Alþýðublaðið - 04.12.1964, Blaðsíða 4
Vinnutími
verzlunarfólks
Samkvæmt samningi Verzlunarmannafélags Reykjavíkur
er vinnutími verzlunarfólks í desember sem hér segir:
Frá mánudegi til fimmtudags frá kl. 9.00 til
, kl. 18.00.
Föstudaga frá kl. 9.00 til 19.00.
Laugardagainn 5. dcs. frá kl. 9.00 til 16.00.
Laugardaginn 12. des. frá kl. 9.00 til 18.00.
Laugardaginn 19. des. frá kl. 9.00 til 22.00.
Þorláksmessu frá kl. 9.00 til 24.00.
Aöfangadag jóla frá kl. 9.00 til 12.00.
Gamlérskvöld frá kl. 9.00 til 12.00.
Skylt er að vinna við frágang f sölubúðum, enda taki
sú vinna eigi lengri tíma en 10 mínútur fram yfir ofan-
greindan vinnutíma.
Samkvæmt samþykkt félagsfundar V.R. 26. nóv. s.l. og
með tilvísun til úrskurðar Félagsdóms frá 28. okt. s.l„
er félagsfólki óheimilt að vinna að afgreiðslustörfum í
opinni sölubúð eða um söluop eftir þann tíma dag hvern,
sem tilgreindur er samkvæmt ofanskráðu.
GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA.
Verzlunarmannafélag Rykjavíkur.
í stuttu tnáfl
Reykjavík, 3 desember.
EG.
★ Girðingarlög:
Framsögumaður landbúnaðarnefndar efri deildar, Bjartmar Guð-
mundsson (S), gerði í dág grein fyrir breytingum, sem nefndin
leggur til að gerðar verði á frumvarpi til breytinga á girðingarlög-
um. Sagði hann flestar breytingartillögur nefndarinnar gera ráð fyrir
orðalagsbreytingum. Málinu var vísað til 3. umræðu.
★ Stýrimannaskóli í Vestmannaeyjum:
Pétur Sigurðsson (S) hafði framsögu fyrir sjávarútvegsnefnd
neðri deildar í dag. er frumvarp til laga um stýrimannaskóla í Vest-
mannaeyjum kom til 2. umræðu. Pétur greindi frá því, að flestir
þeir aðilar, sem málið var sent til umsagnar, hefðu verið því hlynntir.
Skólastjóri stýrimannaskólans hefði þó ekki tekið afstöðu, og LÍÚ
hefði lagzt gegn samþykkt frumvarpsins, á þeirri forsendu, að pndur-
skoðun laga um sjómannafræðslu stæði nú yfir. Pétur kvað nefnd-
ina mæla með samþykkt frumvarpsins óbreyttu.
Björn Fr. Björnsson (F) gerði grein fyrir breytingartillögum
Óskars Jónssonar (F) við frumvarpið, en þær gera ráð fyrir að kostn-
aður við skólann verði borinn uppi af ríkinu, en ekki Vestmanna-
eyjakaupstaðar eins og frumvarpið gerir ráð fyrir.
Birgir Finnsson (A) sagði þaö vera furðulegan málflutning, að
balda því fram, að enginn annar en ríkið mætti bera kostnað af
skólahaldi, eins og tillaga Frmasóknarmanna gerði ráð fyrir.
Atkvæðagreiðslu um máiið var frestað.
★ Barnaheimili:
Einar Olgeirsson (K) mælti í dag fyrir frumvarpi sínu um barna-
heimili og fósturskóla, en það gerir ráð fyrir stuðningi ríkisins við
byggingar og rekstur barnaheimila, og að fóstruskólinn verði gerður
að ríkisskóla.
Málinu var vísað til 2. umræðu og menntamálanefndar.
Harðar dellur...
Félagslíf
Í.R--FRJÁLSÍÞRÓTTADEILD
Innanfélagsmót í Í.R.-húsinu i
kvöld kl. 8. Keppt í stökkum
með og án atrennu. — Stj.
ADENAUER
Framhald af 3. síðu
rnikið að sér kveða í þessu máli
meðan tillögur Breta eru í athug-
un og áður en Johnson forseti og
de Gaulle forseti hafa hitzt — og
reynt að brúá ágreining Frakka og
Bandaríkjamanna.
Framh. af 1. síðu.
geta fallizt á, að þetta frumvarp
væri andstætt almennum lýðrétt-
indum eða stjórnarskrá, eins og
sumir hefðu þó viljað vera láta.
