Alþýðublaðið - 04.12.1964, Side 9

Alþýðublaðið - 04.12.1964, Side 9
Frásagnir Reykjavík, 3. des. - OÓ ÚT ER KOMIN hjá Ægisútgáf- unni bókin Heiðurskarlar. Fjall- ar hún um fimm sjómenn, sem allir hafa hlotið heiðursmerki sjómannadagsins. Bókin er skrif- Uð af jafnmörgum höfundum. Guðmundur Daníelsson skrif- ar um Eyrbekkinginn Árna Helgason, Kristján frá Djúpa- læk skrifar um Eyfirðinginn Egil Jóhapnesson, Stefán Júlíus- son um Hafnfirðinginn Guð- mund Knútsson, Gísli J. Ást- þórsson ritar um Norðfirðinginn Ásmund Jakobsson og Jónas Árnason skrifar um Reykvíking- inn Guðmund Árnason. fimm heiðurskarla Stefán Júlíusson og Guðmundur Knútsson. Allir liafa menn þessir lifað stormasama ævi og tilbreytinga- rika og hefur öll sjósókn tekið miklum breytingum síðan þeir stigu fyrst á skipsfjöl með sjó- ferðakistur sínar eða sjópoka. í formálsorðum bókarinnar seg ir m.a. Sjómannadagsráð hef- ur á undanförnum árum heiðrað ýmsa menn, sem þótt hafa slíks verðir öðrum fremur fyrir störf sín á sjónum, fengsæld og dugn- að og einstök afrek. Með þessu hefur ráðið sýnt fullan skilning á því hlutverki sínu, að lialda á lofti nöfnum þessara manna, sem íslenzkur almenningur á meiri þakkir að gjalda en flestum öðr um. En að baki hverju nafni liggur meiri og lengri saga en hægt er að segja í stuttum ræðum á sjó- mannadaginn, og þar sem Ægis- útgáfan þykist þess fullviss, að mörgum muni liggja forvitni á að vita nánari deili á þeim mönn- um, sem hlotið hafa urrírædd heiðursverðlaun hefur hún ráð- izt í að gefa út þessa bók. Ægisútgáfan telur sér sóma að því efni, sem menn þessir hafa hver um sig lagt til bókarinnar.“ Aftast í bókinni er bókarauki sem nefnist Fólkið, sjórinn, fisk- urinn. Er það safn eitt hundrað ljósmynda, gefur nafn bókarauk- ans til kynna efni þeirra. Elztu myndirnar eru frá því fyrir alda- mót og sýna þar sjósókn og fisk- verkun allt fram til síðustu ára. Útgáfa bókarinnar hefur að miklu leyti verið í höndum þeirra Jónasar Árnasonar og Gísla J. Ástþórssonar. Ytra útlit hefur Gísli B. Björnsson séð um. Frentsmiðja Guðmundar Jó- hannssonar prentaði texta en Prentverk myndir. Prentmót gerði myndamót. Bókin er 260 síður með bókar- auka, prentuð í stóru broti og öll hin eigulegasta. Vestur-íslenzkar æviskrár, 2. bindi Reykjavík, 2. des ÖJ. Út er komið annað bindi af Vestur - íslenzkum æviskrám sem Benjamín Kristjánsson tekur saman en Bókaforlag Odds Björns sonar á Akureyri gefur út. Segir höfundur í formála að bindið sé með líku sniði og hið fyrra sem út kom 1961. „Þó hefur meira verið sveigt inn á þá leið að taka heila ættbálka, þar sem kostur hefur verið á nægum upplýsingum, segja fyrst frá landnámsmann- inum og gera síðan meiri eða minni grein fyrir öllum afkom- endum hans lifs eða Iiðnum. Hef ur þessi aðferð þann kost, að betra er að átta sig á skyldleika manna, auk þess sem ekki þarf að telja sömu ættfeðurna á mörg um stöðum.“ Þá segir höfundur að þriðja bindi æviskránna sé nú í undirbúningi. Vestur - ís- lenzkar æviskrár er 245 bls. a\jS stærð og hin veglegasta að oll um frágangi. Um 500 mannamynd ir eru í bókinni, en henni lýkur með nafnaskrá bindisins. Ný skáldsaga eftir Stefán Jónsson STEFÁN JÓNSSON Reykjavík, 2. des. ÓJ. Isafoldarprentsmiðja hefur sent frá sér nýja skáldsögu eftir Stef án Jónsson. Vetur í vindheimum heitir sagan og mun vera ein þeirra sagna Stefáns Jónssonar sem hann ætlar fullorðnum les- endum sínum og börnum og ungl ingum jöfnum höndum. Af þess um sögum Stefáns eru Hjalta- sögurnar nafnkunnastar til þessa. Vetur í vindheimum er 198 bls. að stærð. Þá gefur ísafold út Kjarnyrði sem Pétur Sigurðsson hefur tekið saman, innlent efni þýtt og frumsamið, 121 bls. að stærð,- og nýtt ritgerðasafn eftir Árna Óla. Bók Árna nefnist Grúsk og eru þar 18 greinar um þjóð leg fræði. Bókin er 222 bls. að stærð, með mörgum myndum. Málið farið til ráðuneytisins Reykjavík 2. des. GO. SAMKVÆMT upplýsingum sak sóknararíkisins, er mál starfsfólks Útvegsbankans nú í athugun hjá viðkomandi ráðuneyti Er það sam kvæmt lögum um meðferð mála opinberra starfsmanna, en sak- sóknara ríkisins er mál starfsfólks sagnar og tekur sínar ávarðanir. Við hringdum í viðskiptamála- ráðuneytið, þar sem málið er í at hugun, en fengum það svar, að ráðherra væri erlendis og málinu verði ekki hreyft fyrr en liann kemur til landsins, væntanlega nú um helgina. HOLMEGAARD glass of xuodern design rOUNDEO 182.9 NÝKOMIÐ G. B. Sjlfurbúðin Laugavegi 55. — Sími 11066. BIFREIÐAEIGENDUR Höfum opnað bílaverkstæði að Miðtúni við Vífilstaða- veg. — Framkvæmum flestar viðgerðir. Reynið viðskiptin. RÉTTING S.F. SÍMI 51496. ÝMSAR STÆRÐIR. Söluumboð: HRAUNHOLT v/Miklatorg. TRELLEBORG SNJÓ- hjólbarðar Gunnar Ásgeirsson h.f. Suðurlandsbraut 16. Auglýsingasíminn er 14906 ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 4. des. 1964 9

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.