Skólablaðið - 01.09.1919, Blaðsíða 1
SKÓLABLAÐIÐ
ÚT6EFANDI: HELGI HJÖRVAR
XI. ÁR. SEPTEMBER 1919. 9. BLAÐ.
Stefnuskráin.
iii.
pegar ræðir um heimilismenning og skólamenning,
má ekki gleyma því, að þær fara saman, ef vel er, og
styðja livor aðra, og að hvorug er einhlít. Enginn skóli
getur komið i stað góðs heimilis, en ekkert heimili,
hversu gott sem er, getur lieldur orðið manni einhlitt
til fullkomins þroska og hagnýtrar menningar.
Heimskt er heimaalið barn, segir gamall orðskviður,
og getur það sannast á bami, þótt uppfræðsla þess sje í
góðu lagi. Gott heimili er veröld út af fyrir sig, friðsæl
og örugg, ólík þvi sem gerist á almenningum lífsins. það
barn, sem aldrei hefir liaft af öðru að segja en vernd
og öryggi heimilisins, getur komist í illa raun, þegar
það alt í einu lendir i hnjaski lífsins, þarf að bjarga sjer
sjálft og sjá við ýmsu aðkasti; þetta hefir orðið mörgum
heimaöldum unglingi ofraun, og margur varð aldrei að
manni af því að hann lá of lengi i hveiti heimilisins og
varð kjöltubarn í skapi alla æfi, eða kjarklaus einræn-
ingur. pað er bcst livað með öðru, hlý húsakynni og hæfi-
leg útivist, ekki síst á þroskaskeiðinu, og þetla á ekki
síður við andlcga skilið. pað er holt og nanðsynlegt
hverju barni, að venjast smámsaman lifinu sjálfu, sem
biður þess, að sjá sig um á almenningum mannlífsins,
að ráða sjer sjálft, bjarga sjer sjálft, hfa á eigin spýtur