Alþýðublaðið - 23.07.1965, Blaðsíða 5
Minningarorð:
Guðrún Marta
Sigurjónsdóttir
F. 12. 11. 1948 — D. 15. 7. 1965.
Við Teltow-skurð í Berlín hallast þessi krans upp að stöng með
sorgarfána til minningar um Hermann Döbler, Vestur-Berlínarbúa,
sem fyrir vangá sigldi bát sínum fulllangt út á skurðinn og var um
svifalaust skotinn af' austur-þýzkum landamæravörðum. í baksýn
sést varðturninn, sem skotið var úr.
Krosshólar
Tenára'ðu lítið skátaljós
DKKUR langar til að minnast þín,
en við eigum aðeins fátækleg orð,
sem á engan hátt megna að lýsa
tilfinningum okkar á þessari
Stundu. Okkur hefur alltaf fundizt
Skátaljósið þitt svo skært og bjart,
en skyndilega er ijósið horfið —
þú ert komin yfir landamærin
jniklu, og horfin sjónum okkar.
Við erum hljóðar og sem agndofa,
við getum ekki áttað okkur á því,
að þú sért ekki lengur í okkar
hópi.
Við minnumst þín sem hins
glaða og góða skáta, sem ávallt
varst viðbúinn. — Þú varst okkar
góði og trausti félagi og vinstúlka.
í>ú hafðir svo einstaklega gott lag
á því að vinna vel og vera létt og
kát, livað sem á gekk. Sannarlega
varstu góður foringi, og okkur til
fyrirmyndar. Við stöndum eftir
Cg spyrjum: Hvers vegna — hvers
vegna einmitt þú, sem hafðir svo
mörgum störfum að gegna —
Störfum, sem við vissum að unnin
voru af alúð og áhuga til heilla
fyrir land og þjóð. En við þessari
spurningu fáum við ekkert svar.
En, við eigum trú — og það er
trúin á Guð, sem er hin bjarg-
fasta stoð og mikli styrkur, þegar
allt annað bregzt.
Við trúum því, að þú sért farin
HEIM. Farin til meiri starfa Guðs
um geim. Við trúum því, að litla
skátaljósið, sem þú tendraðir
hérna mitt á meðal okkar, eigi
eftir að loga enn þá skærar, og
lýsa þér langt inn í eilífðina. Litla
ljósið þitt var aðeins fyrirboði að
öðru enn þá stærra ijósi — neist-
anum frá eilífum eldi Guðs.
Minningin um þig mun hjálpa
okkur til að halda litla ljósinu
okkar lifandi. Við biðjum Guð að
veita ástvinum þínum hjálp og
styrk, og þá sérstaklega mömmu
þinni. Við vitum hve þú varst
henni góð og ástfólgin dóttir.
Hafðu þökk fyrir allar góðar sam-
verustundir. Hafðu þökk fyrir all-
ar hugljúfar minningar, sem við
þig eru tengdar.
.... litla ljósið þitt verður
Ijómandi stjarna skær,
lýsir lýð alla tíð
nær og fjær.
AUÐUR EÐA UNNUR djúpúðga
nam Breiðafjarðardali og bjó í
Hvammi. Hún var einhver eftir
tektarverðasti einstaklingur í
þeim ágæta hópi manna, sem for
ystu höfðu að því, að land var
hér numið. Hún kom vestan um
haf frá Dyflini á írlandi, eftir
að Ólafur hvíti, maður hennar,
féll í orrustu við íra.
Frá íriandi hafði hún fylgdar
lið sitt, sem hún gaf síðan af
landnámi sínu, en þaðan hafði
hún einnig annað. Þaðan hafði
hún trú sína, því að hún var kona
skírð og vel kristin.
Það var eitt af einkennum írskr
ar kristoi, að reisa krossa úr
steini eða tré. Auður eða Unnur
djúpúðga hefur því tekið með sér
forna kristna siðvenju, þegar hún
risti krossa sína á Krosshólaborg.
Nú verður á þessu sumri aftur
reistur kross á Krosshólaborg
mest fyrir forgöngu kvenna og
annarra í byggðum Breiðafjarðar
dala, um það bil 1075 árum eft
ir landnám Unnar.
