Skólablaðið - 01.02.1913, Page 15

Skólablaðið - 01.02.1913, Page 15
SKÓT ABLAÐIÐ • 31 2. Nú geta börnin eigi mætt einhvern dag vegna óveðurs, en við erum til taks á kenslustaðnum. Hefur þá fræðslunefnd- in leyfi til að draga af okkur kaup og fæði fyrir þann dag? eða þurfum við á nokkurn hátt að sakna í við það, þó forföli komi fyrir, sem á engan hátt er okkur að kenna? 3. Getur fræðslunefndin skorast undan að veita okkur fæðis- peninga meðan jólalaleyfi eða páskaleyfi standa yfir? 4. í skólahéraði einu eru fá eða engin börn í barnaskólanum, sem veittur verði Thorkillisjóðsstyrkur, en i prívatskóla í héraðinu, sem einskis styrks nýtur, eru mörg slík börn. Má breppsnefndin taka nöfn þeirra og sækja um styrk »út á þau« úr Thorkillisjóði, og láta þann styrk allan ganga til barnaskólans? 5. Ef það er óleyfilegt, hvað segist þá á því að gera það? 6. Á ekki fræðslunefnd, ef hún getur, að útvega skólanum húsnæði strax á haustin, svo aðstandendur barna, sem eru á fræðslu aldri, geti látið börn sín vera á þeim stöðum, er ástæður þeirra gera heppilegasta ? 7. Á fræðslunefnd að láta það ráða vali sínu, þegar um tvo staði er að ræða fyrir barnaskóla, hvor er ódýrari? 8 Á ekki fræðslunefnd, að öðru jöfnu, að taka þann stað, sem hefur bctri húsakynni? Svör. 1. Engin skylda að flytja kensluáhöld milli kensslustaða. Hve mikið á að greiða fyrir það, verður að fara eftir sam- komulagi. 2. Nei, — Nei, 3. Nei. 4. Þaó er ekki heimilt að brúka Thorkilliisjóðsstyrkinn til kenslu barna á aldrinum 10—14ára. 5. Líklega rétt að skila peningunum aftur ©g verja þeim síðan til uppeldis yngri börnum en 10 ára. 6. Ekki er neitt með lögum ákveðið um það, hvenœr fræðslu- nefnd útvegi kenslustaði, en sjálfsagt er að hún geri það á þeim tíma, sem héraðsbúum er hentugur. 7. Nei, ekki nema báðir staðirnir séu góðir. 8. Jú.

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.