Skólablaðið - 01.06.1921, Síða 12
72
Guðmundur Jónsson kennari í Rvík.
Hallgr. Jónsson kennari í Rvík.
Hervaldur Björnsson skstj. í Borgamesi.
Sigurður Jónsson kennari í Rvik.
Steingrímur Arason kennari í Rvík.
Svava pórleifsdóttir, skólastj. á Akranesi.
Fundurinn hafði tvö önnur stórmál til
umrœðu, en það var kristindómskenslan og
tillögur milliþinganefndar í mentamálum
um skipun harnafræðslumálanna.
Kristindómskenslan kom til umræðu 16.
• júní og stóðu þær umræður fullar 5 stund-
ir. Voru þá allmargir gestir á fundinum,
einkum prestar og guðfræðingar, meðal
þeirra Haraldur prófessor Nielsson, sem
hafði sjerstaklega óskað eftir að taka þátt í
umræðunum. Eigi var í annan tíma meira
fjölmenni eða atiiygli á fundinum, og fóru
umræðurnar fram af alvöru og stillingu,
þótt skoðanir væru ekki á eina lund. Yfir-
leitt hnigu umræðurnar mjög eindregið
gegn kverkenslu, og var þá varla eða ekki
nefnt nema Helgakver. J>ó voru nokkrir
kennarar, sem vörðu það eindregið, og
kváðu sjer aldrei hafa nema vel gefist.
Samþykt var í málinu svofeid ályktun:
Fundurinn lýsir yfir því áliti sínu:
1. að sjálfsagt sje að hafa kristindóms-
fræðslu í barnaskólum. (Samþ. með 44
siilj. atkv.).
2. að kverkenslu beri þegar að afnema,
en byggja kristindómsfræðsluna fyrst og
fremst á frásögnum biblíunnar sjálfrar
um líf og kenningu Krists. (Samþ. með
44 : 7 atkv.).
3. að taka þurfi þegar til gagngerðrar at-
hugunar lagaboð, sem nú gilda, um
kristindómsfræðslu og ferming bama.
(Samþ. með 38 shlj. atkv.).
4. að samræmi verði að vera í kröfum um
kristindómsfræðslu skóla og kirkju.
(Samþ. i e. hlj.).
Viðaukatill. við 1. lið, svofeld: „og vill
eigi að hætt sje við að kenna fræði Lúthers
hin minni“, var feld með meginþorra at-
kvæða gegn fáeinum.
Breyt.ingartill. við 2. lið: „í stað kveranna,
sem nú eru notuð, sje lögð til grundvallar
stutt kensluhók er svari til siðalærdómsins í
kveri Helga Hálfdánarsonar", var feld með
27 : 7 atkv.
Júni 1921
Mentamálanefndin útbýtti í fundarbyrjun
nokkrum eintökum af uppkasti að nýjum
fræðslulögum. Skýrði Guðm. próf. Finn-
I ogason siðan tillögurnar fyrir þingheimi,
frá sjónarmiði nefndarmanna, og setti
fundurinn 7 manna nefnd í málið. Var það
síðan tekið til umræðu síðar á fundinum
og rætt lengi dags, að viðstöddum menta-
málanefndarmönnunum. En engin ályktun
var gerð í málinu, með því og að tillögur
þessar eru ekki enn fram lagðar til fulln-
ustu; verður því eigi heldur skýrt nánar frá
þessu hjer.
Auk þessa, sem hjer er nefnt, var hreyft
á fundinum nokkrum smærri málum.
Fundinum sleit laugardagskvöldið 18.
júní, og komu þá flestir fundarmenn saman
um kvöldið í Iðnó til kaffidrykkju, þeir sem
ekki höfðu þá þegar orðið að binda skó
sina og halda heim. Sátu menn þar lengi
kvölds, og var þar alt, hið ánægjulegasta.
(Lög kennarasambandsins verða birt. í
næsta blaði). H. Hjv.
-----o----
Kcnnaraprófið.
í skrá um það i siðasta blaði höfðu kom-
ist inn viilur, Jóhannes f. Jóhann Sveins-
son, og skakt stigatal Valdimars Össurar-
sonar, átti að vera 85.
Auk kennaranna tók Sigurjón Arnason
rand. theol. frá Görðum á Álftanesi próf í
uppeldisfræði 20. þ. m., og hlaut 5x/3 í
einkunn.
-----o----
SKÓLABLADIÐ lcemur út einu sinni
í mánuði, H/a örk lesmáls hvert blað, 18 arlcir
á ári. Kostar 6 Jcrónur, og greiðist fyrirfram,
i janúar. Útgefendur: Ásgeir Ásgeirsson, Helgi
Hjörvar og Steingrimur Arason.
Afyreiðslu og innheimtu annast
Helgi 11 j'örvar, Tjarnargötu 18. Simi 808.
Utanáskrift blaðsins er:
Sk ó l ab l a ð i ð, Reykjavík (Pósthólf 84).
SKÓLABLAÐIÐ
Prentsmiðjan Acta — 1921