Skólablaðið - 01.06.1915, Page 10
00
SKÓLABLAÐIÐ
Þar sem þaS er sannað, a8 kaffi hefur skaöleg áhrif.á melt-
ingu barna, og þar sem þaö er líka víst aö skemd matarlyst hef-
ur skaöleg áhrif á líkamlega líðan þeirra, auk ýmissa kvilla, sem
standa í sambandi viö slæma matarlyst, svo sem tannveiklun og
blóöleysi, þá ættu allir aö taka þvert fyrir það að börn njóti
kaffis. Hér gildir sama reglan og um áfengisnautnina: besta
ráðið að drekka aldrei fyrsta staupið, þ. e .láta börn aldrei
smakka kaffi. Það er háska braut að koma inn á, að gefa börn-
um svolítinn lit. Það lætur sér þá bráöum ekki nægja
minna en venjulega sterkt kaffi. Og afleiðingarnar láta ekki
bíða lengi eftir sér: fyrst lystarleysi og svo líkamleg veiklun
og andlegt þroskaleysi.
Kennari stjórnmálagarpur.
Fyrir tveim árum varð danskur barnakennari fyrir allharöri
árás í blaði fyrir þaö, að hann vasaðist of mikið í stjórnmála-
deilum og leitaöist jafnvel við að hafa áhrif á börnin í kenslu-
stundunum. Maðurinn heitir Sörensen, og hafði gerst póli-
tiskur snati einhvers stjórnmálaflokks. Nokkru síðar kærði
ritstjórinn Sörensen fyrir fræðslumálastjórninni; en hún skip-
aði, að rannsökuðu máli, skólanefndinni að veita vesalings
Sörensen, hinum trúa þjóni stjórnmálaflokksins, sem hann
var að smala fyrir, alvarlega áminningu. Nú hyggur Sören-
sen til hefnda og höfðar mál á móti ritstjóranum og krefst
iooo kr. skaðabóta, með þvi að greinar ritstjórans og lcæra
hefðu unnið sér tjó, eða gætu að minsta kosti gert það, —>
gætu gert sér ómögulegt að fá kennarastöðu annarstaðar. En
úr skólahéraðinu bjóst hann við að neyðast til að hörfa, þvi að
hann hafði orðið áþreifanlega var við að foreldrar barnanna
ætluðust ekki beinlínis til þess að hann kendi börnum þeirra
pólitík; vildu heldur að börnin væru laus við lexíur i tor-
trygni, rógi og mannhatri.
Nú fyrst í vor er kveðinn upp dómur í þessu máli, og situr
þessi pólitiski stjórnmálagarpur með sárt ennið og áminn-