Hgnn sagði að lokum, að núver-
andi fyrirkomulag i þessum efn
um hefði það í för með sér, að
mjög erfitt væri fyrir presta að
skipta um embætti, en slíkt væri
einmitt talið mjög æskilegt.
Einar Olgeirsson (K) ræddi
nokkrum orðum um stöðu presta
almennt og taidj hann þá ehki
fyrst og fremst fulltrúa eða em-
bættismenn ríkisvaldsins, og væri
ekki nema sjálfsagt að söfnuðirn
jr fengju að kjósa sér presta.
í tilefni þess, að séra Gunnar
hafði varpað fram þeirri spurn-
ingu hvort ekki ætti að kjósa sýslu
menn, héraðslækna og ljósmæð-
ur( fyrst menn leggðu gvona mikla
áherzlu á að prestar væru kosnir
sagði Einar, að hann hefði ekk-
ert á móti því að sýslumenn væru
kosnir, enda hefði hann alltaf
fyigt þeirri stefnu, að draga úr
ríkisvaldinu hvort sem væri hér
eða annarsstaðar. Einar lagði að
lokum áherzlu á að þetta frumvarp
bæri að fella.
Þá kvaddi séra Gunnar Gísla-
son sér hljóðs að nýju. og sagði
að Einar hefði haldið svo hjart-
næma ræðu, að hann væri þeirr
ar skoðunar að kirkjan hefði far
ið mikils á mis, þar eð Einar
skyldi ekki hafa ákveðið að gjör
ast einn af þjónum hennar, þótt
svo Fúrtsevu hefði ekki fundist
mikið til um ræðuna sem hann
hélt áðan.
Þá ságðist Gunnar vera hissa á
að heyra Einar segja, að harin
vildi draga úr afskiptum ríkisins
því stefna kommúnista hefði yfir
leitt verið á þveröfuga lund.
Einar Olgeirsson svaraði Gunn
ari -nokkrum orðum, og sagði það
vera stefnu kommúnista að af-
nema ríkisvaldið, og kvaðst hann
ætíð hafa haft þá skoðun. Bauðst
hann til að lána séra Gunnari
nokkrar bækur um þetta efni, svo
hann mætti sannfærast. Þá sagði
Einar að hinir frurrikristnu söfn-
uðir hefðu iðkað kommúnisma og
í rauninni væri margt ákaflega
skylt í kenningum kristnidóms-
ins og kommúnismans.
Sigurvin Einarsson <F) lagðist
eindregið gegn því að frumvarp
ið yrði samþykkt, og taldi eng£|-
sannanir liggja fyrir þvi að al-
menningur vildi hafa þann hátt á
sem frumvarpið ráðgerði, og ætti
með því að svipta söfnuðina mik
ilvægum réttindum, sem ekki
mætti af þeim taka.
Þórarinn Þórarinsson (F) sagð
ist vera á móti frumvarpinu eink
um af tveim ástæðuro. í fyrsta
lagi ætti veitingavald þessara em-
bætta ekki að vera í höndum ráð-
ályktunum þings Sambands ungra
ályktunum þings Sambnds ungra
jafnaðarmanna, þar sem gagnrýnd
var sú þróun, að váld ýmissa hátt
settra embættismanna fari mjög
vxandi. Taldi Þórarinn þetta ein
hverja beztu fundarsamþykkt, sem
hann hefði lengi séð. í öðru lagi
kvaðst hann vera frumvarpinu and
vígur, þar sem það væri prests-
kosningum að verulegu leyti ;|5
þakka, að íslenzka kirkjan væri
frjálslynd og rúmgóð, óg hún
hefði ekki lent í höndum neinnar
klíku ein$ og sumstaðar hefði kom
ið fyrir.
Var þá lokið 1. umræðu máls
ins og mun nienntamálanefnd nú
taka það til athugunar.
Að lokinni þessari umræðu mælti
Benedikt Gröndal (A) formaður
menntamálanefndar fyrir öðru
frumvarpi, sem er í nánum tengsl
um við þetta og verður að sam-
þykkjast ef þetta verður að lög
um. Fjallar það um fjölgun sókn
arnefndarmanna og hefur efni
þess áður verið jýst hér í blaðinu.
Því var einnig vísað til 2. um-
ræðu og mun menntamálanefnd
athuga það milli umræðna.
