Alþýðublaðið - 03.02.1965, Blaðsíða 11
*
■ Ignlijj B É i I
Óvænt úrslit í /. deild i fyrrakvöld:
Haukar sækja sig -
sigrubu Víking 26:18
LOKSXNS unnu Haukar leik og ' burðum í fyrrakvöld, skoruðu 26
það var þá svo um munaði — þeir mörk gegn 18, staðan í hléi var
sigruðu Víking með nokkrum yfir 13.11 víking í vil. í síðari leik
'kvöldsins vann Fram KR örugg-
lega með 17 mörkum gegn 11.
- 1
★ Haukar—Víkingiir
.26:18 (11:13).
Leikurinn var jafn lengst af,
Víkingur skoraði tvö fyrstu mörk-
in, en Haukar jöfnuðu. I>á náðu
Haukar yfirhöndinni, en síðari
hluta hálfleiksins voru Víkingur
sterkari og hálfleiknum lauk með
13:11 fyrir Víking.
Fyrstu minúturnar í siðari hálf
leik skiptust liðin á að skora, eh
HRAFNHILDUR I 3 GREINUM
SUNDMEISTARAMÓT RVK.
HEFST KL. 20.30 í KVÖLD
SUNDMEISTARAMÓT Reykjavík
ur fer fram í Sundhöll Reykjavík-
ur í kvöld og einnig verður háður
úrslitaleikur Sundknattleiksmóts
Reykjavikur milli KR og Ármanns.
Keppnin hefst kl. 20.30.
Alls er keppt í 8 meistaragrein-
um,.en auk þess fara fram 4 ung-
lingagreinar. Keppendur eru um
60 frá Reykjavíkurfélögunum, Ár-
manni, ÍR, KR og Ægi, en auk
þess keppa sem gestir sundfólk
frá Keflavík, Akranesi og Selfossi.
Undanrásir hefjast í nokkrum
greinum kl. 19.
Keppnisgreinar eru: 100 m.
skriðsund karla, 400 m. skriðsund
karla, 100 m. flugsund karla, 100
m. baksund karla, 200 m. bringu-
sund karla, 100 m. skriðsund
kvenna, 200 m. bringusund kvenna
og 100 m. baksund kvenna.
Úrslitaleikur KR og Ármanns í
sundknattleik getur orðið mjög
spennandi, en KR-ingar ógna nú
mjög veldi Ármenninga í sund-
knattleik.
um miðjan hálfleik jöfnuðu Hauk-
ar, 17:17. Siðustu 10 mínútumar
skoruðu Hafnfirðingarnir 9 mörk
gegn aðeins 1 marki Víkinga. Vík-
ingsliðið var í algjörri upplausn
síðustu mínúturnar, en Haukar
léku af hraða og öryggi.
Við sögðum hér á íþróttasíðunni
fyrir nokkru, að ekki myndi líða
á löngu, þar til Haukar ynnu leik
og sú spá rættist í fyrrakvöld, þó
að sigurinn væri jafnvel stærri en
búizt var við. Lið Hauka er jafnt
og á köflum getur það sýnt skín-
andi leik Beztur er Matthías Ás-
geirsson, þjálfari og fyrrum ÍR-
ingur. Ýmsir efnilegir piitar eru í '
liðinu og má þar nefna Stefán
Jónsson, Sigurð Jóakimsson og
Þórð.
Það vantaði tvo menn í lið Vík-
ings, þá Þórarin Ólafsson og Helga
Guðmundsson, Brynjar kom í
markið í stað Helga og stóð sig
vel. Víkingur átti góðan leik, þar
! til 10 mín. fyrir leikslok, þegar
Haukar riáðu tveggja marka for-
skoti, þá var eins og ailt skipulag
Framhald á 13. síðu.
FLOYD
VANN!
FLOVD Patterson sigraði
Kanadamanninn George Chu
valo á stigum í fyrrinótt, en
kapparnir börðust í 12 lotm'.
Floyd hafði greinilega yfir-
burði en var þó býsna hætt
kominn í 10. lotu. Hann var
fallinn á hné, en þá hljómaði
bjallan og bjargaði honum i
það skiptið. Annars voru yf-
irburðir Floyd mjög miklir
og ótrúlegt, hvað Chuvalo
þoldi, enda var hann illa úb-
Ieikinn. Allir dómararnir
dæmdu heimsmeistaranum
fyrrverandi sigur.
Keppni þessi fór fram í
Madison Square Garden, og
fögnuður hinna 19 þúsund
áhorfenda var geysilegur. —
Heimsmeistarinn Cassius
Clay var nærstaddur, þegar
keppninni Iauk, hann stökk
inn í hringinn og kvaðst óska
þess, að Patterson fengi tæki
færi til að ná heimsmeistara'
titlinum.
Pattcrson fær sem svarar
til ca. 5 millj. ísl. kr. en Chu
vaíó’ca. 3 millj. fyrir keppu-
ina.
Ríkarður Jónsson kjörinn
íþrótfamaður Akraness 1964
■11
IÁ FJÖRUTÍU ÁRA afmæli Knatt
] spyrnufélagsins KÁRA á Akra-
i nesi, var gefinn bikar til minningais
um Friðþjóf Daníelsson, er lézt af
slysförum 6. júní 1947, aðeins 24
ára gamall. Gefendur voru syst-
kini hins látna og ákváðu þau að
bikarinn skyldi afhendast árlega
þeim íþróttamanni, sem mest
þætti skara fram úr á Akranesi
hverju sinni. Þá var ákveðið að
nefnd, er skipuð væri einum full-
trúa frá hverju íþróttafélagi í
bænum, skyldi velja þann mann,
er bikarinn skyldi hljóta. Er hann
kosinn á sama hátt og íþrótta-
tUMUMMMUMtUtUMUMtM
í
Á MYNDINNI sézt Friðþjóf-
ur Friðþjófsson afhenda Rík-
harði Jónssyni bikarinn, sem
hann hlaut, er hann var kjör
inn bezti íþróttamaður Akra
ness 1964, í atkvæða greiðslu,
sem efnt var til á Akranesi
nýlega.
fréttaritarar velja íþróttamann.
ársins. Sl. sunnudag var bikarinA
afhentur í fyrsta skipti og í tilefní-
þess bauð knattspyrnufélagið Kárl
nokkrum íþróttamönnum og for-
ystumönnum íþróttamála til funél
ar. Formaður félagsins, Helgi Dan
íelsson stjómaði fundinum og.
skýrði frá vali nefndarinnar.
íþróttamaður Akraness áriðf
1964 var kosinn Ríkarður Jónsso*
og hlaut hann 24 atkvæði.
í öðru sæti varð Eyleifur Haf-
steinsson knattspyrnumaður með
15 atkv. Þriðji var Sigurður G. Óí-
afsson sundmaður með 13 atkv.
4. Jón Leósson, knattspyrnumað-
ur með 8 atkv. 5. Sveinn TeitssoU
knattspyrnumaður með 3 atkv. ð.
Björn Lárusson, knattspyrnumað-
ur með 1 akv.
Friðþjófur Friðþjófsson, sonuaf
hins látna, sem bikarinn er gefinn
til minningar um, afhenti síðan
Ríkarði bikarinn til varðveizlu f
eitt ár. Að lokum tóku til máfcé
þeir Ríkarður Jónsson og Gu<4»
mundur Sveinbjörnsson.
ALÞÝÐUÐLAÐTÐ - 3. febrúar 1965