Skólablaðið - 01.03.1920, Side 7

Skólablaðið - 01.03.1920, Side 7
SKÓLABLAÐIÐ 35 í frásagnaköflum af mikilmennum þeirra, Sven Hedin almenna landafræöi í feröasögusniSi o. s. frv. En listamenn þeirra prýöa lesbækurnar mei5 ágætismyndum, og eru litmyndir í mörgum þeim bókum, sem ætlaðar eru yngstu börnunum. En Svíar eru meö fremstu þjóöum i prentun og bókagerö, eins -og kunnugt er. Þessar aukalesbækur leggur skólinn til, svo aö þær fylgja venjulega hverri kenslustofu í jafnmörgum ein- tökum og börnin gerast i hverjum bekk, og getur kennarinn gripiö til þeirra hve nær sem vill. Viö lesturinn er lögö aöaláherslan á glögt og fagurt lestrar- lag, skilning efnisins og oröaskýringar og samtöl, en litt á málfræöi. Þó eru málfræöiágrip kend í efri bekkjunum. I forskólanum fer oft alt saman, lestur, skrift og stafsetning, og yfirleitt eru ritæfingar í flestum kenslustundum, fáar setn- ingar eöa lítiö í einu, en langir stílar sjaldgæfir. Þar sem svo margir eru í bekk, þykjast kennarar illa komast yfir aö leiö- rjetta hvern stíl og fást ekki um þaö nema viö og viö, én hafa ýms önnur ráö ; algengast mun þaö, aö börnin eru látin leiörjetta hvert hjá ööru, og ljetu margir kennarar vel af því. Að vísu eru þær leiörjettingar hæpnar og glompóttar, eins og auövitaö er. En sá kostur fylgir þó, aö börnin hvessa meira hugann yfir villunum, bæöi til þess aö finna þær hjá hinum, og þó einkurn til að hrekja leiðrjettingar fjelaga sinna, ef kost- ur er, og getur þetta vakið athyglina meira en leiðrjetting- ar kennarans, sem börnin taka eins og sjálfsagðan hlut. Reikningur. Um reikningskensluna er fátt að segja fram yfir það, sem algengt er og alkunnugt. Jeg vil geta þess, að í nýrri skólurn eru svartar töflur með öllum forgafli kenslu- salarins eða rneira, í hæfilegri hæö fyrir börnin, og .getur kennarinn látið mörg (5—10) „koma upp“ í einu og reikna samtímis við töfluna. Þetta virtist rnjer gefast rnjög vel. Reikningskenslan er mestmegnis eða eingöngu í skólanum, en heimavinna ekki; surnir kennarar notuðu bók, sumir ekki. En í neðstu bekkjunum er kent með hugarreikningi því nær ein- göngu, og hlutum eða sjerstökum áhöldum, og rækilega geng-

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.