Skólablaðið - 01.02.1913, Qupperneq 4

Skólablaðið - 01.02.1913, Qupperneq 4
20 SKOLABLAÐIÐ unglinga mega ekki líða að það sem þeir kenna, sé rifið niður jöfnum höndum, eða gert að engu með leikaraskap og sérvisku. Það verður tafarlaust að krefjast þess af stjórninni að einhverjum föstum reglum sé fylgt í þeim námsgreinum sem eitthvað greinir á um. Hún verður að skipa færa menn til að skera úr er þannig stendur á. Öllum kennurum ætti að vera Ijúft að beygja sig með smámuni til þess að samræmi kæmist á. Eg vildi því óska að mál þetta yrði leitt til skynsamlegra lykta. — Eg tel mál þetta mjög skylt kennurunum og held að þeir séu færari af eigin reynslu sirini að dæma um hver heiti séu hentust, því börnin, unglingarnir sýna best hvað samþýðist hugsun og máli fjöldans. í stælunni síðastliðinn vetur var sagt að mjög sé ervitt að kenna börnu.m reikning með útlendum tugamálsheitum. Engan hef eg vitað sanna þetta með reynslu sinni. Sjálfur hefi eg notað út- lendu heitin við reikningskenslu og reyndist það vel. Mér hefir reynst ver að láta þau melta sumt annað sem eg hefi átt að kenna þeim. Eg verð því að álíta að þessi getgáta geri útlendu heitin um of tortryggileg. Mér kemur hinsvegar ekki í hug að hafa á móti, að út- lendu heitin séu þýdd á íslensku og kend, væri þess kostur; hvað væri sjálfssagðara en að kennarar tækju því fegins hendi, en ekki get eg vænst að kennarar felli sig við þær tilraunir er gerðar hafa verið. Það mun vera torvelt að þýða þessi heiti svo vel fari, því að nú hafa einmitt málfróðir og orðhagir menn reynt sig við það, en þó mun fáum hafa geðjast að þeim þýðingum þessara manna sem fram hafa komið. Eina af þessum þýðingum hefir stjórnin Iátið gera, og •'hefir hún víst vandað til hennar eins og hægt hefur verið, en þó hefir hún ekki tekist betur en svo, að ómögulegt er að nota hana við unglingafræðslu með nokkrum árangri. Nöfnin eru reglulaus og þessvegna nema unglingar þau ekki, og skil- greina þau heldur ekki í huga sér í samræmi við tigakerfið eftir magni þeirra eða merkingu heitanna frá venjulegri merkingu þeirra, því að sá gallinn er á, að flest þessara heita hafa aðra merkingu í málinu, einmitt óákveðna merking um stærðir. Þetta

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.