Sex umsóknir
voru teknar
til greina
Reykjavík, 3. des. — ÖTJ.
UMSÓKNIR ungra manna um
lögregluþjónsstöður hafa nú verið
teknar til atliugunar, og sex tekn-
ar tii greina. Blaðiff hafði sam-
band við Sigurjón Sigurðsson lög-
reglustjóra í dag, og sagði liann
að piltarnir væru nú á námskeiði,
en byrjuðu í lögregluskólanum í
janúar. Eins og áffur hefur verið
getið, munu þeir í fyrstu annast
lcttari störf, undir leiðsögn reynd-
ra manna, m. a. í sambandi við
umferðarstjórn og þess háttar.
Aukið fé til endurhæf
Reykjavík, 3. des. EG.
í dag var lagt fram á Alþingi
stjórnarfrumvarp, sem felur í sér
breytingar á lögum um ráðstöfun
erfffafjárskatts og erfðafjár ríkis
sjóðs til vinnuheimila. Breytingin
gerir ráð fyrir rýmkun á hlutverki
•t'óðsins, þannig að' fé megi veita
úr honum til endurhæfingar
stöðva öryrkja
í athugasemdum við frumvarp
ið segir svo:
Breyting sú, sem felst í frum
varpi þessu frá núgildandi lög-
um er fólgin í rýmkun á hlutverki
sjóðsins. Núgildandi lög hafa ekki
veriS talin taka ótvírætt til end
urhæfingarstöðva öryrkja. Með
breytingu þeirri, sem hér um
ræðir, mundi vera heimilt að
veita lán eða styrk samkvæmt lög
unum til endurhæfingarstöðva,
þar eð slíkar stöðvar mundu telj
ast til annarra stofnana fyrir ör
yrkja, sem stuðla að því að starfs
geta þeirra komi að sem fyllstuili
notum. Nauðsynlegt er, að slíkar
stöðvar geti notið aðstoðar sam
kvæmt lögunum. Erfðasjóður hef-
ur til þessa haft nokkurt fé; sem
ekki hefur verið ráðstafað, svo að
sú rýmkun á starfssviði sjóðsins,
sem hér er gert ráð fyrir, getur
ekki talist varhugaverð.
DÖNSKU MEISTARARNIR
LEIKA HÉR í KVÖLD
Reykjavík; 3 des. ÖTJ.
DÖNSKU badmintonmeistararn
ir fjórir komu hingað í kvöld
með Flugfélagsvél frá Kaup
mannahöfn. Keppa þeir í Vals
heimilinu anna^kvöld föstudagK
kvöld, kj. 8,30, og kl. 3 á laugar
dag.
Bádminton íþróttin hefur á und
anförnum árum átt ört vaxandi
vinsældum að fagna, bæði hér á
landi og annarsstaðar í heimin
um. Á fundi með fréttamönnum
sögðu forráðamenn Tennis og
badmintonfélagsins, að meðlimir
í félaginu væru nú um 300, og
það eina sem stæði í vegi fyrir
mikið meiri þátttöku væri hús
næðisskortur. Hinir dönsku meist
arar eru Erland Kops, frá KBK
Hann hefur borið heimsmeistara
nafnbótina mörg undanfarin ár,
enda oftar en nokkur annar sigrað
í einliðaleik karla í enska meist
aramótinu.
Torben Kops, einnig frá KBK
(bróðir Erlands) er badmintonleik
ari í fremstu röð, og hefur átt
sæti í meistaraflokki undanfarin
ár.
Henning Boreh, frá ABC er
einn fjölhæfasti og traustasti bad
mintonleikari Dana.
Og Svend Andersen frá ABC.
er talinn efnilegastur> hinna upp
rennandi stjarna. Hann er ung
lingameistri bæði í einliða og tví
liðaleik. Aðgöngumiðasala verð
ur aðeins við innganginn.
íók bílinn trausta-
taki drukkinn
Reykjavík, 3. des. — ÓTJ.
DRUKKINN maður var tekinn á
bíl í kvöld. Lögreglan í Reykja-
vík hafði samband við lögregluna
í Hafnarfirði og bað hana um aff
svipast eftir bíl, sem tekinn hafði
verið traustataki í Reykjavík. —
Gerði Hafnarfjarðarlögreglan þaff
og hirti piltinn fljótlega. Var haun
töluvert undir áhrifum.
4 4. des. 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