Hinn nýi kross verður helgað
ur minningu landnámskonunnar
kristnu. Verður hann afhjúpaður
sunnudaginn 8. ágúst við hátíðar
samkomu á Krosshólaborg.
Ásgeir Ingibergsson.
Hvammi.
Látið okkur stilla og
herða upp nýju
bifreiðina!
BlLASKOÐUN
Skúlagötu 34. Sími 13-100
Látið okkur ryðverja
og hljóðeinangra
bifreiðina með
TECTYL!
RYÐVÖRN
Grensásvegi 18. Sími 30945
Afmælisrit
Jónasar frá
Hriflu
Sýslunefnd Þingeyjarsýslu á
kvað á fundi sínum í vor að gefa
út afmælisrit til heiðurs Jónasi
Jónssyni frá Hriflu, en hann varð
áttræður 1. maí síðastliðinn. Vajr
Jónasi Kristjánssyni frá Fremsta
felli falið að annast ritstjórn verks
ins. Undirbúningi er senn lokið,
og mun ritið koma út í næsta
mánuði.
í ritinu verða eftirtaldir þætt
ir:
1.) Ævisaga Jónasar Jónssonar
eftir Jónas Kristjánsson. 2.) Stjorn
málasaga Jónasar Jónssonar eft
ir Aðalgeir Kristjánsson. 3.) úr
val greina sem ritaðar hafa v.er
ið um Jónas Jónsson á ýmsum
tímamótum í ævi hans. 4.) Skrá
yfir bækur, ritgerðir og blaða
greinar sem Jónas Jónsson heÉ
ur skrifað.
Afmælisritið verður 12—15 ark
ir að stærð, prentað á vandaðan
pappír og myndum prýtt. Áskrifta
listar liggja frammi í Fræðslu
deild SÍS og á afgreiðslu Tím
Úns, Bankastræti 7, Reykjavik.
Einnig geta þeir sem hug hafa
á að eignast ritið, snúið sér til
Jónasar Kristjánssonar, Sunnu
braut 6, Kópavogi (sími 41758.)
Einangrunargler
Framleltt elnungis úr
Úrvalsgleri — 5 ára ábyrgð.
Pantið tímanlega.
Korkiðjjan hf.
Skúlagötu 57 — Síml 23260.
Koparpípur og
Fittings,
Ofnkranar,
Tengikranar,
Slöngukranar,
Rennilokar,
Blöndunartæki.
Burstafell
byggingavöruverzlun,
Réttarholtsvegi 3.
Sími 3 88 40.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 23. júlí 1965 £
Kveðja frá skátasystrum.
Minning:
Arnlaugur Einarsson
Fæddur 4. júlí 1903. — Dáinn 13. júlí 1965
Kveðja frá eiginkonu, dóttur og systskinum.
Leiðir skilja ljúfi Vinur,
lokið þungri sjúkdómsþraut.
Góður drengur, gætinn, prúður, ;
gekkstu þína ævibraut.
Höndin hög til heilla leysti
hlutverk hvers í lífsins önn.
Dagfar allt, sem dáðu vinir,
dyggðin prýddi lirein og sönn.
Listin þín í söngva sölum,
sú var vöggugjöfin stór.
Kveiktir yndi, kraft og fegurð,
hvar sem hófst þú rödd í kór.
Heimaranninn byggðir bjarta
bjóst af snilli allt í hag.
Síðan þar við saman áttum,
sólskinsstund og reynsludag.
En í gegn um allt hið liðna
ætíð fann ég drcngskap þinn,
aðalsmerki ævidagsins,
elskulegi vinur minn.
Einkadóttur ástúð vafðir,
allt frá fyrstu bernskutíð.
Öllu varst þú fús að fórna
fyrir okkur, ár og síð.
Bróðir kær, frá æskuárum,
um þig hugljúf minning skín.
Burtu að lieiman brautir lágu,
en breyttist aldrei tryggðin þín.
Öll við þökkum ástvinirnir,
allt, hið liðna um gengin spor.
Býr hjá okkur blessuð minning,
björt, sem geisli um fagurt vor.