Alþýðublaðið - 29.05.1965, Qupperneq 15

Alþýðublaðið - 29.05.1965, Qupperneq 15
Spurningar Framhald af 7. síðu. menntamálaráðherra og kveðja til hans? Spurning fundarboðenda var reyndar orSuð svo: „Telur ráð- herra svo mikinn ávinning að ís- lenzku sjónvarpi, að fórnandi sé stórfé til rekstrar þess, á meðan aðrar íslenzkar menningarstofn- anir eru í svelti?” Með þessu orðalagi telja fund- arboðendur sig ekki vera að á- mæla núverandi menntamála- ráðherra fyrir fjárþröng íslenzkra menningarstofnana, heldur skýra frá blákaldri og alkunnri stað- reynd, sem á sér dýpri og alvar- legri rætur en hugsanlegt tóm- læti eins tiltekins ráðherra. Fjöldi íslenzkra menningarstofnana er rekinn af algerum vanefnum, enda hefur þjóðin nú þegar ráðizt í rekstur svo umfangsmikilla og fjárfrekra stofnana, að . engin dæmi eru þess, að jafnfámennur hópur hafi tekizt slíkt á herðar. Sjálfum er mér kunnugt um fjár- þröng og aðbúnað nokkurra menn- ingarstofnana, sem ég hef unnið lijá eða átt skipti við: Mennta- skólans í Reykjavík, Háskólans og ríkisbókasafnanna tveggja: Lands- bókasafns og Háskólabókasafns. Öllum landslýð er kunnugt um á- standið í húsnæðismálum Mennta- skólans í Reykjavík, og mun taka mörg ár að bæta þar um. Fjár- þröng Háskólans er slík, að jafn- vel hefur ekki verið unnt að koma fram sjálfsögðustu umbót- um í stofnuninni, svo sem nauð- synlegri vélritunar- og símaþjón- ustu fyrir háskólakennara, þjón- ustu, sem hvert venjulegt við- skiptafyrirtæki telur sjálfsagt að láta starfsmönnum sínum í té. Vandræðaástand ríkir einnig í húsnæðis- og húsbúnaðarmálum stofnunarinnar. Bygging Háskóla- bíós var af ráðamönnum Háskól- ans eflaust hugsuð sem fjárliags- legt bjargráð fyrir stofnunina, þótt báglega hafi til tekizt. Og um ástandið í málum ríkisbóka- safnanna tveggja er það að segja, að þar skortir hundruð milljóna til þess að kippa málum í við- unandi horf, en það verður aðeins gert með byggingu nýs þjóðbóka- safns, þar sem Landsbókasafn og Háskólabókasafn verði sam- einuð og auk þess komið fyrir Þjóðskjalasafni og Handritastofn- un ásamt öðrum skyldum stofn- unum, og enn fremur með stór- felldri eflingu bókakosts þjóð- bókasafnsins, þannig, að það vaxi upp í 1-2 milljónir binda. Fyrr en það hefur verið gert, er ekki unnt að segja, að þjóðin hafi eign- azt nauðsynlegan lykil til hvers konar fræði- og vísindaiðkana. Nú er liins vegar ástandið þannig í þessum efnum, að t. d. fær Há- skólabókasafn einar 400 þúsundir króna á ári til bókakaupa og bók- bands og á að þjóna fyrir það fé m. a. fræðigreinum eins og lækn- isfræði og verkfræði, þar sem hvert ritverk getur kostað þús- undir króna. Bókaverðir safnsins eru tveir, en við sambærileg söfn erlendis yrði talið fráleitt að liafa færri en 10-15 starfsmenn. Um annan aðbúnað að safninu, svo sem í húsnæðismálum, er bezt að fara sem fæstum orðum. Það rnætti vera íslendingum umhugs- les skjálfandi röddu að fénaður þeirra allur skuli með, ekkert skuli skilið eftir. —- Hver sagði þetta spyr höfðinginn. —Nú ah, Móses, stam ar trúboðinn- — Rétt Móses, hrópar höfðinginn, og honum munum við fylgja. Og allir líta á Móses. Sá herramaður er lítið hrif inn af hinu nýja