Alþýðublaðið - 04.12.1964, Síða 5

Alþýðublaðið - 04.12.1964, Síða 5
UM ÁRSINS HRING EFTIR SIGURRJÖRN EINARSSON Reykjavík, 2. des. ÓJ. Út er komin bók með ræðum «g ritgerðum eftir Sigurbjörn Ein arsson biskup. Um ársins bring nefnist bókin, úr stól, frá altari yfir moldum. Setberg gefur út. í fyrsta hluta bókarinnar, Um árs ins hring, eru nokkrar prédikan- ir á stórhátíðum, en í öðrum hluta Rastir i daganna rás, ræður við onnur tækifæri. í þriðja hluta eru minningarorð um þá Stein Steinarr, séra Friðrik Friðriks- son, John F. Kennedy og Davíð Stefánsson. Bókin er 277 bls. að Stærð. í>á hefur Setberg gefið út all mikla syrpu af barnabókum og ennfremur Orðabók frímerkja- safnara sem Sigurður H. Þorsteins son tekur saman. Er hún eink um ætluð þeim sem nota erlenda frímerkjalista. Eina barnabók íslenzks höfund ar gefur Setberg út, Knattspyrnu SR. SIGURBJORN EINARSSON 1 drenginn eftir Þóri Guðbergsson. | Sagan er ætluð 10-14 ára drengj Um Eyjar og Annes Reykjavík 2. des ÓJ. Um ejrjar og annas nefnist rit 1 eftir Bergsvein Skúlason sem bókaútgáfan Fróði gefur út, ferða þættir og minningar frá Breiða firði. Skiptist bókin í tvo hluta: Dokað við í vestureyjum Breiða fjarðar og Að vestan. í formála Begir höfundur að bókin sé að Stofni til safn útvarpserinda um Breiðafjarðareyjar og breiðfirzk tnálefni sem hann hafi rakið upp og sett saman í bók með nokkr Um viðbótum. Hljóti bókin bæri legar móttökur mun framhald vænKaniegt á, útgáfurm^- Bókin er 274 bls. að stærð, með mörg lim myndum, vönduð að frágangi. Þá gefur Fróði út bók sem nefn lst Konur í kastljósi. Höfundur er Jon Whitcomb en Gissur Ö. Erlingsson þýddi bókina. ,,í bók Jnni er að finna viturleg ráð og leiðbeiningar um framkomu, klæðaburð og snyrtingu, óháð tízkusveiflum, og þó kannski fyrst | óg fremst rækt hverrar konu við ; séreinkenni sín og einstaklings cðli,“" segir á kápu. Konur í kast ljósi er 235 bls. að stærð með mörgum myndum. Báðar bækur nar eru prentaðar í Prentsmiðju Jón Helgasonar. um, en höfundur er 25 ára gam alj Re'ykvíkingur sem mikið hef ur starfað með drengjum í íþrótta hreyfingunni og KFUM. Aðrar f unglingabækur Setbergs eru þess i --v ar: Skólaástir eftir Signe Utne, Guðrún Guðmundsdóttir þýddi. Dularfulla fegurðardrottningin eftir Sylviu Edwards, Guðrún Guð mundsdóttir þýddi. Anna Maria trúlofast eftir Evi Bögenæs. Sig urður Gunnarsson þýddi. Erna og Inga Lára eftir Margarethe Hall er, Guðrún Guðmundsdpttir þýddi. Þessar bækur eru allar ætlaðar.stúlkum. Pabbi segffu mér sögu, heitir sagnasafn handa drengjum og stúlkum sem Vil- bergur Júlíusson velur og þýðir. Drengjabækur Setbergs eru þess ar: Henry Ford eftir Sverre S. Ám- undsen, fjórða bókin í bóka- flokknum Frægir menn sem Frey steinn Gunnarsson þýðir og gef ur út. Sandhóla-Pétur eftir A. Chr. Westergaard, Eiríkur Sig- urðsson þýddi. Grímur og leyni- félagiff eftir Richmal Cromton, Guðrún Guðmundsdóttir þýddi. Grímur ffrallari - njósnarinn mikli Guðrún Guðniundsdóttir þýddi. Sjötta bókin í þessum flokki með myndum eftir Bjarna Jónsson. Lási gerist Ieikari eftir Sivar Ahl rud, Þýðanda ógetið. SVERRIR KRISTJANSSON TOMAS GUÐMUNDSSON Orlagabættir eftir Sverri og iómas Reykjavík, 2. des. ÓJ. Konur og kraftaskáld, íslenzk ir örlagaþættir, nefnist bók eftir þá Sverri Kristjánsson og Tómas Guðmundsson sem bókaútgáfan Forni gefur út. Skrifar Tómas þar frásöguþætti af tveimur kon um Látra-Björgu og Skáld-Rósu, en Sverrir skrifar um Bólu Hjálmar. í formála segja höfund arnir að þættirnir séu upphaf lega skrifaðir fyrir tímaritið Satt og birtir þar nafnlaust í márfið arlegum köflum fyrir allmörg- urri árum. Ennfremur segja þeir um sögufólk sitt að það hafi snemma eignazt migið rúm í huga þjóðarinnar, haldið áfram að lifa þar og mótast löngu eftir sina dag. Geti reynzt erfitt að greina millj staðreynda og skáldskapar Framhald á 10. síffu IBN SAUD Bókaútgáfan Vörðufell hefur gefið út ævisögu Ibn Sauds Ara bíukonungs sem nýlega var velt frá völdum. Ibn Saud, ævisaga eyðimerlcurkonungsins nefnist bókin og er eftir David Hogarth. Biglaugur Brynleifsson þýddi. Bókin er 240 bls. að stærð, með pokkrum myndum. Doktor Valtýr segir frá Úr bréfum dr. Valtýs G uðmundssonar Um síðustu aldamót var uafn Valtýs Guð- mundssonar ef til vill kunnara hér á landi en nokkurs annars íslendings, sem þá var uppi. Stjórnmálastefna hans var nefnd Valtýska og fylgismenn hans Valtýingar. Tímarit hans, Eimreiðin, var þekktasta tímarit landsins og átti sinn þátt í að kynna nafn hans. Nú muna aðeins aldraðir menn þann styr, sem stóð um þennan nafntogaða mann. En saga hans er forvitnileg á marga lund. Umkomulítill smali úr Húnavatnssýslu ryður sér braut af eigin rammleik, verður háskólakennari í Kaup- mannahöfn, stofnar og gefur út fjöllcsnasta tímarit landsins, gerist foringi stjórnmála- flokks og munar litlu, að hann verði fyrstur íslenzkra manna skipaður ráðherra íslands. BÓKFELLSÚTGÁFAN. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 4. des. 1964

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.