Alþýðublaðið - 22.06.1965, Blaðsíða 11
FYRSTISIGUR DANA YFIR
SVÍUM SÍÐAN í OKT. 1951
DANIR sigruðu Svía í Idræts-
parken á suunudag' með 2 mörk-
um gegn 1. Öll mörkin voru skor-
uð í fyrri hálfleik.
Ole Sörensen, sem var bezti maí-
ur Dana í leiknum skoraði sigur-
| markið eftir sendingu frá Ole Mad
! sen, fimm mínútum síðar, eða á
Þetta er fyrsti sigur Dana yfir 35 minútu. Sörensen var tvímæla-
Svíum í a-landsleik síðan 21. októ i laust bezti maður leiksins.
ber 1951 og fögnuðurinn var gíf
urlegur í Idrætsparken, eins og
gefur að skilja.
Ole Madsen skoraði fysta mark-
ið í leiknum úr þvög-u, en Örjan
Persson, h. útherji Svía jafnaði.
Vestmannaeyjar
unnu Víking 4:2
VESTMANNAEYJAR og Víkingur
léku í 2. deild á Melavellinum
á sunnudag. Viðureigninni lauk
með sigri Ves+mannaeyinga, sem
skoruðu 4 mörk gegn 2. Víkingur
fhafði betur í fyrri háifleik 1:0.
Ekki er hægt að segja,) af
leikur þessi hafi boðið upp á
mikil knattspyrnuleg tilþrif, óná
kvæmni í sendingum var áber
andi og tilviljun réði oft um
férð knattarins- Vestmannaeyja
liðið er skipað nokkuð sterkum
einstakljngum, sem berjast vel.
Aðalsteinn Sigurjónsson( þjálfari
ÍBV—liðsins sko”aði tvö af mörk
um þeirra, en beztu menn liðsins
voru hægri framvörður (nr 4) og
vinstri útherji-
Hjá Víking var miðframvörður
inn bez+ur, annars er liðið jafnt,
en vantar meiri baráttuvilja-
Dómari var Karl Jóhannsson
og dæmdi vel. Áhorfendur voru
um 500.
Fyrri hálffeikur var mun betur
leikinn, í síðari hálfleik áttu bæði
liðin góða möguleika, en Danir
þó öllu meiri.
Mark Ole Madsen er það 40.,
sem hann skorar í landsleib, að-
eins tveir leikmenn hafa skorað
fleiri, Poul Niclsen hefur skorað
flest, eða 52. Dómari var Birger
Nilsen, Noregi, og dæmdi vel.
Tvéir hátíðisdagar hafa nú kom-
ið í Danmörku með stuttu milli
bili, 17. júní, þegar ölið kom aft-
ur og dagurinn, þegar Danir sigr-
uðu Svía í Idrætsparken.
Hinum leikjunum þrem lauk
öllum með jafntefli, unglingaleikj
unum með 2:2 og 0:0 og B-leikn
um með 0:0.
DÓMARINN LÉK AÐALHLUT-
★ Ron Clarke, Astralíu, hljóp
5 km. á 13:40,8 mín. í Tammer-
fors, Finnlandi, á föstudag, ná-
kvæmlega 15 sek. frá nýsettu
heimsmeti sínu. Millitimi hans á
3000 m. var 8:10,0 mín.
Haukar unnu KS óvænt 3:1
A—RIÐILL:
Haukar — KS 3:1.
★ STAÐAN:
L U J T M St.
Þróttur 4 3 1 0 24:6 7
Haukar 3 2 0 1 4:5 4
KS 3 1 1 1 8:7 3
Reynir 2 0 0 2 '1:7 0
Skarph. 2 0 0 2 0:12 0
B—RIÐILL:
ísafjörður — FH. 3:2
Vestm.eynrr — Víkingur 4:2
★ STAÐAN:
L U J T M í
FH 4 2 11 11:3
ísafjörður 3 2 0 1 12:9
Vestmey. 3 2 0 1 10:7
Breiðabl. 2 í 0 |1 3:9
Víkjngur 4 0 1 3 4:12
oooooooooooooooc
Harold Conolly bætti heims-
met sitt í sleggjukasti um
19 sentimetra á laugardag,
kastaði 71.26 m. Mótið fór
fram í Walnut, Kaliforníu.
