Alþýðublaðið - 21.04.1965, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 21.04.1965, Blaðsíða 16
17 ára skákmeistari ísiands SIGURINN KOM Á ÓVART Reykjavík, 20. apríl. OÓ. — Eg hugsaði ekkert ura að vinna þetta mót og sigurinn kom mér algjörlega á óvart, sagði hinn nýi skákmeistari íslands, Guðmundur Sigurjóns son, er Alþýðublaðið hatði tal af honum. Eg byrjaði að fikta við þetta 11 til 12 ára gatnall en fór ekki að tefla fyrir al- vöru fyrr en fýrir tveimur ár- um siðan og gekk ekki í Skák- félag Reykjavíkur fyrr en í fyrrahaust og hef síðan unnið mig upp úr 2. flokki í meist- araflokk. Áður tefldi ég við kunningja mína og gekk þá á ýmsu og var ég sizt sigurstrang legri en þeir. Guðmundur Sigurjónsson er 17 ára að aldri og er í 4. bekk stærðfræðideildar Menntaskól- ans í Reykjavik. — Enn er allt óráðið um livað ég tek fyrir eftir stúdenta próf. Eg hef gaman af að tefla og geri ráð fyrir að halda því áfram, en aðeins I tóm- stundum. Eg vil alls ekki leggja skák fyrir mig. — Eg les mikið um skák og læri mikið af því og svo nátt- úrlega af því að tefla. Við höf um taflfélag í Menntaskólan- um og þar tefli ég oft og eins hjá Taflfélagi Reykjavíkur. Framhald á 15. síðu. MUHHMMMIHWMimUHHM 1000 tonna meðal- afli á Patreksfirði Patreksfirði, 20. apriL ÁP-GO. ÞEIR fjórir bátar, sem héðan *óa, munu vera komnir með um 4300 tonna afla á vertíðinnj, svo •neðalafli á bát er vel yfir þúsund- 4nu. Helga Guðmundsdóttir er fiæst með 1300 tonn, þá Seiey og ÍDofri með um 1100 tonn hvor og 7065 tonn í 115 róðruni í Ólafsvík Ólafsvík, 20. apríl. — OÁ-GO. fcEILDARAFLI Ólafsvikurbáta til 45. þ. m. er 7065 tonn í 115 róðr- «im. Hæstu bátarnir eru: Stapafell «ueð 888 tonn í 53 róðrum, Stein- |UUi 791 t. i 61 r., Sveinbjörn Jak- absson 742 t. í 47 r., Valafell 748 4.1 52 r„ Jón Jónsson 788 t. í 61 r„ ■JHrönn 662 t. í 57 r„ Bárður Snæ- íeHsás 356 t. í 43 r„ Jökull 664 t. t 47 r„ og Frosti er með 444 tonn M 43 róðrum. Sæborg með 800 tonn, eða svipað og hæstu bátar i öðrum verstöðv- um. Skipstjóri á Helgu Guðmunds- dóttur er Flnnbogi Magnússou landskunnur aflamaður og það er einmitt hann, sem á gildandi ver- tíðarmet, 1450 tonn, sem hann setti á vertíðinni I hitteðfyrra er hann var með Helga Helgason frá Vestmannaeyjum, en réri frá Pat reksfirði. í fyrra var hann framan af vertíð með Loft Baldvinsson, sem varð hæstur yfir landið, en hann varð að hætta róðrum á hon- um til að ná í nýjan bát, sem er- lendis var. Þess vegna er ekki hægt að telja hann aflakóng þeirrar vertíðar, þó að hann hafi fengið bakfiskinn úr aflan- um. ' Skipstjórar á Seley og Dofra eru þeir bræðurnir Héðinn og Hör'ð* ur Jónssynir, en skipstjóri á Sæborgu er Eðvarð Kristjánsson; Allt eru þetta ungir menn. Helga Guðmundsdóttir hóf veið ar um miðjan febrúar, eða seinna en flestir aðrir vertiðarbátar. — Sæborg byrjaði enn selnna, en Seley og Dofri um áramót. 