Skólablaðið - 01.12.1910, Síða 12
188
SKOLABLAÐIÐ
Ritdóm um svo mikla og merka bók sem þessa hefur Skóla-
blaðið ekki rúm fyrir; en mjög eindregið vill það benda kenn-
urum og öðrum fróðleiksfúsum mönnum á hana til að afla sér
þekkingar á hinum mikla og mæta manni. Hún mun kosta 10
kr., og kann að vera mörgum of vaxið að eignast hana. En
þá eru bókasöfnin. Ekkert bókasafn eða lestrarsafn má láta hana
vanta í hylluna.
Landafræði handa börnum og unglingum eftir
Karl Finnbogason. Bókaverslun C 'ðm. öama-
líelssonar. Rvík.
Það er önnur útgáfa, aukin og bætt; íslandskort, sem var
bundjð í fyrstu útgáfu, kemur og innan skamms, og fá kaupend-
ur bókarinnar það án endurgjalds.
Bók þessi hefur þegar hlotið almenningshylli, og ætti þá
eigi síður, að fa|la mönnum í geð nú, er hún kemur í nýrri
prentun, aukin og endurbætt. —
Fjöldinn allur af myndum er í bókinni, og flestar góðar;
munu vera bæði til gagns og gantans unglingum. Útgáfan er
vönduð að prentun og pappír, og er bókin seld á 2 krónur
(með uppdrætti íslands) í laglegu skólabandi.
Dóttir veitingamannsins. Eftir Ouðm. R. Ólafs-
son. Prentsni. D. Ostlunds 1910.
Er lítið kver, og á að vera skáldsaga, en er lítið listaverk.
Það er bindindishugvekja, og má vera að hún geri eitthvert gagn
þeim er lesa hana til enda.
Spurningar og svör.
1. Hvernig á kennari að ná rétti sínum gagnvart fræðslu- eða
skólanefnd, serrl hann er ráðinn hjá með samningi og 4 mán-
aða uppsagnarfreíti, ef hún eftir að hafa fengið bréf frá honuni
þar sem hann óskar eftir atvinnu áfram, (sökum þess hann
hafði hugboð um að annar kennari væri ráðinn), ekki
svarar bréfinu og í tilbót segir ekki upp samuingnuni fyr ert