Alþýðublaðið - 21.04.1965, Side 4

Alþýðublaðið - 21.04.1965, Side 4
Blómastríð Framh. af bls. 1. sen( upp þann urskurð að vegna undantekningarákvæða, sem fynd- ust í lögum um helgihald þjóð- kirkjunnar frá 1926, þar sem leyfð er sala fisks, brauðs, dag- blaða og happdrættismiða á slík- um tyllidögum, skyldi málið falla niður, enda mætti gera ráð fyrir að fyrrnefnd undantekningar- ákvæði hefðu náð til blóma, ef blómsala hefði þá verið orðin at- kvæðamikil atvinnugrein. Lög þau sem fógeti ber einkum fyrir sig í þessu sambandi eru frá því á miðri 18. öld, en þau banna alla höndlun á stórhátíðum kirkjunnar og lá dauðarefsing við broti á þeim. Þórður þakkar sín- um sæla fyrir að ákvæðin um dauðarefsingu eru nú fallin úr gildi, ella hefði ekki verið nokk- ur vafi á að fógeti hefði beitt þeim gegn sér. Vegna þessa úrskurðar dóm- stólsins í fyrra, áleit Þórður að hann væri í sínum fulla rétti að selja blóm á föstudaginn langa og páskadagsmorgun, enda eru nær allar blómabúðir höfurborgarinn- ar auk ótaldra verzlana fyrir aust an fjall, opnar á dögum þessum. Páskarnir eru ásamt konudegin- um, Þorláksmessu og sumardeg- inum fyrsta, helztu blómasöludag- ar ársins. Má segja að þessa daga sé hinn eiginlega ,,blómavertíð“ sem blómasalar byggja afkomu sína einkum á- Á páskum gerir fólk mikið af því, að fara með blóm og kransa í lcirkjugarða, til að leggja á leiði látinna ástvina. Á föstudaginn langa bjó Þórð- ur sig undir venjulega sölu til há- degis, enda vissi hann ekki annað en hann væri frjáls þessara við- skipta, en eldsnemma morguns komu lögregluþjónar í bíl að dyr- unum, þar sem Þórður var að bera út skraut á kistu og krans vegna jarðarfarar úti á landi. — Mæltu verðir laganna svo fyrir, að hann skyldi bera vörur þessar tafarlaust aftur inn í búðina, enda væri honum óheimilt að selja þær. Þórður bað um úrskurð og spurði hvort þeir væru með dóminn síðan í fyrra- Lögreglu- þjónarnir fóru þá út í bíl og köll- uðu upp stöðina, komu svo til baka með þau skilaboð að þeim. væri skinað að stöðva öll við- skipti. Skipuðu þeir Þórði síðan út og innsigluðu allar dyr í verzl- uninni og gróðúrhú'inu. Þórður leitaði nú ásjár yfir- mgnns dómsmála á íslandi, sem kom því einhvern veginn svo í kring^ að Þórður fékk sjálfur að- gang að gróðurhúsinu og gat unn- ið þar allan daginn og nóttina við að undirbúa laugardagsviðskipt- in. Gekk nú allt -að venju á laugar- daginn, en á páskadagsmorgun voru 5 lögregluþjónar mættir við Blómaskálann- — Þórður var þá að dedúa í gróðurhúsinu og leysti jafnframt úr vandræðum þeirra sem komu- Lögregluþjón- arnir gáfu sig nú á tal við Þórð og sögðust vera komnir í embætt- iserindum að loka fyrirtækinu tafai’laust með valdi. Sögðust þeir hafa skýlaus fyrirmæli um að 15 daga SPÁNARFERÐ MEÐ VIÐSTÖÐU í LONDON BROTTFÖR 14. IVIAÍ Ferðast um fegurstu héruð Spánar. — Madrid — Malaga — Torremolinos — Sólarströndin — Granada — Cordoba — Sevilla — Cadiz — Algericas. Glæsileg ferð mót sumri og sól! FERÐASKRIFSTOFAN S A G A Hverfisgötu 12. — Síraar 17600 & 17560. bera út allt kvikt sem innandyra væri. Nú háttar svo til hjá þeim hjón- um á Sæbóli, að þau hafi haft þann sið lengi, að elda mat sinn í blómaskálanum og var frúin, í eldhúsi inn af blómaskálan- um ag var frúin við matseld, voru líka nokkur af barnabörnum þeirra, m- a. eitt ungbarn í leik- grind á eldhúsgólfinu. Þórður tók það til bragðs, að hann hætti þeg- ar að selja blómin í gróðurhús- inu, en gaf öllum sem hafa vildu. Gengu lögregluþjónarnir þá liarð ar að og vildu framkvæma skyldu sína. Þórður bað fólk sitt að sýna rósemi og fór út sjálfviljugur, ásamt því. Lögregluþjónarnir fóru þá í steikarofninn, tóku steikina og báru út á hlað- Einn- ig eltust þeir lengi við læðugrey, sem komin er að goti og mátti ekki lengi á milli sjá hvorir hefðu betur. Þó varð læðan að lúta í lægra haldi að lokum. Dagskipan fógetans hljóðaði, jú upp á allt kvikt. Að þessu loknu var öllum dyrum lokað og þær innsiglaðar með lögformlegum hætti. Leið svo af sólríkur og mildur páskadagurinn, að enginn komst inn í gróðurhúsið að sinna blóm- unum- Þegar mikill hiti