Alþýðublaðið - 08.07.1965, Blaðsíða 10
FLOGIÐ STRAX
FARGJALD
GREITT SÍÐAR
i
Finnland - Sovétríkin i
77.7.-37.7. 75 daga ferð $
Verð kr. 15.600.00 “í
Fjölbreytt og óviðjafnanleg ferð, þvert yy
f/m
I
í
f
yfir Rússland allt suður í Kákasíu. Dvalist á
baðströnd við Svartahaf, skoðaðir sögustaðir,
söfn, leikhúsferðir. Ferðir, hótel, matur og leið-
sögn innifalin í Verði. Flogið með flugvélum
Loftleiða.
Fararstjóri: Reynir Bjarnason, landbúnaðar-
kandidat Moskvuháskóla.
Ferðaáæílun: 17. júlí: Flogið til Helsinki og
dvalið þar í sólarhring. 18. júlí: Farið méð járn-
braut til Leningrad og dvalið þar 2 daga. 21.
júlí: Flogið til Riga og dvalið þar einn dag. 22.
júlí: Flogið til Kiev og dvalið þar einn dag. 23,
júlí: Flogið til Sochi við Svartahaf, og dvalið
þar 4 daga á baðströndinni. 28. júh': Flogið til
Moskvu og dvalið þar í 3 daga. 30. júlí: Farið
með járnbraut til Helsinki. 31. júlí: Flogið til
íslands.
LAN D S Ö N t
fEReASKRI.FSJ.OFA
SkólavörðusKg 16, II. haeð
SfMI 22890 BOX 465 REYKJAVÍK
!
1
i
| 0 8. júlí 1965 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Lögleg afsökun
Framh. úr opnu.
hæf geta kanzlarinn og forsetinn
lýst yfir hættuástandi og gildis-
töku laganna á eigin spýtur.
Hlutverk hersins.
Það atriði laganna, sem
sætt hefur hvað harðastri gagn-
rýni, er það, að auk þess sem kalla
má út herinn til að leysa af hendi
störf, sem eru í verkahring lög-
reglunnar, má beita honum „innan
lands með vopn í höndum“ að
skipan stjórnarinnar. Skilyrðin
fyrir beitingu hersins eru óljóst
orðuð og þannig segir, að beita
megi honum „ef ástandið óum-
flýjanlega krefst aðgerða af þessu
tagi“.
Fyrir níu árum var samþykkt
ákvæði í stjórnarskrána einmitt í
því skyni, að firra því, að hern-
um yrði misbeitt í valdabaráttu
innanlands. En þetta stjórnarskrár
ákvæði verður til einskis ef stjórn
Erhards fær vilja sínum fram-
gengt og lögin verða samþykkt.
Lögin eru ekki geðfelld í sjálfu
sér. En samning þeirra bendir þó
fremur til rótfastrar íhaldssemi
en eiginlegrar einræðishneigðar
meðal vestur-þýzkra ráðherra og
ráðunauta þeirra. En játa verður,
að það sem ánægjulegast er í sam
bandi við lögin er hin harða gagn
rýni, sem þau hafa sætt.
Trúlofunarhringa
Sendum gegn póstkröfu
Fljót afgreiðsla.
Guðm. Þorsteinsson
Bankastrætl 12.
gullsmiður
ooooooooooooooo<
Frá HAB
Dregið hefur verið í happ
drætti Alþýðublaðsins- Fyrri
dráttur 1965.
Vinningar komu á eftirtal
in númer:
1662 Flugferð fyrir 2
Keykjavík — New
York — Reykja
vik.
18742 Hálfmánaðrferð
fyrlr tvo með
skipi til megin
lands Evrópu.
Vínninganna skal vitiað á
skrifstofu Happdrættisins
Hverfisgötu 4, sírni 22710.
Skrifstofan er opin alla
virka daga kl. 9—5 nema
laugardaga kl- 9—12.
HAPPDKÆTTl
ALÞÝÐUBLADSINS
>000000000000000
TILKYNNING frá
Síldarverksmiðjum ríkisins.
Bræðslusíld sú, sem Síldarverksmiðjum rikisins hefur borizt
á þessari síldarvertíð til og með 9. júní, verður greidd föstu
verði, krónum 190,00 málið, 150 lítrar. — Greiddar verða krón-
ur 235,00 málið, 150 lítra, fyrir þá bræðslusíld, sem móttekin
er frá og með 10. júní til 30. september 1965, að frádregnum
krónum 3,00 á mál, sem leggjast í flutningasjóð síldveiðiskipa,
sem starfar eftir sömu reglum og siðastliðið ár, að öðru leyti
en því, að greiðslur úr sjóðnum, þegar ákveðið hefur verið af
nefnd þeirri, sem umsjón hefur með honum, að greiðslur úr
honum skuli fara fram, nema nú kr. 15,00 á mál í stað kr. 10,00
í fyrra og greiðslur frá Síldarverksmiðjum ríkisins, á þeirri síld,
sem styrkur er veittur á úr sjóðnum, nema nú kr. 10,00 á mál,
en námu í fyrra kr. 6,00 á málið. Eftirstöðvum sjóðsins, ef ein-
hverjar verða, verður skipt niður á síldveiðiskipin í réttu hlut-
falli við greiðslur hvers skips í sjóðinn.
