Alþýðublaðið - 13.05.1965, Qupperneq 6
DE GATJLLE hefur orðið fyrir einu versta áfalli, sem hent getur
einn Frakka: Kokkurinn hans hefur sagt upp eftir sjö ára lýjandi
starf í Elysée-höilinni.
Fyrir stríð starfaði kokkurinn, Bernard Cormier, sem nú er
45 ára gamall, hjá fólki eins og Morgan, Vanderbilt og Windsor.
Fyrir de Gaulle hefur hann verið hreinasti fjársjóður, en nú eru
taugarnar búnar og jafnvel boð um 6000 króna laun á viku freist-
aði hann ekki tii að vera um kyrrt. Hann ætlar þó ekki að hætta
alveg, því að hann hyggst opna sitt eigið veitingahús.
Eftirmaður hans í Elysée er Roland Pelosis, sem í 15 ár hefur
verið kokkur í íranska flotanum.
— ★ ~
MARGIR amerískir læknar standa í þakk
lætisskuld við Lucy Baines Johnson. Þegar
hún tók upp á því að láta gera göt á eyrna
snepla sína vegna eyrnalokkanna upp á
gamla móðinn, þá varð slikt náttúrulega að
„stautus-symbóli" — og margar amerískar
stúlkur urðu sér síðan úti um slík göt
með „do-it-yourself‘“ aðferðinni.
Niðurstaðan varð £ mörgum tilfellum sú,
að eyrnasneplar bóignuðu og alls konar mein hlupu í þá, svo að
hinar ungu dömur urðu að leita læknfs til að koma sneplunum í
lag á ný.
_ _ _______ — ★ —
AMERÍSKUR prófessor, Max Kleiber, við háskólann £ Kaliforníu
hefur með tilraunum gengið úr skugga um, að í músakjöti séu tólf
sinnum fleiri hitaeiningar en nautakjöti. Mælir hann af þessum
sökum með því við geimferðayfirvöld, að í framtíðinni verði geim
farar látnir borða músakjöt.
— ★ ~
HARÐASTA gagnrýni, sem Picasso hefur orðið fyrir vegna listar
sinnar í mörg ár, eru orð Lady Summerskill, sem um daginn fór
á Tatelistasafnið til að skoða málverk hans „Þrír dansarar", sem
safnið hafði keypt fyrir gífurlegt fé. Hún sagði að heimsókninni
lokinni:
— Nú skil ég hvers vegna ekkert annað land í heiminum
vildi eiga það, og að við Englendingar vorum einir nógu vitlausir til
að vilja kaupa það. Þetta er hreint klessuverk, án minnsta listar-
heista.
— ★ ~
LUDWIG ERHARD, kanzlari Vestur-
Þýzkalands, var fyrir skemmstu í opinberri
heimsókn í rafmagnsverksmiðjum Heinrich
Dietz í Mulheim í Ruhr — og á ferðinni
um verksmiðjuna sagði sá, er vísaði leið-
ina:
— Vill herra kanzlarinn gjöra svo vel
og halda sig svolítið lengra til vinstri.
— Sjálfsagt, sagði Erhard hlæjandi, og
á kosningaári gæti það meira að segja verið talsvert nytsamlegt.
- * -
í FRANSKA blaðinu „Castronomie" er eftirfarandi auglýsing, sem
ef til vill má taka sem tímanna tákn: ,
„Ung stúlka, sjálfstæð í stjórnarstöðu, hestakona, tennisleik-
ari, með bílpróf og flugpróf, óskar eftir, með hjúskap síðar fyrir
augum. að kynnast aðlaðandi ungum manni, sem er góður kokkur."
— ★ —
í REIKNINGUM Carlo Pontis fyrir myndina „Dr. Sjívagó" stend-
ur: 5 pakkar hu:idakex, 1 kláfshnúta, 2 gúmmíboltar (konto: Boris).
er uppáhaldshundur hinnar fríðu Geraldine, dóttur Chaplins, og í
mörgom senum í myndinni hefur hún hundinn með sér. Og því
vildi Geraldine. að komið væri fram við hundkvikindið, eins og
xáunverulega filœstjörnu . . . og það féllst Ponti á.
— ★ ~
ÖKUMAÐUR í Miinchen hafði um daginn hengt svohljóðandi
skilti í afturgluggann á bílnum sínum, og mættu margir hér gera
slíkt hið sama: „Varlega! Ég ek ekki eins vel og þér haldið kann-
ski.“
STJÓRNMÁLAMENN, sem ekki geta staðið við kosningaloforð sín,
segir sá reyndi, gerðu rétt í að endurtaka þau í það óendanlega
eftir kosningar, svo að fólk nenni ekki lengur að hlusta á bau.
BAK ViD TJÖLDIN
á. ' • -/ . ..L • : —:
6 13. maí 1965 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ
: *• ♦:♦:¥:■£ x :*:♦:■> lJK
— HVERS vegna varð sím
stórinn svona reiður, þegar þú
spurðir hann, hvort við fengj
um ekki síma bráðum?
