BFÖ-blaðið - 01.04.1989, Blaðsíða 14

BFÖ-blaðið - 01.04.1989, Blaðsíða 14
Frá Umferðarráði Mikið í húfi Þeir sem starfa að umferðarmálum hafa haft miklar áhyggjur af tilkomu bjórsins. Ótt- inn stafar af því að líkur á ölvunarakstri munu væntanlega aukast með þessari viðbót við áfengisframboð hér á landi. Umferðarráð byrjaði að fjalla um þetta efni í nóvember á síðasta ári. Þá ályktaði ráðið um þetta efni og lagði til að á bjórumbúðir yrðu settar merkingar þar sem varað yrði við akstri eftir bjórneyslu. Fjármálaráðherra, dómsmálaráðherra og heilbrigðisráðherra var send þessi ályktun og óskað eftir að af- staða yrði tekin til hennar. Ekki hafa borist svör við þessari ósk og bjórsalan er hafin. Umferðarráð hefur leitast við að koma þeim skilaboðum til landsmanna á síðustu vikum að bjórdrykkja og akstur eigi ekki samleið. Það hefur verið gert með ýmsum hætti, en hæst ber áreiðanlega lag Valgeirs Guðjóns- sonar - Ég held ég gangi heim. Boðskapur þess er einfaldur og framsetningin skemmti- leg og víst er að skilaboðin virðast hafa náð til almennings á þeim vikum sem liðnar eru frá 1. mars. Lögregla hefur haft meira eftirlit með ölv- unarakstri en endranær, en svo virðist sem ölvuðum ökumönnum fjölgi ekki. Það ber þó að hafa í huga, að þetta eru fyrstu áhrifin. Áróður hefur verið öflugur og skýr, en margir óttast að þetta sé aðeins lognið á undan storm- inum. Þegar frá líði aukist ölvunarakstur og þá um leið slys sem honum fylgja. Það er raunar ótrúlegt hversu margir eru teknir á ári hverju fyrir ölvun við akstur. Flestir vita hverjar afleiðingar hann getur haft og þeir eru ótrúlega margir sem tilbúnir hafa verið til að vitna um það. Ölvunarakstri getur fylgt mannlegur harmleikur sem fylgir fólki það sem það á ólifað. Með honum geta menn lagt Qárhag sinn í rúst og það sem meira er - valdið ógæfu sem ekki er hægt að bæta. Næstu mánuðir eru mikilvægir. Sumarið getur orðið prófsteinn á hvort bjórinn eigi eftir að valda óbætanlegum skaða í umferðinni eða hvort íslenska þjóðin eigi eftir að líta á hann eins og hvert annað áfengi og láta vera að aka bíl eftir bjórdrykkju. Umferðarráð heldur áfram baráttu sinni gegn ölvunarakstri, bar- áttu fyrir auknu umferðaröryggi til handa þegnum þessa lands. Það gerist með áróðri, fræðslu, virkri löggæslu og vakandi umræðu manna á meðal. Mikið er 1 húfi. Sigurður Helgason, upplýsingafulltrúi. Ég held éggangi heim held ég gangi heim . . . þetta er búið að vera eitt brjálæðislegt geim Ég held ég gangi heim . . . Alveg skothelt kvöld og skemmtilegt fólk sem skálaði í öllu öðru en mjólk. Kjálkaliðnum kjöftuðu sig allir úr og Indriði var orðinn alveg hrikalega klúr. Égheld . . . Tvíburarnir æfðu í sófanum svig og sungu lög eftir Bubba, Megas og mig. Milliraddir flæddu úr munnunum út og Matthildur lék undir á tóman flöskustút. Ég held . . . Laufey er að hringja á leigubíl Hún vill losna sem fyrst við þennan skríl. Eysteinn vildi ólmur aka afstað, en amma gamla í kjallaranum bannaði’ honum það. Ég held ég gangi heim . . . Égheld . . . Allir hlutir enda og eins þetta kvöld allur bjórinn búinn og pizzan skítköld. En bíllyklarnir eru enn á sínum stað og það ernú það er nú það er nú það.

x

BFÖ-blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.