BFÖ-blaðið - 01.02.1967, Blaðsíða 15
Sannleikurinn er sá, að næstum
því hver einasti góður vanalegur bíll
kemst ótrúlega vonda vegi, eða veg-
leysur, sé honum rétt ekið. Ekki
munum við þó eyða miklu rúmi hér í
vegleysurnar, aðeins drepa á örfá
atriði til leiðbeiningar:
Gattaðu aldrei með bílinn þinn út
af vegi, nema augljóst sé að ekki sé
um neina sérstaka farartálma að
ræða. Farðu út úr bílnum og athug-
aðu málið, eða sértu með farþega
með, þá biddu einhvern þeirra að
ganga á undan og athuga leiðina.
Það getur verið óþægilegt að sitja
fastur í leðju upp á öxla, eða fá gat
á pönnu, svo eitthvað sé nefnt. Sé
vegleysa slæm, láttu þá fólkið fara
úr bílnum þar sem verst er. Varaðu
þig á jarðföstum steinum, þeir geta
leynt á sér, jafnvel í djúpum forar-
pollum - og aktu hægt. Sé mjög vont
undir, aktu þá á lágu gíri, annars
getur bíllinn drepið á sér. Gefðu
ekki mikið benzín svo ekki spóli. Sé
um djúp hjólför að ræða, þá reyndu
svo sem unnt er að aka utan þeirra.
Það getur verið erfitt að ná sér upp
úr slíkum hjólförum og séu þau ekki
mátuleg fyrir bílinn, getur þetta stór-
skemmt hjóla- og stýrisbúnað. Að
auki getur undirvagninn skemmst,
taki upp undir. Aktu alltaf mjög
hægt í djúpar holur svo ekki slái
niður. Sé jarðfastur steinn svo stór,
að þú treystir vart bílnum til að
fljóta yfir, getur verið reynandi að
aka yfir hann með hjóli, en mjög var-
lega. Það sleppur oft betur. Bezt er
auðvitað að aka til hliðar, en það
er ekki alltaf hægt. Hættulega, lausa
steina færir maður til hliðar sé það
hægt. Séu þeir of þungir, verður
heldur ekki ekið yfir þá á smábíl.
Þar sem hætta er á að bíll spóli,
verður að aka með lítilli benzíngjöf
og helzt ekki á i. gíri. Sitji bíll fastur
í for eða leðju, þá stanzaðu og
reyndu með lægni að „vagga“ hon-
um upp úr, settu grjót í hjólförin sé
það handbært nærri og láttu farþeg-
ana íta. Sértu einn,' þá siturðu máske
þar sem þú ert kominn þar til ein-
hver bjargar þér. Þessvegna er bezt
að fara að öllu með gát.
Ef þú kemst ekki upp bratta
brekku, annað hvort af því að hún er
of brött fyrir bílinn eða hál, þá settu
fljótt í bakgír, slepptu benzíninu og
stýrðu niður aftur með hreyfilheml-
un.
Það getur jafnvel komið til greina
að nota keðjur að sumarlagi á hál-
um og bröttum leirvegum. En það
verður að þenja þær fast á hjólin.
Bíll dreginn
Ég á smábíl, þungan og sterkan,
sem vinnur vel og og allt það. Hann
er að framan útbúinn með festingu
fyrirdráttartaugvegna þess að reikn-
að er með því að hann geti bilað og
geti þurft drátt. En hann er ekki út-
búinn með neinni festingu að aftan
BFÖ BT.AÐIÐ
15