Skólablaðið - 01.12.1912, Side 15
SKÓLABLAÐIÐ
191
ÍTokkur góð áform kennara næsta ár.
Eg vil ekki tala illa um neinn, heldur festa auga á því sem
gott er í hverjum manni.
Eg vil láta mér sérstaklega ant um hvern einstakan nemanda
minn.
Eg ætla að leggjs stund á eitthvað sérstakt í þeim tilgangi
að verða verulega vel að mér í því.
Eg ætla að vekja áhuga nemenda á lestri góðra bóka.
Eg vil kynnast þeim, sem eg er að vinna fyrir (foreldrum
barnanna) og reyna að tryggja mér samvinnu þeirra.
Eg ætla að vera Iöghlýðinn og vil vera samhentur starfs-
bræðrum mínum.
Eg vil hafa glöggar gætur á sjálfum mér og allri minni,
framkomu og koma á hreinlæti og snoturri umgengni í kenslu-
stofunni.
Eg vil leggja alla stund á að gjöra nemendurna sjálfstæða
í athöfnum sínum.
Eg er staðráðinn í því að gjöra þetta ár að besta ári æfi
rninnar.
________________(Nw. J. of Ed.)
Smælki.
Það eru til tvenskonar menn; aðeins tvenskonar. Ekki
syndarar og dýrðlingar, því að syndararnir hafa eitthvað til síns
ágætis, og dýrlingarnir eru ekki algóðir. Ekki ríkir og fátækir;
því að vér verðum að þekkja heilsu og samvisku manna til
þess að geta metið auðæfi þeirra. ekki lánsmenn og auðnu-
leysingjar, því að árin sem yfir okkur líða, færa hverjum eín-
stökum bæði sorg og gleði.
Nei. Þeir tvenskonar menn, sem og og á við, eru þeir
sem bera byrðirta, og þeir, semeru byrði.
Hvar sem leið þín liggur, muntu reka þig á þessa tvo
flokka; og þú munt reyna að það er allt af einn sem byrðina
ber móti hverjum tuttugu, wm eru öðrum bvrði.