BFÖ-blaðið - 01.04.1989, Blaðsíða 6
Eru karlar betri ökumenn en konur?
Margt bendir til þess samkvæmt niðurstöðum könnunar
sem Hagvangur gerði fyrir Bindindisfélag ökumanna
Ýmislegt athyglisvert kom fram í könnun á
akstri og umferðaróhöppum sem Hagvangur
gerði fyrir Bindindisfélag ökumanna, meðal
annars að konur aka mun minna en karlar en
þær lenda jafn oft og þeir í óhöppum.
Könnunin var gerð í febrúar og svör fengust
frá 775 körlum og konum á aldrinum 18-67
ára. Allir þátttakendurnir voru spurðir hve
mikið þeir aki sjálfir að jafnaði á hverju ári.
Þeir sem sögðust aka eitthvað voru síðan
spurðir hvort þeir hefðu lent í umferðaróhappi
á síðasta ári, sem ökumenn.
Um 97% karla aka en aðeins 78% kvenna
(sjá töflu 1). Hlutfallið er mjög svipað í öllum
aldurshópum karla en hjá konum er hlutfallið
um 90% fram yfir fertugt en fer niður í 30%
eftir sextugt (sjá töflu 2). Nær enginn munur
er á því eftir búsetu hve hátt hlufall karla er
akandi en nokkur munur hjá konum. Um 77%
kvenna á höfuðborgarsvæðinu aka, um 84%
kvenna á öðrum þéttbýlisstöðum en aðeins
61% kvenna í dreifbýli.
Þær konur sem aka á annað borð aka mun
minna en karlar. Karlar aka að meðaltali um
18.600 km á ári en konur um 8.100 km. Lítill
munur er á meðalakstri eftir aldri (sjá töflu 3).
Þrátt fyrir það að konur aki mun minna en
karlar lentu um 13% þeirra í umferðaróhöpp-
um á síðasta ári sem ökumenn, en það er sama
hlutfall og hjá körlum (sjá töflu 4). Þetta sam-
svarar því að áttundi hver ökumaður hafi lent
1 umferðaróhappi á síðasta ári. Óhappatíðnin
er mun meiri á höfuðborgarsvæðinu en ann-
ars staðar á landinu (sjá töflu 5). Óhöppum
fjölgar ekki í beinu hlutfalli við það hve mikið
er ekið. Um 11-14% þeirra sem aka allt að 30
þús. km á ári lenda í óhöppum, 19% þeirra sem
aka 30-40 þúsund km og um 22% þeirra sem
aka meira en 40 þúsund km á ári.
Þegar litið er á aldur þeirra sem lentu í
óhöppum í umferðinni á síðasta ári kemur
greinilega í ljós að yngstu og elstu öku-
mönnunum er hættast í umferðinni (sjá töflu
6). Nær annar hver ökumaður 18—20 ára lenti
í óhappi, innan við tíundi hver á miðjum aldri
og um fimmti hver eldri en sextugur. í allra
yngsta aldurshópnum er körlunum hættara
en konunum en á sjötugsaldri er konunum
hættara. Könnunin náði ekki til 17 ára ungl-
inga, sem eru nýkomnir með bílpróf, en þrír af