Skólablaðið - 01.06.1915, Blaðsíða 15

Skólablaðið - 01.06.1915, Blaðsíða 15
SKÓLABLAÐlB og nemendur sungu Sigurjóni skilnaöarljóS viS skólauppsögn um daginn. Kennarafundur Norðurlanda, sem eftir venjunni átti að halda i Kristjaníu i ágúst i sumar, ferst fyrir — eflaust vegna stríðsins. Vertíðarlokin. Kennarana drífur að víðsvegar af landinu. Þeir hafa lokiö vetrarstarfinu, og „haldið prófið". Ýmsar sögur hafa þeir að segja af vetrarvistinni og vetrar- starfinu. Sumir glaðir og ánægðir; finst þeir hafa unnið gagn, og lifa í voninni um góða uppskeru. Hafa lifað góðu lifi, haft ánægju af börnunum, og fólkið verið ánægt með vinnu þeirra. Þessir kennarar hafa haft góða „vertíð“. En.svo eru aðrir, sem hafa aðra sögu að segja. Óhæfileg húsakynni til að kenna í; óviðunandi húsnæði, aðbúnað og mat- aræði fyrir þá sjálfa. Drepandi loftslag að lifa í, — andlegt og líkamlegt. Áhugaleysi fólksins og samúðarleysi með starfi þeirra, kuldinn sá ekki þolanlegri en kuldinn í kenslustofunni, sem þó hefur verið óyljuð, hverju sem viðraði, allan veturinn. Víða er pottur brotinn, og verður síðar á það minst, hver frekari skilyrði þarf að setja fyrir þvi, að landsfé sé varið til skólahalds. Skólahaldið er, því miður, sumstaðar svo lagað, að réttara væri að banna það en launa það með landssjóðsfé. Misþrentað efst á 93. bls. Ein lína tvíprentuð; önnur fallin úr. llíuÉr í iu íslenska kenarafélaii verður haldinn 26. þ. m. i kennaraskólahúsinu, kl. 5 e. h. Lagður fram reikningur félagsins fyrir liðið ár til samþyktar. Jónas Jónsson, kennari (frá Hriflu) talar um breytingar á fræðslulögum frá 22. nóv. 1907 og nýja lagasetning um lýð- mentunina. Kosnir stjórnarmenn. (Fulltrúa skal kjósa í stað Pálma Pálssonar og Sigurðar Jónssonar sem hafa verið fulltrúar 2 ár, og Jóns Jónassonar, sem er dáinn.) Rædd mál, sem upp kunna að verða borin.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.