OOOOOOOOOOO OOOOC
ENN af þremur leikjum II.
deildar á sunnudag fór fram í
Hafnarfirði og áttust þar við
Haukar og Siglfirðingar. Fyrir
leikinn var almennt álitið að
norðanmenn myndu sigra en raun
in varð önnur þrátt fyrir forystu
KS í hálfleik, sigruðu Haukar
með 3:1. Sigur Hauka var sann
gjarn þó markamunur hefði mátt
vera minni. Siglfirðingar léku und
an golu í fyrri hálfleik, en náðu
Hdrei að nýta sér aðstöðuna og
einkenndist þessi hluti leiksins
af löngum spyrnum og ónákvæm
um. Eina mark hálfleiksins var
dálítið einkennilegt- Einn bezti
maður KS Þorkell sendi lausan
bolta að marki og Stefán mark
vörður Htuka ætlaði að taka bolt
ann upp en missti ihann milli
fóta sér og rann hann inn í mark
ið út við stöng, en Stefán hefði
hæglega getað náð honúm með
því að kas'a sér á eftir honum,
en hann stóð eins og negldur úti
í vítateig og horfði á eftir knett
;num-
í seinni hálfleik tóku Haukarnir
leikinn : sínar hendur og sýndu
oft góð tilþrif. Jöfnunarmarkið
kom á 8. mín. en Jóhann Larsen
rak tána í boltann er þvaga mynd
aðist við mark KS. Á 25-mín. kom
svo fallegasta mark Jeiksins. Garð
I ar framvörður lék fallega upp völl
inn og gaf til Sigurðar útherja
sem spyrnti viðstöðulaust jarðar
bolta í bláhorn marksins. 10 mín.
síðar kom svo þriðja mark Hauk
anna. Sigurður lék upp kantinn
og gaf fallega fyrir til Magnús
ar Jónssonar, sem skoraði auð
veldlega- Siglfirðingar áttu nokk
ur góð tækifæri en Stefán bjarg
aði vel og oft á hinn furðulegasta
hátt.
Lið KS olli miklum vonbrigð
um í þet'sum leik og virðist það
skorta alla samheldni og ákveðni.
Beztu menn liðsins voru mark
vörðurinn og Þorkell.
Haukarnir sýndu sinn bezta
leik í ár og í seinni hálfleik oft
á tiðum góðan. Bezti maður liðs
ins og vailarins var án efa Sigurð
ur Jóakimsson^ en á honum brotn
aði hver sókn KS af annarri, hann
er traus*ur og ákveðinn leikmað
ur. Einnig áttu góðan dag þeir
Garðar, Sigurður Ársælsson og
Stefán í markinu, ef frá er talið
markið sem hann fékk á sig.
Sunnudaginn 20. júní fór fram
á ísafirði leikur í 2. deild milli
heimamanna og FH. Leikurinn
hófst kl- 16.00 í góðu veðri- FH.
ingar léku undan golu í fyrri
hálfleik og strax á 3. mínútu
skora þeir, er v. útherji þeirra
Ásgeir spyrnti háum bolta utan
af kanti yfir markvörð ÍBÍ. Eftir
markið só'tu FH—ingar nokkuð
fast og er 15 mín. voru eftir af
leik, þá veu vVrnarmaður ÍBÍ
knöttinn með hendi í vítateig
og bjuggu'-t nú allir við vítaspyrnu
en þá skeðj það furðulega að
dómarinn færði knöttinn út fyr
ir vítateig og lét framkvæma auka
spyrnu. FH—ingar mó'mæltu en
dómarinn ræður. í iok hálfleiks
ins fóru heimamenn að sækja í
sig veðrið. Mistök h. ffamvarðl'
FH- ollu því að h. útherji ÍBÍ náði
að senda knöttinn í netið-
Síðari hálfleikur varð all sögu
legur. Heimamenn sóttu mjög fast
en tókst ekki að skora þrátt fyrir
stanzlausa sókn í 15 min.. Þá ná
FH—ingar snöggri sókn, en ís
firðingar verjast og senda knött
inn út í sjó, en völlurinn á ísa
firði er stað"ettur niður í fjöru.