starfi, en neyðist til að taka það- Og með ótrúlegum kiækjabrögðum og hug kvæmni tekst honum að koma svertingjunum til fýrirheitna landsins . Þeir koma að miklu vatni sem er ófært yfirferðar en svertingjarnir eru hin ir rólegustu. Þeir muna hyernig Móses gerði við Rauðahafið. Og þar sem stífla er við vatnið skokkar nútima Móse* þangað til að gera krafta verk. Eins og sjá má af þessu er myndin í létt um dúr, og með ekki ó skemmtilegri leikurum ætti hún að vera góð. Auðvitað fer svo allt vel að iokum. flíl m p m í kvikmyndir skemmtnnir ■■■■■■■ dœgurlög ofl. MYNDIN UM MÓSES Robert Mitchum og Caroll Baker fóru ekki alls fyrir löngu til Afr íku til að leika í kvik mynd er ntefnist „Mr. Moses,” og leikur Robert þar titilhlutverkið. Það skal tekið fram að mynd in er ekki um þann Mós es sem við ÖLI könnumst við, heldur er ný saga og persóna á ferðinni- Mitchum er demants smyglari sem dulbýr ferð ir sínar með því að þykj ast vera einskonar lækn ir. Meðul hans og læknis ráð myndu þó varla vinna honum virðulegri nafnbót en ,,skottulækn ir’“ en hann kemst ágæt lega af með það: Á ferð um sínum kemur hann víða við og kynnist hátt um svertingjanna. Eitt af ævintýrum hans verður til þess að hann lendir í trúboðsstöð, með reifað höfuð og hittir þar fyrir Carroll Baker sem er dóttir trúboðans- Hún er trúlofuð ungum manni úr frumskógarlög reglunni, en frumskógar lögreglan stendur í miklu stríði við að fá ætbálkinn til að flytjast á annan stað. Loks dettur höfð ingjanum ráð í hug, eða réttara sagt Carroll dett ur það í hug og tekst að sannfæra hann. Höfðing inn kemur út úr kofa sínum með biblíuna og rétt í þann mund sem bardagi er að hefjast milli frumskógarlög reglumanna og stríðs manna hans. Hann fleyg ir Biblíunni að trúboð anum og skipar honum að lesa. Og trúboðinn Hljómarnir ferðast um landið i Hér höfum við svo á mánaðarferðalagi um Hljómsveitina skipa (frá mynd af þeim fjórum sem eru allra bítla bítla legastir, og jafnframt vin sælasta hítlahljómsveit landsins. Hljómar eru nú landsbyggðina, því að ekki mega bændur missa sinn skammt af tónlist þeirri er farið hefur sem flóðbylgja um allan heim- v. til h.) Erlingur Gunn ar, Rúnar, og fremst á myndinni er Myndina tók Vilberg. Pétur. Jóhann unarefni, að þjóð eins og ísraels- menn, sem ekki getur veitt sér alla hluti í einu fremur en ís- lendingar, hefur einmitt lagt kapp á að koma upp sem fullkomnust- um vísindastofnunum og sem beztri aðstöðu til visindaiðkana í landinu, en hefur hins vegar ekki enn ráðizt í stofnun sjón- varps. Ég hygg, að orðið sé timabært að íslendingar átti sig rækilega á því, að þeir verða jafnan að gera upp við sig, hverjar nýjungar í menningarmálum þeir megna að taka upp, að þeir verða að velja og hafna í þeim efnum, ekki síð- ur, heldur miklu fremur en ísra- elsmenn. Minna má á, að ís- lendingar eru svo sérstæð þjóð sökum fámennis, að þeir munu vera nær eina sjálfstæða menn- ingarþjóðin, sem ekki getur rekið járnbrautarkerfi við hlið bílvega- kerfis. Og fjölmargar stofnanir, sem reknar eru með góðum hagn- aði jafnvel meðal smáþjóða er- lendis, svo sem útiskemmtistaði (tívolí), fjölleikahús og dýragarða, er enn vonlaust að reyna