Alþýðublaðið - 04.12.1964, Side 6
TÁNINGURINN hagaði sér illa við matarborðið og móðirin fór
að skranma hann. Hann lét sér ekki segjast og þá blandaði faðirinn
sér í málið, svo aS úr varð mikill hvinur. Loks stóð kauði upp og
hrópaSi:
„Hvað er þetta eiginlega?, Stereo-skammir?“
—★—
SKILGREINING á einstefnugðtu:
. — Gata, þar sem aðeins er hægt að keyra aftan á mann.
—★—
MAURICE Chevalier virðist vera i óða
önn að skapa sér sess sem aðalheimspek-
ingur ellinnar i Frakklandi. Nýlega sagði
hann í skálaræðu:
„Þegar maður er kominn yfir sjötugt,
borðar maður betur, sefur betur og finnst
hafa meiri lífskraft, en þegar maður var
þrítugur. Það er augljóslega heilsusam-
legra að hafa konur í huga en í fangi.“
REYNDI maðurinn sagði: ^Það er tvenns konar fólk, sem
aldrei kemst neitt áfram í lífinu. Það, sem aldrei gerir það, sem
maður segir þvi, og það, sem alltaf gerir það.“
— ★ —
í BANDARÍKJUNUM er farið að framleiða skyrtuhnappa með
innbyggðum hitamæli.
Hugmyndin er að koma því svo fyrir, að hinn velklæddi maður
setj@ stolt sitt í að vita í hvaða hitastigi hann er hverju sinni.
HIN stolta, franska silkiborg Lyon þarf
að fá neðanjarðarjárnbraut, en bara ein ” % fg|
lína í slíkri braut mundi kosta nokkrar
milljónir franka. gg ■ i
Miklar áhyggjur væru í borgarstjórninni, en Ki km'.
borgarstjórinn gleymdi að sjálfsögðu ekki B.i' ' ' rM
að agítera í Pompidou forsætisráðherra, FJk
þegar hann dvaldi í París fyrir skemmstu. WmK , ’ .
Þegar forsætisráðherrann heyrði hinar \ v. iL.
háu tclur, varð hann áhyggjufullur á svip,
en borgarstjórinn reyndi að róa hann:
— Já, þetta virðist hátt, herra forsætisráðherra, en í áætlun-
inni er líka gert ráð fyrir öllum kostnaði, allt ofan í blístrur starfs
mannanna á stöðvunum.
— Gott, sagði Pompidou, þá held ég, að ég geti lofað Lyon
styrk i kaupa á blístrunum, en afganginn verðum við víst að láta
bíða fyrst um sinn.
—★—
Jasche Heifctz,- hinn mikli fiðlusnillingur, haf?íi eitt sinn þegið
boð um að koma íil „ekta, enskrar tedrykkju“ hjá virðulegri, gamalli
frú. Hún tók honum með mikilli ánægju; en sagði síðan með greini-
legum vonbrigðum í rómnum:
— Það var fallega gert af yður að koma, herra-Heifetz, en ég
hafði vonazt til að þér kæmuð með fiðluna yðar með ykur.
— Ég skal segja yður frú, fiðlan mín hatar te.
GRETA GARBO er um þessar mundir í
heimsókn í Hollywood en neitar ákveðið, að
það standi i nokkru sambandi við, að hún
hyggist leika aftur í kvikmynd.
Og hún kemur með skynsamlega skýr-
ingu:
— Aldrei aftur fram fyrir kvikmynda-
tökuvél: Ég vil, að áhorfendur geymi þá
mynd af mér, sem þeir sáu í síðustu mynd
minni.
Vörður um Wilson
Fyrir skemmstu var þess get
ið í fréttum, að Harold Wil-
son, forsætisráðherra Breta,
hefði farið í fyrsta sinn til
sveitasetursins Chequers í Buc
kinghamshire, sem er hið opin
bei'a sveitarsetur brezkra for-
sætisráðherra. Á sveitasetrinu
ræddi hann við ýmsa af sam-
ráðherrum sínum, svo og
helztu yfirmenn landvarna, um
varnarmál. Fóru viðræður þess
ar fram til undirbúnings við
ræðum "Wilsons við Johnson
Bandaríkjaforseta, sem fram
eiga að fara á næstunni. Á
meðan viðræðurnar fóru fram
í Chequers var hafður sterk-
ur vörður lögreglu og ríðandi
herliðs um búgarðinn, og sýna
myndirnar verði.
HEIMTAR DAUÐA
BANKI einn í Novato í Kaliforníu hafði ákveðið að hefja starfsemi
sína á „Þakkarhátíð" þeirra í Ameríku, en menn urðu dálítið hugs-
andi þegar í Ijós kom, að daginn bar upp á föstudaginn 13. nóvernber.
Það var samt opnað, en til að friða hjátrúarfulla viðskiptavini hafði
bankinn ráðið sérstakan öryggisvörð, og voru allir menn í honum
„vopnað*r“ skeifum, kanínulöppum, fjögurra laufa smárum og öðrum
viðurkenndum hlutum til að koma í veg fyrir óhöpp.
Bandaríkjamaður, sem dæmd
ur hefur verið til dauða í Mexí
kó, hefur neitað þiúm lmög)u-
leika að sitja í fangelsi í stað
inn, vegna þess að hann staðhæf
ir, að hann sé saklaus að morði
því, sem honum var gefið að
sök.
| Útvarpstöð ein í Texas hringdi
i til mannsins, sem heitir Dykes
j Askew Simmons og situr í fang
1 elsi í Monterry í Mexíkó, og
I var samtalinu útvarpað. Hann
j sagði m.a.: „Ég er algjörlega sak
ilaus og á ekki skilið neina refs
ingu'.. . Ég er reiðubúinn að
deyja .strax fyrir þessa staðhæf
ingu,“ sagði hann
Simmons var fundinn sekur
um morð á þrem táningum úr
þekktri fjölskyldu í Monterry
fyrir fimm árum. Síðan hefur
fólk báðum megin við landamærin
verið að reyna að fá dóminum
hrundið á þeim grundvelli, að
hann hafi byggzt á tilviljun og
röngum framburði vitna.
Ríkisstjórnin hefur sagzt fús
til að breyta dóminum í 30 ára
fangelsi. Ekki ,er vitað, hvOrt
Simmons getur heimtað að vera
tekinn af lífi, ef honum verður
ekki sleppt.
Rauöar stöðumælasekíir
I Noregi eru miðarnir, sem lög-
reglan hengir á bílana vegna ó-
löglegrar „parkeringar" rauðir
að lit. Maður einn i Álasundi
lagði um daginn bíl sínum við
gangstéttarbrún á meðan hann
skrapp inn í verzlun, en þegar
hann kom út eftir örfáar mínútur
sá hann rauðan miða á bílnum.
Maðurinn varð fokvondur, rauk
á lögreglustöðina og skóf ekkert
utan af fyrirspurn sinni um það
hvern sjálfan ? það ætti að þýða
að vera að setja miða á bíl sinn,
þó að hann hlypi inn í búð á
meðan hálfur bærinn legði bíl-
um sínum ólöglega, án þess að fá
miða.
Varðstjórinn bað um að fá að
sjá miðann, sem hann fékk. Það
var tilkynning um kvöldsamkomu;
Hjálpræðishersins í bænum.
£ 4. des. 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