Verðið er miðað við, að síldin sé komin í löndunartæki
verksmiðjanna eða umhleðslutæki sérstakra síldarflutninga-
skipa, á höfnum inni, á vegum S.R.
Jafnframt hefur stjórn Síldarverksmiðja ríkisins ákveðið,
samkvæmt heimild sjávarútvegsmálaráðherra, að taka við
bræðslusíld til vinnslu af útgerðarmönnum eða útgerðarfélögum,
sem þess óska, að því tilskyldu, að aðalskrifstofu Síldarverk-
smiðja ríkisins á Siglufirði hafi borizt tilkynning um bað eigi
síðar en 15. júlí næstkomandi, að þeim degi meðtöldum.
Fá þeir, sem leggja síldina inn til vinnslu, greitt óafturkræft
krónur 161,50 á hvert mál við afhendingu, af þeirri síld, sem
landað var fram til 9. júní s.l., að þeim degi meðtöldum, og
krónur 197,20 á hvert mál síldar, sem landað er á tíinabilinu
frá 10. júní og með 30. september næstkomandi. Endanlegt
verð verður greitt síðar, ef um viðbót verður að ræða, þegar
reikningar Síldarverksmiðja ríkisins fyrir árið 1965 liafa verið
gerðir upp.
Þeim, sem leggja síldina inn til vinnslu, skal greitt sölu-
verð afurða beirrar bræðslusíldar, sem tekin er af þeim til
vinnslu, að frádregnum venjulegum rekstrarkostnaði, þar á
meðal vöxtum af stofnkostnaði og ennfremur að frádregnum
fyíningum, sem verða reiknaðar krónur 30.200,000,00 vegna árs-
ins 1965.
Þau skip, sem samið hafa um að leggia síldina inn til vinnslu,
eru skyld að landa öllum bræðslusíldarafla sín.um hjá Síldar-
verksmiðjum ríkisins. Þó sé þeim heimilt að leggja síldina upp
annars staðar í einstök skipti, ef iöndunarbið hjá þeirri síldar-
verksmiðju S.R., sem næst er veiðisvæði því, sem skipið er
statt á, er meiri en 12 klukkustundir. Þessi undantekning gildir
ekki, ef síldveiðiskipið siglir með afla sinn fram hjá stað, sem
Síldarverksmiðjur ríkisins eiga síldarv'erksmiðju á, bar sem
slík löndunarbið er ekki fyrir hendi eða Sildarverksmiðjur rík-
isins geta veitt síldinni móttöku á stað, sem er álíka nálægt
eða nær veiðisvæðinu og verksmiðja sú i eigu annarra, sem
skipið kynni að óska löndunar hjá.
Um þau skip, sem eru í föstum viðskiptum við Síldarverk-
smiðjur ríkisins gilda eftirfarandi reglur varðandi löndun í
flutningaskip á vegum annarra síldarverksmiðja:
Séu þessi síldveiðiskip stödd meira en 70 sjómílur frá landi
þar sem verið er að umskipa síld úr veiðiskipum í flutningaskip,
þá er þeim heimilt, þrátt fyrir skuldbindingar sínar við S.R. að
landa í flutningaskipið, en séu þau stödd nær landi en 70
sjómílur, gilda sömu reglur um löndun í flutningaskip eins og
um löndun samningsbundinna skipa til verksmiðja í eigu annarra.
Bræðsiusiid, sem þegar hefur verið landað hjá Síldarverk-
smiðjum ríkisins af skipum þeirra útgerðarmanna eða útgerðar-
félaga, sem kunna að óska að leggja síldina inn til vinnslu í
sumar, verður talin vinnsiusíld, svo framarlega að tilkynnt sé
innan hins tiltekna tíma, að vinnslu sé óskað hjá Síldarverk-
smiðjum ríkisins í sumar.
Engin síldveiðiskip hafa forgangslöndun hjá Síldarverk-
smiðjum ríkisins.
Reykjavík, 6. júlí 1965. Stjórn Síldarverksmiðja ríkisins.
Staöa verkstjóra
í saumastofu Borgarspítalans í Fossvogi er laus til um.
sóknar.
Laun samkvæmt 12. launaflokki kjarasamninga Reykja-
víkurborgar.
Umsóknir með upplýsingum um nám og fyrri störf, send-
ist Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur, Heilsuverndarstöðinni
fyrir 1. ágúst nk.
Reykjavík, 7. júlí 1965.
Sjúkrahusnefnd Reykjavíkur.