Skólablaðið - 01.12.1910, Blaðsíða 15
SKÓLABLAÐIÐ
191
Stjórnarráðið gaf út 18. sept. 1906 auglýsingu um skilyrði
til bráðabyrgða fyrir styrkveitingu úr landsjóði til unglingaskóla.
Þar var nieðal annars áskilið, að skólarnir stæðu 5 mánuði árs-
ins; en þetta ákvæði hefur reynst erfitt til framkvæmdar. Hér
hefur því verið gjörð sú breyting, að skólar þessir þurfa ekki
að standa lengri tíma en 3 mánuði til þess að geta fengið lands-
sjóðsstyrk.
Eins og skilyrðin eru nú, virðist auðvelt að fullnægja þeim,
enda má fráleitt búast við neinum styrk eftirleiðis, sé þeim ekki
fullnægt öllurrt, og að öllu leyti.
Stj órnarráðsúrskurður.
Fræðslunefnd Sveinsstaðahrepps í Húnavavatnssýslu vísaði í
haust 10 ára barni frá farskólakenslu fyrir þá sök að barnið var
hvorki lœst né skrifandi. Aðstandendur barnsins vildu ekki við
una, heldur töldu fræðslunefnd skylt að annast fræðslu barnsins
af því að það væri orðið 10 ára. Um þetta hefur sjórnarráðið
felt svo lagaðan úrskurð, '■
að frœðslnnefndin hafi haft rétt til að neita barninu um far-
skólakenslu, og að það sé sjálfsagður réttur og skylda frœðslu-
nefndar að láta kenna barninu að lesa og skrifa, á kostnað
aðstandenda þess, ef þeir vanrœki enn að láta kenna því þetta.
Aukafundur
í hinu islenska kennarafélagi
var haldinn 5. f. m. Umræðuefnið var lesbók handa börnum.
Forseti félagsins hóf umræðurnar með því að taka frárn með
fám orðum hvaða kröfur mætti að hans áliti gera til góðrar
lesbókar.
Á fundinum voru mættir útgefendur »Lesbókar handa börn-
uni og unglingum«, og beindust umræðurnar einkum að því, hverj-
ir væru kostir þeirrar bókar og lestir. Komu fram ýmsar aðfinn-
ingar við hana, og bollaleggingar um það, hvað betur mætti fara.