Alþýðublaðið - 03.02.1965, Side 8

Alþýðublaðið - 03.02.1965, Side 8
.............................iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiihii.. iiiHiininiiiiiiiiiiiiiiiiiiimniiiiniiiiHmniHiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiimiiiiiiuiinMiiiininiiiiiinim iiiuniimiunniiiiiiiniiinuiumiiiniinniiiimiHiiiiiuHmimmmimnHHiuiniiuiiiiimiiniiiiiiiiiiiuiiniiiunniiiiniiiiiiiiimnmmmiHMr ^iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii...- ..............................,, FÖ ~ DJÁSN OG D\ !R MANNINUM er nauðsyn að skarta einhverju, skreyta sig með einhverjum munum, jafnvel stoln um fjöðrum, ef ékki er annað til. Og skartgripi hefur mann- skepnan búið til frá örófi alda. Enn er skartgripasmíði í miklum metum meðal menningarþjóða, og gull-silfursmiðir njóta jafn- mikillar virðingar og aðrir lista'- menn, svo sem listmálarar, leik- arar og rithöfundar. Það hvarlar ekki að nokkrum manni, að telja þá til handverksfnanna eins og hér hefur viljað brenna við. Arnaldo og Gio Pomodoro heita bræður tveir, ítalskir. Þeir hafa stundað skartgripasmíði um nokkurt skeið; en annars eru þeir kunnir myndhöggvarar. — Þeir fengu allt í einu þá flugu í höf- uðið að snúa sér að gull- og siifursmíði og ætluðu sér að smíða grioi, sem aldrei hefðu verið gerðir fyrr: smíði þeirra átti að vera ólík öllu, sem gert hafði verið fram til þessa. Og listfræðingar voru fljótir að gefa gaum að verkum þeirra, en einn þessara spekinga var snöggur að sjá ýmis líkindi með smíði þeirra bræðra og frægustu gripa forn- aldarinnar, sem þeir höfðu eng- in kynni haft af. Aðrir báru saman höggmyndir þeirra og skartgripi og komust að því, að bygging höggmynd- anna og innri sam?til]ing grip- anna var svipuð, byggð á sömu lögmálum. Skartgripir eftir þá bræður hafa verið sýndir á hinni heims- frægu skartgripasýningu í Gold- smith höllinni í Lundúnum — og auðvitað seldust þeir eins og skot. Hér á síðunni sjáið þið nokkra af gripum þeirra Pomo- doro bræðra. ÞAD dylst vonandi engum, sem sér myndirnar af skartgripum Pomodoro bræðmna, að þeir eru óvenju smekklegir og hag- lega gerðir. Bræðumir hafa líka orðið fyrir hollum áhrifum frá nútímalist; höggmyndun þeirra og glöggt auga fyrir formum kemur skýrt fram í gripunum, þótt smáir séu. Það verður aldrei of oft brýnt fyrir listiðnaðarmönnum að kynna sér nýjustu stefnur og hreyfingar í skyldum listgrein- um. Merki þess, að svo hafi ver- ið gert, má reyndar sjá í silfur- og gullsmíði allra landa í dag, jafnvel á íslandi. íslendingar hafa löngum hrós- að sér af fagurri smíði; þarf reyndar ekki annað en að ganga um sali Þjóðminjasafnsins til þess að sjá, að þar eru til lista- fagrir gripir, pontur, baukar, dósir og bikarar, sumt er reynd- ar útlent, og annað undir áhrif- um frá erlendri smíði. En hvað gerir það til, öll þjóðleg list er meira og minna undir áhrifum frá erlendri. Og meðan tignarkvinnur í út- löndum bera skartgripi Pomodo- ro bræðranna, prýða margar ís- Framhald á 13. síðu. lll•••ll■lllllllllllllll|l||||l|||||ul|III■l■1IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIMI•l•ll luiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiui ............................... ................................mmmiifiimuimiuuiiiHiiimummiiiiiiiiíim^ 8 3. febrúar 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ Stærsía og (Ijótasta ferjan NÝLEGA var hleypt af stokkunum á Helsingjaeyri ferju, þeirri stærstu, sem um gettir á leiðinni Danmörk-England. Sana- einaða gufuskipafélagið hefur fest kaup á henni og er áætlað, a3 hún gangi milli Esbjerg og Har- wick. Skipið á að rúma 166 far- þega á 1. farrými, 204 á 2. og 68 farþega á þriðja, samtals 438. — Skipið er 9750 brúttólestir að stærð og hraði þess mun vera um 23-24 hnútar. Myndin sýnir þver- skurð af farþegarými og bílalest. Eftirli tækj'í NOKKRIR • af þingmönnum Alþýðuflokksins hafa flutt þings ályktunartillögu um eftiriit með fyrirtækjasamtökum. Tillagan er svohljóðandi: Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að láta athuga með hverjum hætti hið opinbera geti haft eftirlit með viðleitni fyrir- tækja til að hafa með sameigin- legri afstöðu á markaöi óæski- leg áhrif á verðmyndun í land- inu og hvernig bezt megi tryggja að neytendur fái notið ávaxta aukinna framleiðsluafkasta í meira vöruúrvali og hagstæðai’a verðlagi. Fyrsti flutningsmaður tillög- unnar er Unnar Stefánsson. Tillögunni fylgir svohljóðandi greinargerð: „ísland er nú eina ríkið meðal þjóða Vestur-Evrópu, sem hef- ur ekki lög um heimild hins opinbera til að hamla móti ein- okun eins fyrirtækis eða sam- tökum fyrirtækja um að halda uppi í skjóli einkasöluaðstöðu óeðlilega háu verði til að afla sér óréttmæts gróða. Verðlags- eftirlit í núverandi mynd gegnir ekki þessu hlutverki. í Noregi er verðlagsefth-lit. Þar hafa þó : verið bannaðir nær 400 verð- samningar einkaaðila. Mikil brögð eru liérlendis að samtökum ''fyrirtækja í sömu greinum viðskipta, sem geta haft óæskileg áhrif, þótt ekki sé um risafyrirtæki að ræða. Verðsam- komulag tveggja eða þríggja smáaðila, sem ráða yfir miklum hluta framboðs í einni groin viðskipta, hefur ekki síður skað- leg áhrif á sínu sviði en mynd- un stórhrings, sem auðveldara væri að henda reiður á. í umsögn Hagstofu íslands um tillöguna segir m. a.: „Ýþa-

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.