Skólablaðið - 01.09.1919, Qupperneq 6
134
SKÓLABLAÐIÐ
a) prófvottorö frá kennaraskóla, eða afrit af því, staöfest af
presti eöa hreppstjóra. b) umsögn skólanefndar eöa fræöslu-
nefndar eöa einstakra manna, sem umsækjandi hefir síöast
unniö hjá, hafi hann áöur haft kenslustörf á hendi. Skal í
þeirri umsögn sjerstaklega geta um dagfar kennarans, hæfi-
leika hans til að halda reglu og aga í skóla og aðra kennara-
hæfileka.
4. gr. — Nú sækir enginn, sem fullnægir skilyrðinu í 1. gr.,
í staflið b., um auglýsta kennarastöðu, áður en umsóknarfrest-
ur er út runninn, og skal skólanefnd eða fræðslunefnd þá gera
ráðstöfun til að útvega svo hæfan mann eða konu, sem kostuc
er á, til að hafa kensluna á hendi næsta skólaár, eða þangað
til löglega skipaður kennari getur tekið við henni. Leit.j
skal samþykkis yfirstjórnar fræðslumálanna til skipunar kenn-
ara tii bráðabirgða.
5. gr. — Kennarastöður skal veita frá þeim tíma, er ákveðið
er á hverjum stað að kensla skuli byrja, og taka kennarar þá
við þeim skóium, sem þeir hafa verið ráðnir til, nema öðru-
vísi um semjist. — Ef kennari getur ekki tekið til starfa á
tilteknum tíma, ráðstafar skólanefnd eða fræðslunefnd kensl-
unni þangað til hann getur tekið við lienni.
6. gr. — Nú segir kennari lausri stöðu sinni, eða hann hefir
verið ráðinn kennari við annan skóla, og ber honum að til-
kynna það þegar í stað skólanefnd eða fræðslunefnd þess
skóla, sem hann fer frá.
7• gr- — Kennarar eiga í öllu dagfari sínu, utan skóla og
innan, að vera góð fyrirmynd nemenda sinna og rækja skyldu-
störf sín með alúð og samviskusemi samkvæmt því, er nánav
verður tekið fram í erindisbrjefi, er fræðslumálastjórnin gef
ur þeim.
3. gr. — Ef kennari reynist óhæfur til að gegna skólakenn-
arastarfinu, eða ef hann vanrækir skyldustarf sitt, eða vekur
hneyksli með framferði sínu í daglegri hegðun, og lætur ekki
skipast við áminningu, ber skólanefnd eða fræðslunefnd að