að reka hér á landi. Engum dettur í hug að setja á stofn nýja verksmiðju, t. d. kísilsallaverk eða álbræðslu, án þess að kanna til fullnustu bæði markaðshorfur og áhrif slíkrar stóriðju á íslenzkt at- hafnalíf í heild. Ekki síður ætti að vera sjálfsagt, áður en til jafn- stórfellds fyrirtækis og íslenzks sjónvarps er stofnað, að kanna rækilega, hver áhrif það sé líklegt til að hafa á hinn islenzka menn- ingarmarkað, ef svo mætti kalla, en engin slík allsherjarathugun hefur farið fram, að því er menntamálaráðherra upplýsti á fyrrnefndum fundi um sjónvarps- mál. Ég vil að endingu taka fram að óspurðu, að víst tel ég guðs- þakkarvert, ef íslenzkum ráða- mönnum tekst að fóta sig á þvf að takmarka Keflavíkursjónvarpið við herstöðina eina, jafnframt því sem þeir setja á stofn íslenzkt málamyndarsjónvarp, þótt ég að vísu líti með fullu raunsæi á stofnun slíks sjónvarps — af íra- fári, á þessari stundu og við þess- ar aðstæður — sem ámáttlegt yfirklór yfir dýrasta axarskaft aldarinnar. Þórhallur Vilmundarson. Grein Gylfa Þ. Gíslasonar Framhald af 5. síðu. Noregs. Ástæða þess, að þessi einfaldi boðskapur vakti athygli á sínum tíma, var sú, að um þetta leyti var það eitt aðalumræðu- efni íslenzkra stjórnmála, hverjir væru kostir þess og gallar, að ísland tengd- ist Efnahagsbandalaginu með einhverjúm hætti. — Andstæðingar ríkisstjórn- arinnar þóttust finna í orðum mínum fyrirboða þess, að ríkisstjórnin hygðist ganga í Efnahags bandalagið. Ekkert hefði þó verið fjær mér en að ræða sérstaklega aðild ís- lands að Efnahagsbanda- laginu við þetta tækifæri. Það hafði ég gert við fjöl- mörg önnur tækifæri á öðrum vettvangi. Þegar frá líður, verður þess ef- laust minnzt sem eins af mörgum dæmum um það, hversu oft skorti á hugar- ró og heilbrigða dóm- greind í umræðunum um Efnahagsbandalagsmálið, að ekki skuli hafa mátt benda á jafnaugljósa stað- reynd og þá, að áhrif stór- velda og ríkjabandalaga fari nú vaxandi, en áhrif smáríkja að sama skapi minnkandi, án þess að það hafi verið túlkað sem stefnuyfirlýsing um, að ísland ætti skilyrðislaust að ganga í Efnahags- bandalagið. Mér þykir það miður, að mætur maður eins og Jón úr Vör skuli hafa myndað sér skoðun á því, sem ég sagði og meinti, á grundvelli rangfærslna í blöðum, en ekki texta ræðunnar sjálfrar, sem hefur þó verið prentuð. Ég var ekki að tala um ut anríkismál- Ég var ekki að tala um aðild að varnar- samtökum eða hlutleysi. Ég var ekki að tala um, hvort við ættum að ganga í Efnahagsbandalagið eða ekki. En ég benti á, að einangrun okkar hefði ver- ið að minnka og myndi lík lega halda áfram að minnka, tengsl okkar við aðrar þjóðir hefðu verið að vaxa og myndu líklega halda áfram að vaxa. Það hefði óhjákvæmilega í för með sér vissa hættu fyrir þjóðlega menningu jafn- fámennrar þjóðar og ís- lendinga. Þess vegna yrðu þeir að gæta síri vel. Ein- mitt hin auknu tengsl við umheiminn legðu íslend- ingum á herðar ennþá rík ari skyldur en áður til þess að standa trúan vörð um þjóðlegan arf sinn. Getur það verið, að við Jón úr Vör séum í raun . og veru ekki sammálji um þetta? ALÞÝOUBLAÐIÐ - 29. maí 1965 15

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.