45. árg. — Miffvikudagur 21. apríl 1965 — 89. tbl. Landsfundur um útvegsinál Reykjavík, 20. apríl. — Á MORGUN, miðvikudag, hefst í Reykjavik landsfundur, sem fisk- framleiðendur og útvegsmenn hafa boðað til. Mun á fundinum fjallað um horfurnar I þessum atvinnu- greinum, einkum þó þær launa- hækkanir, sem búizt er við í vor. Samtökin, sem til fundarins hafa boðað, eru þessi: LÍÚ, SH, Sjávar- afurðadeild SÍS, Samlag skreiðar- framleiðenda, Stéttarsamband fisk iðnaðarins og SÍF. Fundurinn verður haldinn í Sig- túni og hefst hann klukkan tvö eftir hádegi. Frummælendur munu verða þeir Guðmundur Jörunds- son, Reykjavík, Gunnar Guðjóns- son, Reykjavik, og Margeir Jóns- son, Keflavík. Meginástæðan til fundarboðunar innar eru örðugleikar þessara at- Slökkviliðið kvatt út 11 sinnuni Reykjavík, 20. apríl. — GO. SLÖKKVILIÐIÐ í Reykiavík var kallað út 11 sinnum frá hádegi á miðvikudag fyrir páska til hádegis í dag. Fimm sinnum var um íkveikju að ræða, tvisvar var eldur í hifreið, tvisvar var um að ræða gabb frá brunaboðum, einu sinni sinuhruna á Seltjarnarnesi og einu sinni grunur um eld. — Ekkert tjón varð í þessum tilfellum. vinnugreina nú undanfarið, fyrst það að haustsíldarvertíðin við Suð urland brást, síðan verkfall og afla leysi það, sem af er vetrarvertíð. ★ Kvenféiag Alþýðuflokksins í Reykjavik heldur framhaldsaðal- fund n.k. mánudag, 26. apríl, í AI- þýðuhúsinu við Hverfisgötu. Á fundinum flytur Lárus Helga- son yfirlæknir erindi um tauga- veiklun. Góður afli á Grænlands- miöum Reykjavík, 17. apríl. — GO.. íslenzku togararnir hafa yfjr- leitt aflað vel að undanförnu, sér- staklega á Jónsmiðum við Aust- ur-Grænland, en þar hefur feng- izt ágætur þorskafli nú um mán- aðar skeið. Margir togaranna sigldu með Jónsmiðaaflann til Englands og fengu þar gott verð, en útlit er fyrir að markaðsverð falli mjög strax eftir páska. Þorkell Máni er væntanlegur hingað seint i kvöld með 260 lest- ir af þorski frá Vestur-Græn- landi, og er það fyrsti Vestur- Grænlands fiskurinn sem hér berst á land á þessu ári. Þorkell Máni átti að selja í Englandi, eh vegna þess hve slæmt útlit er þar með markað eftir páska var skipinu snúið við. Nú er komið á þriðja mánuð síðan Akureyrartogararnir hafa komið til heimahafnar, en haf- ísinn hefur valdið því, sem kunnugt er. Akureyrartogararnir hafa siglt með aflann og fengið nauðsynjar til næstu veiðiferðar í Reykjavík. Svalbakur á að landa Framhald á 15. síðu i ' mmmnnam NÝR SKODI Á ANNAN páska- dag var haldln bíla sýning á Hótel ís- landslóðinni. Sýn- ingin var haldin á vegum Happdrætt- is DAS og voru til sýnis flestar teg- undlr af smábíium. Mikla athygli vakti ný gerð af Skoda- öílum, sem er mjög frábrugðin fyrri gerðum (sjá mynd). i lna'aMiiflawnmíinniii

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.