Alþýðublaðið - 13.05.1965, Qupperneq 16

Alþýðublaðið - 13.05.1965, Qupperneq 16
ili * 'ts'ZÍK, Mennirnir frá AELIS II líta í kringnm sig á Keflavíkurflugvelii. Þetta var í fyrsta skipti í marga mánuði sem þeir höfðu séð Iandslag sem ekki var livíU. Myndir: JV. Rvík, 12. maí — ÓTJ HRF.SSIR og kátir komu íbúar íseyjarinnar ARLIS II til Kefla víkur í morgun. Þangað voru þeir fluttir með ísbrjótnum EDISTO, sem brotist hafði að eynni til að sækja þá-og tæki þeirra. Carl sagði að þeim hefði liðið ágætlega, síðustu dagana, eins og reyndar alla aðra daga sem þeir höfðu átt á ARLIS II. Þó sagði hann að þeir hefðu verið orðnir nokkuð óþreyjufullir, þegar EDISTO seinkaði hvað eftir annað. — Ykkur finnst þá líklega gaman að vera komnir aftur til siðmenningarinnar? Johnstone kinkar kolli, en það bregður fyrir efa í svip hans. Tvær Rolls Royce flug- vélar frá Loftleiðum eru rétt að aka framhjá okkur með ægi- legum gný, og þórdunur berast frá nokkrum þotum sem setja „eftirbrennarana” á. Flugvall- Framh, á 4 síðu. Commander Nickersou, skip- herra ísbrjótsins sagði að þeim hefði sózt ferðin seint að eynni. ísinn hefði verið geysiþykkur og harður fyrir, og EDISTO hefði víða ekki megnað að brjóta hann, þó að rennt væri á spöngina á fullri ferð. Nokkrum sinnum fór skips- höfnin út á ísinn og kom fyrir sprengjuhleðslum, en þær urðu ekki til annars en að gera svarta holu í ísinn. Commander Nickerson, sem er þaulreyndur af margra ára siglingum um ísa svæði sagði að þegar svo væri gætu þeir ekkert gert annað en bíða eftir að móðir náttúra kæmi þeim til hjálpar, og bryti ísinn á einhvern hátt. Fréttamaður Alþýðublaðsins hafði tal af nokkrum eyja skeggjanna, m. a. af Carl John- stone, en hann var síðastur manna um borð í ísbrjótinn. Commander John D. Nick- erson, skipherra EDISTOS. Isbrjóturinn EDISTO, SAMKEPPNILOKIÐ UM TEIKNINGAR AF DAGHEIMILUM OG LEIKSKÓLUM Reykjavík 12. maí ÓTJ. SAMKEPPNI sem Borgajstjórn efndi til, um teikningar af dag ■heimiium og leikskólum fyrir Reykjavík er nú lokið og verðíaun Um verið úthlutað. Á fundi með ífréttamönnum og öðrum gestum pkýrði Birgir ísleifur Gunnarsson borgarfulltrúi frá úrslitum, en hann var formaður dómnefndar í útboðslýsingum var þess get ið að við mat á tillögum yrði eink um liöfð hliðsjón af því hvernig eftirfarandi atriði væru leyst; 1- Afstaða og aðkomumöguleiki að byggingunni. 2. Tengsl móttöku og fataherbergis við leikstofur, snyrtingu og útileiksvæði. 3- Stærð og fyrirkomulag snyrtiher bergja. 4. Staðsetning skrifstofu forstöðukonu; afstaða hfennar til annarra hluta byggingarinnar, svo og vistarverur starfsfólks. 5. Nýt Framh. á bls. 4. 45. árg — Fimmtudagur 13. maí 1965 — 106. tbl. Kosið í Landsvirkjun og Rannsóknaráð SAMEINAÐ ÞING kaus á fundi sínum í gær fulltrúa Alþingís í hið nýja Rannsóknarráð, þrjá menn í stjórn Landsvirkjunar og tvo nýja varamenn í bankaráð Landsbankans. 1 í rannsóknarráð voru þessir kosnir: Davíð Ólafsson, Jönas Pétursson, Sveinn Guðmundsson, Benedikt Gröndal, Ásgeir Bjarnason, Helgi Bergs, Einar Olgeirsson. Varamenn voru þessir kosnir: Matthías Bjarnason, Bjartmar Guðmundsson, Jónas Rafnar, Sigurður Ingimundarson, - ■ Ingvar Gíslason, Jón Skaftason, Gils Guðmundsson. Fulltrúar Alþingis í stjóm Lands virkjunar voru kjörnir þessir: Árni Grétar Finnsson, Baldvin Jónsson, Sigtryggur Klemensson. Varamenn: Einar Oddsson, sýslumaður, Óskar Hallgrímsson, Þorst. Sigurðsson bóndi. Við lát Ólafs Thors og brottför Gunnars Thoroddsen hafa þeir orðið aðalmenn í bankaráði Lands- bankans Matthías Á. Matthíessen og Sverrir Júlíusson. Voru kjörn- ir nýir varamenn í þeirra stað, þeir Árni Vilhjálmsson prófessor og Eyjólfur K Jónsson ritstjóri. Shastri heimsœkiv Sovétríkin Moskvu 12- maí (NTB-Reuter.) Forsætisrálheilra Indjands, Dal Bahadur Shastri, ræddi í dag við sovézka leiðtoga í Kreml, skömmu eftilr komu sína til Moskvu þar sem hann verður í vikulangrj opinberri heimsókn- Shastri átti fyrst undirbúnings- fund með Kosygin forsætisráð- herra og ræddi síðan við Mikoyan forseta. Hann ræðir nánar við Kosygin á morgun um samskipti Indverja og Rússa og alþjóða- mál. Þetta er fyrsta heimsókn Shastris til Sovétríkjanna. Dagar víns og rósa sýnd unglingum MYNDIN hér að neðan er úr kvik myndinni „Dagar víns og rósa“, sem Austurbæjarbíó hefur sýnt undanfarnar vikur, við mikla að- sókn. Kvikmyndin hefur vakið óskipta athygli þeirra mörgu, sem hana hafa séð. En hún f jallar íun, á raunsæjan og ógleymanlegan hátt, afleiðingar áfengisnautnar- innar, og hversu drykkjutízkan Orkar á einstaklinginn, hrekur hann og hrjáir og skilur loks við hann í hinni dýpstu niðurlægingu, En þrátt fyrir alla þá mannlegu eymd og spillingu, sem áfengis- tízkan leiðir af sér og þarna er túlkuð af hinni mestu snilld, er neista vonarinnar, um bjartara og betra líf, ekki gieymt. Myndin er voldug viðvörun öllum þeim, sem rétta vilja Bakkusi litlafingurinn, Frh. á 4. síðu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.