Alþýðublaðið - 23.07.1965, Blaðsíða 3
Sovézk
réttarhöld
útlagafélag
árás á
MOSKVU, 22. júlí (NTB-Reut-
er) — Réttarhöldin í máli Gerald
Brooke hins 28 ára fiamla brezka
tungumálakennara, sem hófust í
Moskvu í dag líktust helzt vel-
skipulagð'ri árás á samtök rúss.
neskra útlaga. Jafnframt var
brezka sendiráöið í Moskvu sakað
Bifreið
stolið
LANDROVERBIFREIÐINNI
G-2221, var stolið í Njarðvíkum í
fyrrinótt. Hún er græn að lit, og
sást síðast á ferð í Ölfusinu. Lög
reglan í Hafnarf'rði, og víðar, hef
ur haft málið til rannsóknar, en
ekki frétt nánar af bifreiðínni enn
þá. Þeir sem kynnu að verða
hennar varir eru vinsamlegast
beðnir að hafa samband við lög
regluna í Hafnarfirði í síma 50131.
um að hafa sambönd við samtök-
in.
Útlagasamtökin kalla sig Banda
lag alþýðu og verkamanna, en er
þekktust undir skammstöfuninni
NTS. Gerald Brooke játaði að
hann hefði haft samband við NTS
og smyglað áróðri inn í Sovétrík
in.
Brooke, sem kennir rússnesku í
Holborn College í London, var
handtekinn í íbúð í Moskvu í apríl
sl., þar sem hann ræddi við rúss
neska stúdenta. Hann hefur síðan
setið í Lubjanka-fangelsi.
Vestrænir fréttamenn og áhorf
endur fengu að fylgjast með réttar
höldunum. Réttarhöldin minntu
að ýmsu leyti á sjónleik. Lítið
leikhús með sæti fyrir 600 áhorf
endur er notað fyrir réttarsal. Dóm
ari og lögfræðingar sitja á leik-
sviðmu fvrir framan rautt leik-
tjald. Réttarhöldin eru kvikmynd
uð. í fordyrinu er seldur bjór,
súkkulaði og smurt brauð.
Framliald á 10. síðu
Svior teknir fyrir
eifurlyfjasmygl
STOKKHOLMI, 22. júlí (NTB).
— 22 ára gamall sænskur stúdent
hefur verið dæmur í sex ára fang
elsi af spönskum dómstóli fyrir
►oooooo<>ooooc>ooo<
Njósnir
í Kairó
Kairó, 2. júlí - NTB - AFPH
MUSTAFA AMINE, sem er
stojnandi og aðalritstjóri
stærsta dagblaðsins í Kairó,
„Al Akhbar”, var í dag á-
kæröur fyrir njósnir í þágu
Bandarikjanna.
Góðar heimildir herma, að
Amine hafi verið liandtek-
inn, er hann afhenti bandar-
ískum sendiráðsfulltrúa,
Bruce Taylor, ýmis skjöl í
gær, og hefur Taylor verið
yfirheyrður. Amine er sagð-<
ur hafa afhent Taylor viku-<
lega skýrslur og veitt Banda
ríkjunum upplýsingar um
stjórnmál, efnahagsmál og
hermál.
Mustafa Amine stofnaði
blaðið „A1 Akbar” 1944 á-
samt bróður sínum Ali. Hann
gegndi áfram störfum aðal-
ritstjóra eftir byltinguna
gegn Faruk konungi, en vélc
i fyrra úr formennskuemb-
ætti í vinstrisinnuðum sam-
tökum.
OOOOOOOOOOOOOOOO
smygl á marijuana-sígarettum og
eiturlyfjum til Spánar. Sænskur
félagi hans situr í fangelsi fyrir
sama glæp og á eins strangan dóm
á hættu. Enn annar 22 ára stúd
ent er í spönsku fangelsi og bíður
dóms fyrir aff hafa svívirt spánska
fánann.
Sænska sendiráðið í Madrid
hefur kvnnt sér málið og er góðar
líkur taldar til að hinn dæmdi stúd
ent verði náðaður. Stúdentarnir
munu hafa smyglað eiturlvfjum til
^ramh. á 15. síðu
Ólafur Geirsson
læknir látinn
Ólaf'T Geirsson, læknir að Víf
ilstöðum lézt í fyrrinótt af völd
um heilablóðfalls, aðeins 56 ára
að aldri. Hann var fæddur 7. maí
1909, varð stúdent 1929, og lauk
kand'dfúsorófi í læknisfræði 1935
Ólafur fór utan til Danmerkur til
sérnáms f berklasjúkdómum, og
varð aðsfoðaryfirlæknir við hælið
að Vífilstöum 1939 og deildarlækn
ir 1949. Fann var um langt skeið
ríts‘t^-' ’->knablaðsins 02 rl+s-
ins Heilbrigt líf, og tók mjög virk
an ■' félagslífi læknasam-
takanna. Ólafur sem naut virðing
ar og trausts starfsbræðra sinna oe
siúklinea var giftur Erlu Egils
son og á+tu þau þrjú uppkomin
börn.