Rak knöÞinn frá landi og var
úr vöndu að ráða, en hinn „snjatli"
dómari hafði ráð undir rifi hverju
og bað um nvjan bolta og fékk
hann, lét hann síðan leik byrja
að nýju og náðu nú ísfirðingar
stórsókn, sem endar með marki
2—1. Þegar FH—ingar ætla að
hefja leik eftir markið, þá stöðv
ar dómarinn þá og tilkynnir að
knötturinn sé ólöglegur og að
sækja skuli knöttinn sem byrjað
var með. Settust nú leikmenn á
völlinn og biðu í rúmar 10 mín
útur eftir árabátnum, sem bar
knöttinn að landi aftur. En held
Jir Sannst þeim HafnfirBingum
súrt í broti að þurfa að fá á sig
mark þessar 3 mínútur, sem hinn
ólöglegi bolti var notaður og
reyndu þeir að koma orðum að
því við dómarann, en hann hélt
fast við sitt að vanda og gaf þeim
manni áminningu er slíkt reyndi
með þeim orðum að ef hann léti
heyra til sín það sem eftir væri
leiks þá myndi hann vísa honum
af leikvelli. Nú þegar skipið var
komið að landi með knöt'inn hófst
leikur að nýju og sóttu nú FH—.
ingar fastar, en ísfirðingar áttu
snöggar sóknir og í einni slíkri
sókn tók=t þeim að skora sitt
þriðia mark og lenti knötturinn I
miðverði ÍBÍ og af honum í mark
íð- Þannig lauk leiknum með sigri
ÍBÍ og beir voru nær sigrinum^
en kannski hefði jafntefli verið
sanngjörnustu úrslitin-
Ljð ÍBÍ er harðskeytt meff
Björn Helgason, sem bezta mann
og 'einnig er markvörðurinn efni
legur. Lið FH var ekki eins gott I
bes<-um !)eik og undanfarið, enda
munu hafa útt sér stað mikil for
föll í liði beirra. Dómarinn í leikn
um var Grétar Norðfjörð og var
oft á tíðum óhugnanlegt að horfa
á dóma hans og allar aðfarir.
IBK - Fram jafntefli
FRAM og IBK mættust í gær-
kveldi. Neðstu liðin í 1. deildinni,
enn sem komið er. Nokkur eftir-
vænting ríkti í sambandi við leik
inn, og þess vænst að um snörp
átök yrði að ræða. Leiknum lauk
með jafntefli, sem eftir gangi
hans voru réttlát úrslit.
Fyrri hálfleikurinn, sem var
lakari hluti leiksins, endaði án
marka, þótt bæði liðin ættu mögu
leika á að skora. En mistökin uppi
við mörkin komu í veg fyrir það.
Þegar á fyrstu mínútum leiksins
komust Framarar í færi, en Kjart
an markvörður bjargaði laglega.
Eins skölluðu Keflvíkingar yfir úr
opnu færi hokkru síðar.
Það var ekki fyrr en eftir,
fyrsta markið, sem kom á 11.
mín. síðari hálfleiks, að nokkur
lyfting komst í leikinn. — Það
var Jón Jóhannsson, sem skor-
aði eftir snotran samleik, skotið
var næsta laust en dugði þó. Við
markið óx ÍBK ásmegin og
Frammarar efldust einnig.
Um miðbik leiksins sóttu Kefl-
víkingar fast á, og átti þá m. a.
annar úth. þeirra Jón Ólafur þrí-
vegis næsta upplögð færi á
f'iíliill
t .
i .......
Unglingamet í mílu
í leikliléi í gærkvöldi fór fram
míluhlaup. Halldór Guðbjörns-
son, KR, sigraði og setti unglinga
met — 4.18.8 min. Nánar á morg-
un.
markið, er, mistókst jafn oft. —
Hver mínútan leið af annarri,
án þess að nokkuð gerðist frek-
ar uppi við mörkin, og almennt
var búizt við að hinn naumi sig-
ur íslandsmeistarann héldist allt
til loka. En svo varð þó ekki, þvi
á 40. mín. jöfnuðu Framarar,
Ásgeir Sigurðsson, h. innherji
með stórglæsilegu skoti. Hörku-
föstu og beinskeyttu, óverjandi
mark dundi yfir íslandsmeistar-
ann á síðustu stundu, og og hrifs-
aði fi’á þeim annað stigið. Rétt
fyrir, leikslok skoruðu þó ÍBK-
menn annað mark, en það var
dæmt af sökum brota á markvörð-
inn.
Einar Hjartarson dæmdi leikipn.
EB
I. DEILD
JÓN JÓHANNSSON, IBK
átti góðan leik í gær.
Valur
KR
Akran.
Akure.
Keflav.
Fram
5 3 117 12:8
52216 10:8
5 2 1 2 5 11:11
5 2 1 2 5 8:10
5 1 2 2 4 4:6
5 1 1 3 3 7:9
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 22. júní 1965 Xt