er á blómunum er nauðsynlegt að geta opnað dyr og vökvað, en þess var að sjálfsögðu enginn kostur Um kvöldið skipti svo um og gerði vægt frost. Þegar fógetamenn komu svo klukkan rúmlega 9 var heldur Ijótt um að litast. Megin- hluti afskorinna blóma fallinn og stórskaði á öðrum blómum. — Tjónið er metið á um 160000 krónur. Þórður telur að framin hafi ver ið á sér fólskuleg valdníð'la af fógetans hálfu. Honum hefði ver- ið innan handar, hefði hann í raun innl ætlað að hafa lagabókstaf- inn í heiðri, að setja einfaldlega vörð við fyriUækið og varna þann- ig frekari viðskiptum. Næsta skref Þórðar er að kæra fógetann vegna skemmdanna á blómunum og vegna þess mann- orðshnekkh sem hann telur sig og fi&lskyldu sína hafa beðið vegna bessara óbilgjörnu aðgerða Sigur- geirs Jónssonar bæjarfógeta í Kópavogi. Morðtilraun Framh. af bls. 1. hann yfir börnunum á meðan móð- ir þeirra var í fermingarveizlu. Árásarmaðurinn er Dani, sem búið hefur á Akureyri í þrjú ár. Hefur hann verið til húsa hjá konunni í nokkurn tíma. Um kvöld- ið tilkynnti hann eiginmanninum fyrrverandi að hann myndi ekki sjá konuna aftur. Og þegar hún kom heim skömmu eftir miðnætti réðist hann umsvifalaust ó hana með sveðju að vopni. Eins og fyrr segir tókst lienni að grípa um blaðið og skarst hún mikið á hendi og var flutt á sjúkrahús og gert að sárum hennar þar. Hjónunum fyrrverandi tókst í sameiningu að koma árásarmanninum út og læsa á eftir honum og var hann enn á tröppunum, þegar lögreglan kom og handtók hann. Hann situr nú : gæzluvarðhaldi. HÓTELIN Farmhald af síðu 1. bergispantanir þeirra. Þrátt fyrir að blaðamennirnir gætu sýnt skriflegar staðfestingar frá hótelunum um að pantanir þeirra hafi verið teknar tU greina, voru ekki nema nokk- ur hótelanna sem reyndu að bæta úr vandræðum þeirra. Miehanek segir, að flest hót- elanna, þeirra á meðal City og Saga, hefðu tekið kvartanir blaðamannanna til greina. For« ráðamenn þessara hótela sögðu að ef blaðamennirnir vildu ekki taka pantanir sínar tll baka, væri það skylda hótel- anna að sjá þeim fyrir her- bergjum, og þegar blaðamenn héldu óskum sínum til streitu var þeim sagt, að þeir væru velkomnir og herbergin fengu þeir. En svona einfalt var þetta ekki á öllum hótelunum. Á hinu stóra hóteli, Borg, var til dæmis sagt, að þeir færu að- eins eftir því, sem Norræna ráðið hefði ákveðið, og að þeir blaðamenn sem létu taka frá herbergi þar, yrðu að fara til þeirra- híbýla, sem Norræna ráðið var búið að skammta þeim. Þarna var gagnslaust að sýna nein skilríki frá hótel- inu um að búið væri að taka frá herbergi fyrir viðkomandi. Svarið var stutt og laggott: —- „Hérna getið þið ekki búið“. Blaðamönnum voru skömmt- uð herbergi á stúdentagarði, þar sem ekki voru símar f her- bergjunum. Michanek segir, að hann hafi fengið staðfestingu á að Norræna ráðið hafi lagt hald á hótelherbergin eftir að blaðamennirnir höfðu gert sín- ar pantanir og fengið þær staðfestar. Að síðustu skýrir hann svo frá, að sænsk ferða- skrifstofa, sem hafi fengið stað festar pantanir á hótelher- herbergjum Sem siðan var ekki staðið við, muni fara 1 skaðabótamál við viðkomandl hótel. Egil Sundar, einn af norsku blaðamönnunum sem viðstadd- ur var fundi Norræna ráðsins, segir að hann gæti tekið und- ir grein Michaneks, og að þeg- ar Norræna ráðið færi að flokka menn niður væru blaða menn ávallt í þriðja flokki og varla það. Eftir því sem hann bezt vissi hafði Norræna ráð- ið til eigin nota öll hótelher- bergi sem norskir blaðamenn höfðu pantað og man hann ekkl eftir að hafa nokkru sinni heyrt að það hafi komið fyrir í Noregi að hótel hafi staðfest pöntun á herbergi og síðan rek ið væntanlegan gest sinn út, þegar hann ætlaði að flytja inn á hótelið. Að vísu var Sundar svo heppinn að fá inni á höteli, en flestir norsku blaðamannanna urðu að gera sér að góðu, að fá inni á Stúd- entagörðunum,- þar sem vinnu skilyrði voru afleit. Til dæmis var aðeins einn simi á hverj- um gangi. Umgangur var mik- ill og nær vonlaust að fá vinnufrið og blaðamaður án síma er hjálparlaus. 4 21. apríl 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.