Finnarnir þrír, frá vinstri Ulf Malm, Anna Bergström og Otto Bergström. J. V. tók allar myndirnar.
Ræft við þátttak-
endur á skólamóti
Reykjavík, — KB.
Það var mikið um að vera í
tveimur stórbyggingum við Haga
torg í dag, þegar blaðamaður og
Ijósmyndari frá Alþýðubleðinu
brugðu sér þangað. í Háskólabíói
stóð norræna skólamótið yfir, en
aðalskriftofur mótsins eru í Haga
skólanum, þar sem Stefán Ólafur
Jónsson kennari, framkvæmda
stjóri skólamótsins, ræður ríkjum
í Hagaskólanum hefur hvert þátt
tökuland einnig sína skrifstofu,
og á skrifstofu dönsku þátttakend
anna hittum við Eleen M. Nielsen.
Við spurðum hana fyrst, hve marg
ir Danir tækju þátt í mótinu.
— Tvö hundruð og tíu.
— Allt kennarar?
— Flest kennarar við ýmsa skóla,
barnaskólakennarar þó flestir.
Annars var þáttaka heimil öllum,
sem áhuga hafa á skólamálum.
— Og hvaða gagn teljið þér
vera að svona fundum?
— Á fundum eins og þessum
gefst tækifæri til að hittast og
skiptast á skoðunum og kynnast
því, hvemig aðrir leysa vandamál
sem eru sameiginleg öllum löndun
um. Jú, það má hafa mikið gagn
af þessu.
Sven Lindblað
— Hvaða mál eru efst á baugi
í dönskum skólamálum nú?
— Það er kennaramenntunin.
Fyrir þingið í haust mun koma
fram frumvarp um breytingar á
kennaranámi, en að undanförnu
hefur sérstök nefnd fjallað um
það og skilað áliti sínu. I þessum
tillögum er gert ráð fyrir leng
ingu kennaranámsins, jafnframt
því sem það verður þyngt, þannig
að kennarapróf á að verða mjög
hliðstætt stúdetsprófi.
Við göngum úr Hagaskólanum
inn í Háskólabíó, þar sitja tveir
karlar og ein kona við borð frammi
í anddyrinu. Þetta eru finnskir
gestir og ég fæ leyfi til að spjalla
við þau andartak. Þau heita Ulf
Malm, Anna og Otto Bergström,
Framhald á 10. síffu
Eleen M. Nielsen
Tíu vegaþjónustu-
bílar um helgina
FÉLAG íslenzkra bifreiðaeig
enda hefur mikinn viðbúnað úti á
vegunum um þessa helgi. Vega-
þjónustubifreiðir verða nú í fyrsta
skiptið í sumar starfræktar frá
Akureyri, Grundarfirði. Húsavík,
Seyðisfirði og Norðfirði.
Á SuðVesturlandi verður starf
semi vegaþjónustunnar með svip-
uðu sniði og undanfarnar helgar.
F.Í.B. verður með alls 10 vega
þjónustubifreiðir úti á vegunum
nú um helgina og auk þess tvær
bifreiðir sem sérstaklega eru til
þess að veita ferðafólki upplýsing
ar og minniháttar aðstoð og eina
sjúkrabifreið. Verða bifre.'ðarnar
einkum staðsettar sem hér segir:
FÍB 1 Hvalfjörður frá Tinda-
vegaþjónusta
skarði — Akranesvegamót. FÍB 2
Kambabrún — Grímsnes. FÍB 3
Hvalfjörður. FÍB 4 Bugða — Þing
vellir — Lylngdalsheiði. FÍB 5
Sjúkrabifreið. FÍB 6 Laugarvatn
— Iðubrú og nágrenni. FÍB 8 Að
stoð og upplýsingar. FÍB 9 Sel-
foss — Iða, FÍB 10 Akurevri. FÍB
11 Húsavík, FÍB 12 Norðfjörður,
FÍB 13 Seyðisfjörður, FÍB 14 Frá
Grundarfirði, FÍB Aðstoð og upp
lýsingar.
Frh. á 10. sfðn.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 23. júlí 1965 3 .