Alþýðublaðið - 23.07.1965, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 23.07.1965, Blaðsíða 7
Menntamálaráðherra setur skólamótið. Hér fer á eftir ræða sú, sem dr. Gylfi Þ. Gísla- son, menntamálaráð- herra, flutti við setn- ingu 19. norræna skóla mótsins í Háskólabíói í gærmorgun. FYRIR rúmum hundrað árum fæddist efnalitlum, en gáfuðum hjónum sonur á kotbæ einum í Skagafirði á Norður-íslandi. Hann ólst upp í fátækt, gekk aldrei í skóla, en lærði samt snemma að lesa og draga til stafs í heimahús.- um. Nýférmdur fór hann í vinnu- mennsku, og tæplega tvítugur fluttist hann síðan til Vestur- heims með foreldrum sínum og fleira frændfólki. Rétt áður fékk liann fáeinar vikur tilsögn í ensku hjá prestum í sveitinni. Það var eina skólagangan á lífsleiðinni. í Vesturheimi varð hann fyrst daglaunamaður, síðar efnalítill bóndi langa ævi. En hann varð eitt mesta skáld, sem ort hefur á ís- lenzka tungu. Fræðimenn við æðstu menntastofnanir í Ameríku, sem hafa getað lesið ijóð hans á frummálinu, hafa jafnvel hreyft ■þeirri skoðun, að hann muni vera eitt mesta ljóðskáld, sem uppi hafi verið í Kanada — eða jafnvel iillum Vesturheimi. Þessi skáldbóndi, Stephan G. Stephansson, hefur ritað drög að ævisögu sinni. í henni er stutt frá- sögn af atviki, sem f.vrir hann kom tólf ára gamlan. Mér finnst hún vera lærdómsrík fyrir alla þá nú á tímum, sem hugsa af alvöru og einlægni um skólamál. Hún er svona: „Eitt haust var ég úti staddur í rosaveðri. Sá þrjá menn ríða Vatnsskarð frá Arnarstapa. Vissi, að voru skólapiltar á suðurleið, þar á meðal Indriði Einarsson, kunningi minn og sveitungi, sitt fyrsta ár til skóla. Mig greip raun, ekki öfund. Fór að kjökra. Þaut út í þúfur, lagðist niður í laut. Mamma hafði saknað mín. Kom út og kallaði; ég svaraði ekki. Vildi ekki láta hana sjá mig, svo á mig kominn, en hún gekk á mig. Spurði mig, hvað að gengi; ég vildi verjast frétta, en varð um síðir að segja sem var. Eftir þessu sá ég seinna. Mörgum árum á eftir heyrði ég mömmu segja frá þessu, en ég hélt hún hefði löngu gleymt því. Hún bætti því við, að í það sinn hefði sér fallið þyngst fá- tæktin. — Tvisvar síðar, einu sinni hoima, öðru sinni hér (þ. e. í Ameríku) hefur mér boðizt á- væningur þess, sem gat verið byrj- un að skólagöngu, en ég hafnaði. í öðru sinni vorum við öll ráðin til vesturfarar, svo að ekki varð við snúið. í hitt skiptið, hér, hefði ég orðið að láta foreldra mína, ald- urhnigna og útslitna, sjá fyrir sér sjálf, hefði ég reynt að reyna á. Nú veit ég ekki, nema lærdóms- leysið, með öllum sínum göllum, hafi verið lán mitt, svo að ég uni þyí vel, sem yarð”. Hvers vegna er ég að segja þessa sögu hér, þegar skólamenn frá ■Norðurlöndum öllum hittast til þess að bera saman bækur sínar og læra hver af öðrum? Tilgangurinn er ekki sá að benda á þá alkunnu og augljósu staðreynd, að unnt er að verða mikill maður án skólagöngu. Hann er ekki heldur sá að undirstrika, að miklum árangri má ná í kröpp- um kjörum, ef sterkur og einlæg- ur þroskavilji beinist að réttu. marki. Enginn þarf nú að fara á mis við skólagöngu. Og kröpp kjör eru ekki l'engur aðalvanda- mál okkar. En hvað getum við þá lært af þessari sögu? Mér hefur alltaf fundizt það at- hyglisverðast. við hana, að Stephan skuli segja, að ef til vill hafi lær- dómsleysið, með öllum sínum göll- um, orðið lán sitt og átt gildan þátt í því, að hann varð það, sem hann varð: Sjálfum sér og sínum