Alþýðublaðið - 14.07.1965, Blaðsíða 9
Vestfjarða-
deild Vernd-
ar stofnuð
'ietnam hermenn meS hertekin Vietcongr vopn.
Frelsisstríðj
ingar með hernaðarlegum eða
friðsamlegum ráðum gegn ríkjandi
stjórnum eða stéttum, og jafn
framt stimpla þeir ráðamennina
sem heimsvaldasinna, nýlendu
sinna, lénsherra, kapitalista eða
fasista. Af tæknilegum ástæðum
vilja kommúnistar gera banda
iag við hverja sem er, og se|L
dæmj um þetta bendir blaðið á
að í Rómönsku Ameríku hafi
nokkrir afturhaldssamir forsetar
haft samvinnu með kommúnistum.
í þessu sambandi virðist það
vera einföldun að halda því fram
að kommúnistar séu sammála um
þessi mikilvægu vandamál. Deila
Rússa og Kínverja snýst að nokkru
leyti um réttmæti styrjalda og
þeir eru ósammála um hættuna
á því, 'að takmögfeuð styrjöld'
geti þróast í stórstyrjöld.
★ HVAÐ Á AÐ GERA?
Blaðið spyr, hvað Bandaríkin
geti gert og eigi að gera til að
mæta þessari nýju ógnun. Skoðun
blaðsins er í stuttu máli sem hér
segir.:
Þótt jjþjóðfrelsisstríð" kallist
því nafni kemur sjaldan fyrir að
áráa sé gerð yfir landmæri- Vopn
' in i þjóðfirelsisstríði eru skemmd
arverk, áróður, tækniaðstoð o. fl.
og barist er um mannshjartað.Auk
þess eru kommúnistar í hverju
landi leynivopn kommúnistablakk
arinnar.
En, segir blaðið, byltingarleið
togarnir þurfa ekki að koma úr
röðum kommúnista. í Afríku hafa
nær aldrei verið kommúnistar og
í langflestum þróunarlöndunum
hefur þjóðernisstefna ráðið lög
um og lofum. Óánægjan á rætur
, Siínar að rekja til ástandsins í fé
; lagsmálum og efnáhagsmálum og
: það má laga með umbótum.
Ein mesta hættan, sem Banda
ríkin standa andspænis í Róm
önsku Ameríku, er í því fólgin;
■að Bandarílfjamenn taki afstöðu
gegn róttækum leiðtogum, þeg
ar þeir krefjast slíkra umbóta, og
koma sér þannig í gagnbyltingar
aðstöðu. í Dóminikanska lýðveld
inu til dæmis komust Bandaríkin
í þá aðstöðu, að þeir studdu aft
urhaldssinna gegn umbótasinn-
um. Þetta mun ávallt gerast þeg
ar Bandaríkih bæla niður bylt
ingartilraun af ótta við kommún
ista, segir blaðið. Þjóðfrelsisstríð
um verður að svatra á sviðum fé
lagsmála, stjórnmála ogefnahags
mála.
Ef raunveruleg kommúnista
hætta er hins vegar fyrir hendi
og ljóst að óeirðii' eru studdar af
kommúnistablökkinni og stjórn
að þaðan og ef allt þetta er liður
í kalda stríðinu verða Bandarík
in að láta til skarar skríða. En
einnig í þessu tilviki má því að
eins láta til skarair skríða að for
sendurnar séu nánar skilgreind
arf segir „New York Times-“
★ VILJI FYRIR HENDI
í fyrsta lagi verðu.r það að
vera algert skilyrði, að land það,
sem er í hættu, vilji sjálft bjarga
sér frá hinni kommúnistísku
hættu. Sú hugmynd, að Banda
ríkjamenn geti einir innt starf
ið af hendi, er hættulegur mis
skilningur.
Auk þess er mikilvægt, að mögu
leikar séu á að vega og meta °g
skilja tildrög uppreisnar. Marg
ir bandarískir sérfræðingar háía
lengi gert sér grein fyrir því; að
ástandið í sumum löndum heims
sé með þeim hætti, að uppreisn sé
skiljanleg og þurfi ekki að standa
: nokkru sambandi við Moskvu,
Peking eða Havana. Ástæðan til
þess, að svo erfitt er að leysa
vandamálin er sú, að þau eru svo
víðtæk, flókin og margbrotin.
Þetta er einnig ástæðan til þess,
að bandarískir leiðtogar vara við
og krefjast þess að hörku verði
Frh. á 10. síðu.
