Skólablaðið - 01.04.1921, Blaðsíða 7

Skólablaðið - 01.04.1921, Blaðsíða 7
April 1921 SKÓLABLAÐIÐ 43 ljett mál. 1 þremur neðstu bekkjum skólans þarf því að leggja áherslu á raddlestur, og búa svo börnin undir hljóðlestrarnám í efri deildunum. All- ar tilraunimar virðast benda í þá átt, að sje bamið ekki farið að lesa reip- rennandi 10 ára, þá nái það aldrei mik- illi leikni, hvorki í raddlestri nje hljóð- lestri. Formhlið lestrarins verður að æfast í neðstu bekkjunum. Hún er und- irstaða alls æðri þroska í lestri. Leikni í framburði auð- veldra orða lærist best í neðri bekkjunum. þeir skólar, sem lengst hafa komist í að kenna rjett- an og liðugan framburð, hafa ætlað nokkrar mínútur daglega til æfinga í greiningu og framburði hljóða, einkum upp að fjórða bekk. Rannsóknir sýna, að formhlið lestrarins æfist örar en þroski til að gera sjer grein fyrir efni þess, sem lesið er. þess vegna ætti einkum að æfa framburð í þremur neðstu bekkjum jafnframt raddlestri, og viðhafa þá mjög auðvelt lesefni. I efri bekkjunum ætti aftur á móti að leggja aðaláhersluna á hugsunar- þroska viðvíkjandi lesefninu, og gera það í sambandi við hljóðlestraræfingar. Börn í öðrum og þriðja bekk lesa hraðar upphátt en í hljóði. Eftir það fara þau að lesa hraðara lágt en upp- hátt. Hraði í hljóðlestri tekur mestri framför í 4., 5. og 6. bekk, en nálgast þá há- m a r k s i 11. þess vegna er nauðsyn- legt að leggja sjerstaka áherslu á hljóðlestur í 4., 5. og 6. bekk skólans, því að þeim þroska í hljóðlestri, er þá fæst, á maðurinn að búa æfilangt. Allar rannsóknir hafa stutt þá skoðun, að framför í að skilja lesefnið sje á- framhaldandi allan barna- skólaaldurinn á enda, þótt hann sje ekki eins hraðfara í þremur neðstu deildunum. Áherslu þarf því að leggja á skilning efnisins í öllum bekkjum. Sje það ekki gert, er hætt við, að nemandinn verði að liðugri tal- vjel í stað hugsandi lesara. 1 fjórða, fimta og sjötta bekk ætti að kenna nemend- unum að skilja æ þyngra og þyngra lesefni, og jafn- framt að nota lestrarkunn- áttuna á marga og mismun- a n d i v e g u. Lífið heimtar af mönnum margskon- ar lestur; fer það alt eftir því, í hvaða tilgangi lesið er. Skólinn ætti að kenna eins fjölbreyttan lestur og lífið heimt- ar. I sambandi við hverja tegund lestr- arins ætti að kenna sjerstakar námsað- ferðir, eftir því að hvaða takmarki er stefnt með lestrinum. Hjer fara á eftir nokkrar uppástung- ur um það, hvernig haga má lestrin- um, svo að hann stefni að vissu mark- miði og gefi tilefni til að æfa nemend- urna í fjölbreyttum lestraraðferðum: 1. Hljóðlestur, til þess að finna góð- an kafla til samlestrar, eða til að leika. 2. Auðvelt lesefni til skemtunar, t. d. lýsing á landi, sem nýlega hefir verið lært um, eða æfisaga manns, sem ný- lega hefir verið lesið um í mannkyns- sögunni (aukalesbækur í ýmsum náms- greinum). 3. Lestur sem reynir á dómgreind, samanburð og valvit: a) að finna meginatriði í leskafla. b) búa til útdrátt úr kafla. c) búa til fyrirsagnir á málsgreinar. d) lesa kafla, til þess að finna hvort nafn hans er vel valið. e) að búa til spurningar um meginhug- myndir í leskafla. f) að lesa til þess að finna lýsingu á fögni landslagi eða öðru, sem nem- andinn geti síðan teiknað.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.