Alþýðublaðið - 03.02.1965, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 03.02.1965, Qupperneq 6
BAK VIÐ TJÖLDIN HVORT sem sagan er nú sönn eSa ekki, þá skemmtir öll London sér nú við eina Randolph Churchill sögu, sem einhver gróf upp úr skjölum Eddis March, sem var einkaritari föður hans. Hann segir frá því, að eitt sinn, er Randolph var á ferð í Róm, hafi páfinn tekið á móti honum í einkamóttöku. Á með- á samtalinu stóð á Randolph að hafa sagt: ,,Ég geri ráð fyrir, að þér þekkið vin minn Évelyn Waugh, sem, eins og yðar heilagleiki, er rómversk-kaþólskur“. — ★ — » AMEKÍSKA skálakonan Lucille Kallen lét prenta eftirfarandi til- einkun á nýjustu hók sína, „Out There Somewhere": Til þeirra ágætu kvenna, sem gerðu mér kleift að rita þessa bók — barnapíunni mi-nni og hreingerningarkonunni minni“. . ÁRIN milli 1920 og 1930 eru í mikilli tízku í Bandaríkjunum um þessa’-' mundir, og þar af leiðandi hefur athyglin dregizt að hinni silfurhærðu þokkadís, Jean Harlow, sem dó 1937, aðeins 26 ára að aldri, en var eins konar Marilyn Monroe þeirra tíma. Um hana hefur verið skrifuð mjög op- inská bók og nú á að kvikmynda hana með Caroll Baker („Baby Doll'1) í aðalhlutverk- inu. ' .Allt þetta er fyrirhugað, en nú hefur komið babb í bátinh. Faðir Jeah Harlow, Mont Clair Carpenter, er kominn í mál við höfund bókarinnar, við bókaútgefandann — og við dreifingaríyrirtækið og krefst 150.000.000 króna bóta vegna þess að „honum finnst einkalífi sínu og virðingu misboðið". — Og hann hótar að ganga enn lengra gegn kvikmyndafélaginu, ef nokkuð verður af töku myndarinnar. — ★ — ÞAÐ munu aðeins vera eftir 1600 gluggapússarar í New York, svo að skorturinn á vinnukrafti í skýjakljúfahverfinu er ægilegur. Bara Chase Manhattan bankinn, sem aðeins er með 60 hæðum, þarf átta manna fast starfslið, sem byrjar á nýrri yfirferð um leið og búið er að þvo hinar 8.800 rúður í húsinu. Það er nú blátt áfram slegizt um þessa 1600 knáu menn — og launin eru sem stendur umí 6000 krónur á viku að viðbættum 150 krónum á dag fyrir að stjórna rafmagns verkpöllum. HVAR ER LOTTERMANN, SEM ERFÐI 60 MILLJÚNIR? VESTUR-þýzk stjómarvöld hafa beðið um aðstoð við að hafa upp á fertugum vestur- þýzkum listmálara, sem álitið er að sé á flakki. Það er nefni lega einhver persóna í Banda- ríkjunum , sem þarf að vekja athygui hans á því, að hann hef ur erft heil auðæfi. Utanríkisráðuneytinu hafa borizt tilmæli frá Frank nokkr um Joe Roth í Utah, 'em seg ist vera fulltrúi málflutnings manna, er hafi fengið þaö verk efni að koma nálega 60 milljón um íslenzkra króna til Erwin Lottermanns frá Bad Kreuzn ach, ekki langt frá Worms. Myndablaðið Biild Zeitung, sem gefið er út í Hamborg, hefur lýst yfir, að hér sé um svik eða lélega fyndni að ræða. — Segir blaðið, að Roth þessi sé ekki fulltrúi neins málflutnings manns, heldur fyrrverandi sund laugarvörður, rem hafi flutt burtu úr Vestur-Þýzkalandi. Lögreglan er nú að rannsaka þessa hllið málsins, en hefur jafnframt aukið leitina að Lottermann. í bréfinu segir nefnilega, að hafi hann ekki fundizt fyrir 28. janúar muni fjármunimir renna til Utah- ríks. $ 3. febrúar 1965 — ALÞÝÐUBLA0ID •.. V - £?■ . - . Mág&i • v’ * - >4'T EINS -'og kunnugt er, hefur brezka stjórnin undanfarið verið að reyna að spara peninga á ýmsum sviðum og ekki hvað sízt á sviði flugvélasmíði. í fyrstu var ■ætlunin að hætta alveg við að smíða Concordefarþegaþoturnar með Frökkum, en þeirri ákvörð liefur nú verið breytt. En ókveð ið hefur verið að hætta við fram leiðslu á sprengjuþotunni TSR-2. Þetta hefur að sjálfsögðu haft þær allleiðingar, að starfsmenn við flugvélauníði hafa orðið óðir og uppvægir yfir að vera sviptir störfum. Á meðfylgjandi mynd um sést TSR-2 þotan í reynslu flugi, og með henni fylgdarflug vél af gerðinni Lighting, en á hinni myndinni sést Nelson að- míráll horfa ofan af súnu sinni á Trafalgartorgið á göngu 8.000 verkamanna úr flugvélaiðnaðin- um, sem éru á leið til að halda mótmælafund í „ræðumannahortt inu“ í Hyde Park. Og loks er hér mynd af einum leiðtoga verkamanna fvrir utan verk- smiðjuna nokkru fyrir fundinn f Hyde Park. 2000 menn í Wey- bridge verða atvinnulausir, ef endanlegq verður ákvqðið að hætta við TSR-2 og taka í stað inn amerísku þotuna TFX. 18 MILLJ. HAFA HÆTT AÐ REYKJA I U.S.A. TALA sígarettureyk^pgamanna meðal bandarískra karlmnnna lækkaði úr 59% á árunum 1955- 1962 ofan í 52% á tímabilinu júlí-september í fyrra. Samsvar andi tölur hjá kvenfólki voru 31% ofan í 28%. Þetta kemur fram í rannsókn sem bandarí k heilbrigðisyfirvöld hafa gert í framhaldi af því að fyrir ári var gefin út hin skelf andi skýrsla um reykingar sem meðverkandi orsök lungnakrabba Ef þessár tölur standast við end anlega könnun, þýða þær, að: næstum fjórði hver fullorð inn maður hefur hætt að reykja alls 18 milljónir manna. ★ tala þeirra, se'm ekki reykja meðal fullorðinna, er í dag jafn há tölum reykingamanna (karla og kvenna), og að læknar reykja verulega miklu minna en aðrir, ★ reykingamenn væru nú 3,5 milljónum fleiri, ef reykinga- venjur hefðu haldizt á sarqa stigi og fyrir þrem árum. Því er haldið fram, að segja megi með fullri vissu, að sígar ettureykingar beri nú ábyrgð á á.m.k. 125.000, kannski allt upp í 300.000 dauðsföllum á óri í Bandaríkjunum og að á friðar tímum stafi heilsu manna mesta hætta af sígarettureykingum. Seg ir í skýrslunni, að hvorki bílar né neitt annað standist þar saman jöfnuð. Meðaltalsneyzla reykinga- manns í Bandaríkjunum er 350 pakkar á ári. Stórverzluhin hafði iengi aug- lýst eftir konum til lyftustjórn ar og ekkl fengið ncinar um sóknir. En þcgar það auglýsti eftir ,,iyftufreyjum“ streymdu umsóknirnar inn. ‘

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.