- ismálum, eins og núverandi ástand í þeim málum er nú hér, og brýnna aðgerða þörf, ef viðun- andi lausn á að nást. Þá bendir nefndin einnig á þörf dagheimilis fyrir stúdenta. í skýrslunni leggur nefndin áherzlu á, að stefnt verði að því að reisa íbúðir fyrir alla kvænta stúdenta jafnt sem einhleypa og verði hlutast til um setningu löggjafar um þau efni, en t. d. í Danmörku hefur þegar verið sett sérstök löggjöf um bygg- ingar fyrir námsmenn. Skýrslan er nú til athugunar hjá Stúdentaráði, sem gera mun ályktun um hana, en skýrslan og ályktunin verða birtar með Stúdentablaðinu 1. des. Um skipulag í húsnæðismálum stúdenta á hinum Norðurlöndun- um er helzt þetta að segja: Þar er alls staðar starfrækt húsnæðis- miðlu fyrir stúdenta, og þar hafa verið byggðir sérstakir hjóna garðar ætlaðir kvæntum stúdent- um. Hafa þeir ýmist verið byggðir með eða án dagheimila fyrir börn. Einnig hafa verið byggðir stúd- Framhald á 10. síðu Jólabazar Jólabazar Ævintýrahöllin opnar jólabazar með allskonar jólavörum. — Tækifærisgjafir við öll tækifæri. — Afskorin blóm og pottablóm, mjög gott úrval. Ódýrt og fallegt. Paul V. Michelsen Hveragerði. VIÐTALSTÍMI minn í Hafnarfirði verður laugardaga kl. 2 til 3 að Strandgötu 8. Sérgrein: Barnasjúkdómar. Snorri Jónsson, læknir. Rannsóknarkona áskast Rannsóknarkona (laborant) óskast nú þegar til starfa í Kleppsspítalanum. Laun samkvæmt reglum um laun opin- berra starfsmanna. Umsóknir með upplýsingum um aldur. námsferil og fyrri störf sendist til Skrifstofu ríkisspítal- anna, Klapparstíg 29 fyrir 25. nóvember 1964. Reykjavík, 12. nóvember 1964. SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA. I helgarmatinn: Búrfellsbjúgu bragðast best Kjötverzlunin BÚRFELL Sími 19750. 'if) Westinghousefw) WestinghouseriT vandlátir velja Westinghouse ryksugu @ Westinghouse@ Westinghouse @ ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 13. nóv. 1964 $

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.