gæfumaður og andlegur aflgjafi öllum, sem kynnast verkum hans og manngildi. Hvers vegna gat þessi maður sagt, að jafnvel lær- dómsleysið hafi orðið sér til góðs? Skýringin er sú, að hann hafði gert sér ljóst, að skólanám getur því aðeins orðið til þroska, að það sé notað sem undirstaða sjálfs- menntunar. Og lærdómsleysi hans varð hvatning til enn meiri átaka við sjóifsmenntun sína. Hann lét ekki fátæktina og brauðstritið smækka sig. List hans og hugsun magnaðist og þroskaðist við tor- færurnar. Hann varð sannmennt- aður maður. Ekki einungis varð þekking hans víðtæk. Þekkingar- leit hans mótaðist einnig af sann- leiksást og rökvísi. En jafnframt gerði hann sér skýra grein þess, hvað liann vissi og hvað hann vissi ekki. Hins vegar sljóvgaði vit hans ekki tilfinningarnar. Þær voru sterkar og heitar, þótt hann bæri þær ekki utan á sér eða flíkaði þeim með væmnu orðalagi. Með sterkum vilja stýrði hann viti sínu og stjórnaði tilfinningum sínum. ■ '.k Þannig eiga sannmenntaðir menn að vera. Og þannig tókst þessu blásnauða bóndaskáldi að verða, þrátt fyrir lærdómsleysi [ sitt, — og jafnvel, að því er hann sjálfur segir, vegna þess. Af þessi» má mikið læra. Nú á tímum eru allir sammála um nauðsyn skóla og mikilvægi þeirra. Nútímaþjóðfélag fengi ekki staðizt án víðtæks skólakerfis. Og framfarir eru í vaxandi mæli háð- ar því, að skólakerfið sé eflt og bætt í sífellu. En við þurfum a<i gera okkur gleggri grein fyrir þvi en við gerum, hvert við eigum a3 stefna. Skólinn á ekki að vera hlut- laust hjól í þjóðfélagsvélinni. Hann á ekki aðeins að auka verk- kunnáttu og bæta starfshæfni, ekki aðeins að stuðla að auknum framförum og bættum efnahag. Hann á fyrst og fremst að stuðla að mannbótum. Þá fylgir allt hitt í kjölfarið. Hann á fyrst og fremst að bæta skilyrði sérhvers manns til sjálfsræktar, því að úr þeim jarðvegi einum vex sönn ham- ingja. Þessu. marki nær skólinn þvf aðeins, að hann leggi grundvöll að ævilangri viðleitni til sjálfs- menntunar. Og slík viðleitni bér ekki árangur nema fyrir andlegt átak. Mesta hættan, sem nú er á vegi skólanna, er sú, að þeir telji alla menntun geta verið skóla- menntun. Og mesta hættan, sem nú er á vegi skólaæskunnar, er sú, að henni gleymist, að enginn þroski næst án átaks. Líf og starf bóndans og skáldsins, sem fæddist norður undir heimskautsbaug og dó vestur undir Klettafjöllum, ætti að geta hjálpað okkur til þess að skilja þessar hættur og vinna bug á þeim. Þess vegna hef ég minnzt hans hér. í einu af bréfum sínum segir hann: ,,Ég er bara hversdagsmað- ur í öllu, en hef aðeins reynt að lifa ofurlitlu andlegu lífi eftir beztu getu”. Þetta er það fyrst og fremst, sem skólarnir þurfa að kenna nemendum sínum: Að lifa andlegu lífi eftir beztu getu. Skáld bóndinn gat það án skólalærdóms. Við eigum að reyna það með hjálp skólanna.- Með þessum orðum lýsi ég 19. norræna skólamótið sett. POSSNINGAR- SANDUR VIKURPLÖTURji Elingangriaffiar- ]ji piast Seljum allar gerðir af pússn ingarsandi heimfluttan og blásinn i-nn. Þurrkaðar vikurplötur Og einangrunarplast. Sandsalan við Elliðavog s.f, Elliðavogi 115, sími 3Q120.it •■;n? SKURSTÖDSN Sætúni 4 — Sími 16-2-27 Bíilinn er smurður fljótt og velti Seljum allar teguUdir af smúrolíg Þingheimur stendur á nieð.m þjóðsöngvar eru leiknir. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 23. júlí 1965 , j ' i; '

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.