STOFNUÐ hefur verið Vestfjarða
deild félagsskaparins VERNDAR
og var stofnfundurinn haldinn í
Skátaheimilinu á Ísafirðí sl. mið-
vikudag. Var þar jafnframt til-
kynnt um stórhöfðinglega gjöf
hjónanna Þorbjargar Valdimars-
dóttur og Jóns Kristjánssonar
byggingameistara til félagsskapan
ins á eignum í Hnífsdal og Eyrar
hreppi,
Stofnfundurinn á ísafirði var
fjölsóttur, en til hans boðuðu þær
frú Þóra Einarsdóttir, formaður
VERNDAR, og frú Sigríður J.
Magnússon, sem á sæti í stjórn fé-
lagsins. Fundarstjóri var Marías
Þ. Guðmundsson framkvæmda-
stjóri. í upphafi fundarins flutti
frú Þóra yfirlitserindi um stofnun,
tilgang og starf félagssamtakanna
VERNDAR. Voru þau stofnuð árið
1959 og standa að þeim um 100 fé-
lög og um 600 einstaklingar að
auki. Megintilgangur félagsins er
að liðsinna og aðstoða ýmsa þá
menn, sem gerzt hafa brotlegir
við lög og stuðla að því að þeir
geti á nýjan leik orðið góðir sam-
borgarar. Hefur félagið unnið
mjög margháttað mannúðarstarf
á þessu sviði. Lýsti frú Þóra yfir
því, að tilgangurinn með boðun
þessa fundar væri að stofnsetja
fyrstu deild félagsins utan Reykja
vikur, og yrði það deild fyrir Vest
firði með aðsetri á ísafirði.
Þá sagði hún frá mjög höfðing-
legri gjöf, sem félagssamtökin
VERND hafa nýlega hlotið og kvað
stjórn samtakanna hafa samþykkt
á fundi sínum í Reykjavík að af-
henda þeirri Vestfjarðadeild, sem
nú ætti að stofna, þessa gjöf til
umráða og ráðstöfunar.
í gjafabréfi, sem dagsett er í
Reykjavík 22. júní sl. er lýst yfir
því, að til minningar um hjónin
Björgu Jónsdóttur og Valdimar
Þorvarðarson útgerðarmann og
kaupmann í Hnífsdal, hafi þau
hjónin Þorbjörg Valdimarsdóttir
og Jón Kristjánsson bygginga
meistari frá Hnífsdal, sem nú eru
búsett í Reykjavík, ákveðið að gefa
félagsskapnum VERND eftirtald-
ar eignir:
Heimabæ II, húseign og jörð, 6
hundruð að fornu mati, en þarna
er um að ræða stærsta húsið I
Hnífsdal, þrílyft steinhús með
þremur íbúðum. Einnig efri hæð
í húseigninni Heimabær V, og loks
jörðina Fremri-Hnífsdal í Eyrar
hreppi, 8 hundruð að fornu mati.
í gjafabréfinu er sett það skil
yrði, að fasteignirnar verði nýttar
á vegum VERNDAR til hagsbóta
fyrir þau málefni, sem VERND
berst fyrir eða kann að berjast
fyrir hverju sinni. Þó skal VERND
heimilt að leigja eða lána fast-
eignirnar eða hluta úr þeim fyrir
starfsemi á sviði annarra mannúð-
armála en þeirra, sem VERND
beinlínis berst fyrir, svo sem til
rekstrar unglingaheimilis, barna-
Framh. á 15. síðu.
LOKAÐ
vegna sumarleyfa dagana 24. júlí til 9. ágúst,
Gler og listar hf.
Dugguvogi 23.
Aðalfundur
Norrænafélagsins í Reykjavík
verður haldinn í Tjarnarbúð miðvikudaginn
14. júlí. •
fundurinn hefst kl. 20.30. :
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin,
í; í
!
Leitarstöð B
verður lokuð vegna sumarleyfa frá 15. júlí
til 15. ágúst.
ALMA ÞÓRARINSSON
læknir.
Tilboð óskast
í nokkrar fólksbifreiðir, er verða sýndar að
Grensásvegi 9, miðvikudaginn 14. júlí kl.
1—3. Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri
kl. 5 sama dag.
Sölunefnd varnarliðseigna.
TAPAST HEFUR
svart peningaveski í miðbænum.
Finnandi vinsamlegast láti vita í síma 37009
eða 14900.
!»%«*»* **?
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 14. júlí 1965 $