Skólablaðið - 01.12.1910, Blaðsíða 13

Skólablaðið - 01.12.1910, Blaðsíða 13
SKOLABLAÐIÐ 189 kenslan á að byrja og kennarinn þarafleiðandi missir af atvinnu? Á kennarinn ekki heimting á skaðabótum, eða að honum verði að fullu borguð la.'.nin, ef nefndin hefur engar sakir á hendur kennaranum? 2. Hvað á fræðslu- eða skólanefnd að gera í samskonar tilfelli gagnvart kennara? Svar: 1. Með málsókn fyrir samningsrof. 2. Sömuleiðis. í 10. tölubl. Skólablaðsins er skýrt frá ýmsu úr skýrslum um barnafr. 1909—10. Það er meðal annars sagt að í Svarfaðar- dals og Arnarness-hreppi í Eyjafjs. hafi verið »haldið uppi tveim fullkomnum farskólum í hvorum hreppnum fyrir sig.« Af styrk- veitingunni sést, að hreppar þessir hafi hvor um sig hlotið nær því helmingi hœrrí styrk, heldur en hver annar hreppur á öllu landinu sem mest fékk — að einutn undanskildutn. Mig furðaði á þessu, því eg áleit að eg væri ekki alveg ókunnugur fyrir- komulagi barnafræðslunnar í nefndum hreppum. Ummæli blaðsins benda til þess, að þetta Iiggi [í fyrirkomu- laginu (þótt barnatalan sé auðvitað há), og að hvergi annarstaðar á landinu hafi verið fullkomin farskólakensla. Nú væri gott ef Skólablaðið vildi gera svo vel að skýra frá, í hverju þetta fullk. fyrirkomUlag er innifalið, svo önnur fræðsluhéruð geti tekið það til fyrirmyndar. — Kennari. Svars Hreppur, eða fræðsluhérað, sem heldur 2 kennara í 6 mánuði fyrir að minsta kosti lögboðið kaup, löglega ráðna og hefur tvenn fullkomin farskóla-kensluáhöld, er talið að haldi uppi 2 farskólum. Þetta hafa framannefndir hreppar gert síðast- liðinn vetur, samkvæmt skýrslunum, og gátu því fengið »alt að 200 kr. fyrir hvorn farskólann,« (sbr. fjárlög) eða alt að 400 kr. hvor hreppur. Þeir fengu kr. 375 hvor eða að meðaltali kr 187,50 til hvers skóla. Einir 12 farskólar annarstaðar á landinu

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.