— Hef ekki liugmynd um það
— ég spurði bara, hvort þeir
notuðu fræ eða plöntur í síma-
staurana'
73 ÁRA gömul piparmey í
Sydney keypti um daginn vet
urgamlan fola vegna þess að
hann kyssti hana. Hún var bú
in gð koma þrjá daga í röð á
rr^rkaðinn, en gat ekki gert
upp við sig hvern af þrem fol
um hún ætti að kaupa. Það,
sem olli úrslitum, sagði hún(
var, að sá, sem hún keypti,
hallaði sér út úr stíu sinni „og
kyssti rnig eins og fullkominn
séntilmaður". Verðið var 5-552
pund-
TÖNLISTARSAMKEPPNI
„Hvernig eiga hljómsveitar-
stjórar að öðlast reynslu, ef
þeir fá ekki að stjórna — og
hvernig eiga þeir að geta stjórn
að, ef þeir hafa ekki reynslu?”
spurði Leonard Bernstein, stjórn
andi New York Philharmonic
hljómsveitarinnar eitt sinn-
Svar við þessari spurningu,
sem í fyrstu virðist ósvaranleg,
var nýlega gefið í fjórðu Dim-
itri Mitropoulos tónlistarsam-
keppninni. Samkeppni þessi var
fyrst haldin árið 1961 í því
augnamiði að stuðla að menn-
ingarsamskiptum þjóða og til
að heiðra minningu hins mikla
hljómsveitarstjóra, sem sam-
keppnin er heitin í höfuðið á.
Fyrstu tvö árin var samkeppn-
in haldin fyrir píanóleikara, en
síðan snéru menn sér að atriði,
sem býður upp á miklu færri
moguleika, nefnilega hljómsveit
arstjórn.j
Viðbragðin við þeirri tilraun
voru svoijákvæð, að stjórnendur
keppninriar ákváðu, að framveg-
is skyldi keppnin vera á þessu
sviði. Tala verðlauna var tvö-
földuð, úr þremur í sex, og
þessir sex sigurvegarar fá jafn
há verðlaun, og er auk þess
tryggð vinna sem aðstoðar
stjórnendur við helztu hljóm-
sveitir Ameríku.
BRÉFASKIPTI
18 ára Portúgali óskar eftir að
komast í bréfasamband við ís-
lenzkar stúlkur á aldrinum 16 til
18 ára. Hann getur skrifað á
ensku, frönsku eða sDænsku.
Hann segist vera 1,70 cm- á hæð,
með brún augu og dökkur á
vanga. Heimilisfangið er:
David Edgar Dias Duraes
Rua Vera Cruz No 35, Beirro
Cova da Piedade
Portugal
Leonard Bernstein, sem í
fyrra var leiðbeinandi sigurveg-
aranna og valdi sér sjálfur þrjá
þeirra að aðstoðarmönnum, var
líka í þetta skipti forustumaður
í kviðdómi 9 manna frá ýmsum
löndum.
Þátttakendur — alls 37 — og
allir undir þrítugu- — komu til
New York alls staðar að úr
heiminum, frá Japan og kín-
verska „alþýðulýðveldinu” í
austri, frá Argentínu og Uru-
guay í suðri, frá ýmsum Evrópu
löndum og ýmsum hlutum
BandaWk|anna. Alls áttu 18
þjóðir fulltrúa þarna. Það var
erfitt verk að skera úr um sig-
urvegarana, og fyrir þátttakend-
ur var þetta geysileg tauga-
spenna, fyrst og fremst í fyrstu
prófunum. Það tók heila 10 daga
að fækka þátttakendum úr 37
ofan í 26, og síðan ofan í 18 í
undanúrslitum. Þá þurftu þátt-
^''"illKrjliilllllllllUIDIIIIIIlilllIUllllliJillllliillililiiilllllUIIIIIIIIIIIIIIIIilJlllliIllllllllllllliJ
g Ekki eru állir sammála um
jg efnahagsaðgerðir brezku
j§- stjórnarinnar og það nýjastá
jj er, að Shawcross lávarður
■ sem eitt sinn var verzlunar
jj málaráðherra í stjórn Attl
■ ees, hefur ráðizt á stefnuna,
§j sem hann telur miða að því
jj að gera Stóra Bretland að
: Litla Bretlandi- Telur hann
m ráðgjafa stjórnarinnar ekki
jj ráða henni heilt í þessum
g efnum, en með ráðgjöfum á
j§ hann við hina kommúnisfí k
H vinsamlegu Ungverja Balogh
■ og Kaldor. Annars var þessi
jj inngangur hafður til að
1 koma því að, að á meðal
j§ brezkra embættismanna
■ ganga þeir félagar undir.
m nöfnunum Buda og Pest. —
Jj Þess skal að lokum getið að
takendur að lesa óþekkt verk
við fyrstu sýn og auk þess
stjórna kórverki eftir Mahler á-
samt hluta af 3. píanókonsert
Prokoffiefs til þess að sýna hæfi
leika sína til að starfa með ein-
söngvurum og einleikurum.
„Við leitum að tveim mögu-
leikum,” sagði Antal Dorati frá
BBC í Bretlandi, „þeim, sem er
beztur á þessari stundu, og
þeim, sem gæti verið beztur.”
Þeir tíu, sem „lifðu af” þetta
erfiða próf, fengu að stjórna fyr-
ir boðsgesti. Eftir það voru svo
sigurvegararnir sex valdir en
svo voru menn jafnir, að Leon-
ard Bernstein tók það upp hjá
sér að veita tvenn aukaverðlaun:
silfurpening og fjárupphæð
stúlkunni Dalish Atlas frá ísra
el og Vladimir Kojoukharov frá
Búlgaríu.
Sigurvegararnir sex fengu all-
Framh. á 10. síðu.
Shawcross er nú fulltrúi
frjálslyndra í lávarðadeild
-inni- ■ ■ -
l!|8l!lffilll!ÍllliUlllillli!Illllllllllllii!lil!llinillllllllllllliWIIliliÍ