Skólablaðið - 01.06.1915, Page 4

Skólablaðið - 01.06.1915, Page 4
84 SKÓLABLAÐlÐ Samkvæmt þessu væri minna kent af bókfræöum, en nú er gert að nafni tii Fróðleikinn fengju hinir bókhneigðu í ung- lingaskólunum. Barnaskólinn kendi þrifnaö, hreinlæti, aga, undirstööuatriði bóknáms og vekti velvild til bóka. Skólarnir gætu ennfremur útbreitt heilnæmar íþróttir, útigöngur, skíöa- og skautaferðir, ýmis konar leiki, ekki síst knattleiki. Bæöi eru slíkar íþróttir börnum mjög að skapi, gleðja þau og styrkja líkamlega. Heilsa, fjör og langlífi eru dýrmætari en utanaö- lærdómur. AS síöustu kemur heimilisiönaöur. Þar mætast óskir barna, foreldra og uppeldisfróðra manna. í hverjum heima- vistarskóla þyrfti frá upphafi að vera gott verkstæði, þar sem mætti smíöa einfalda hluti úr tré og járni, flétta smáhluti úr tógum, binda bækur í einfalt band, skera gler, sóla skó o. f 1. Þetta geta börn lært og er yndi aö. Vitanlega veröa þau ekki handiönamenn, og til þess er ekki ætlast. En þau eiga að verða búhög, geta gert fleira til gagns og þarfa á heimilinu, en þau heföu annars getaö. Áreiðanlega mundi borga sig, þó ekki væri nema heimilisiðnaðarins vegna, að koma á góðum heimavistar- skólum í sveitum. Lestur. Á seinni árum hafa heyrst talsvert háværar raddir um, að lestrarkenslu barna væri alment áfátt innan io ára aldursins, og vanasvar kennaranna, þegar þeir eru spurðir, hvaö helst standi börnunum fyrir námi, er lestrarvankunnátta, þegar þau komi frá heimilunum. Eru þá heimilin ekki fær um að kenna betur, eöa er börnum ofætlun að vera oröin læs fyrir 10 ára aldur? Eg held hvorutveggja spurningunni sé óhætt að svara neit- andi. Heimilin geta int skylduna um lestrarkenslu af hendi og engu líkamlega og andlega heilbrigöu barni er ofvaxið að vera oröiö nokkurn veginn læsu io ára gömlu. En þó með þessu sé borin vanræksla á heimilin, þá hafa þau nokkra afsökun. Kensluaðferð sú, er enn tíðkast hjá okkur, er óhafandi, og fæst heimili .þekkja annaö en stöfunaraöferðina, sem er sein- leg og deyfandi, og því er ver að margir kennarar hafa ekki

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.